Bæjarráð Grindavíkur - 1625. fundur
- 18.10.2022
- Fundargerð
- Kl. 15:00 - 17:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1625
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Helga Dís Jakobsdóttirvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Húsnæðisaðstæður skólaþjónustu, félagsþjónustu og barnaverndar
Gögn vegna þessa dagskrárliðar verða sett undir málið fyrir fundinn.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagðar fram teikningar vegna breytinga á aðstöðu félags- og skólaþjónustu.
Jafnframt er lögð fram beiðni um viðauka vegna breytinganna. Óskað er eftir heimild til að nota fjárheimild verkefnisins "Víkurbraut 62, breytingar á 3. hæð" í að laga núverandi aðstöðu félags- og skólaþjónustu.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukabeiðnina.2. Aðalskipulag Grindavíkur- endurskoðun
Í samræmi við 35. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 skal sveitarstjórn meta hvort ástæða sé til að endurskoða aðalskipulag sveitarfélagsins innan tólf mánaða frá sveitarstjórnarkosningum. Skipulagsnefnd hefur tekið erindið fyrir.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Í samræmi við 35. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 skal sveitarstjórn meta hvort ástæða sé til að endurskoða aðalskipulag sveitarfélagsins innan tólf mánaða frá sveitarstjórnarkosningum.
Skipulagsnefnd hefur tekið erindið fyrir og sér ekki ástæðu til að fara í endurskoðun á aðalskipulagi Grindavíkurbæjar.
Bæjarráð tekur undir bókun skipulagsnefndar og vísar afgreiðslu til bæjarstjórnar.3. Ástand gervigrass í Hópinu
Lögð fram samantekt frá fundi með úttektaraðila sem skoðaði ástand gervigrass í Hópinu.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram samantekt frá fundi með úttektaraðila vegna ástands gervigrass í Hópinu.
Málinu er vísað í vinnu við fjárhagsáætlun 2023-2026.4. Aðstaða og vélakostur Golfklúbbs Grindavíkur
Erindi frá Golfklúbbi Grindavíkur lagt fram þar sem óskað er eftir styrk til kaupa á vinnuvélum og fjárfestingu á golfvelli klúbbsins.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram styrkbeiðni frá Golfklúbbi Grindavíkur vegna tveggja véla. Áætlaður kostnaður á nýjum vélum (röffsláttuvél og grínsláttuvél) samkvæmt tilboði HÁ Verslunar sem var sent í byrjun ágúst eru 19.152.377 kr. Einnig lögð fram áskorun um að koma að æfingaaðstöðu og vélaaðstöðu fyrir golfklúbbinn inn í fjárhagsáætlun Grindavíkurbæjar.
Málinu er vísað í vinnu við fjárhagsáætlun 2023-2026.5. Undirskriftalisti vegna opnunartíma sundlaugar
Lagður fram undirskriftalisti með 168 undirskriftum þar sem lagt er til að sundlaugin verði opin til kl. 21:00 um helgar yfir vetrartímann í stað kl. 16:00.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagður fram undirskriftalisti með 168 undirskriftum þar sem lagt er til að sundlaugin verði opin til kl. 21:00 um helgar yfir vetrartímann í stað kl. 16:00.
Frístunda- og menningarnefnd leggur til að íþróttamannvirkin verði opin til kl. 18:00 um helgar yfir vetrartímann.
Bæjarráð vísar málinu í vinnu við fjárhagsáætlun 2023-2026.6. Tillögur um nýtingu vindorku
Stjórn Samtaka orkusveitarfélaga bendir á mögulegar áherslur aðildarsveitarfélaganna vegna fyrirkomulags vindorkunýtingar. Sveitarfélögum er gefinn kostur á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri.
Lagður fram tölvupóstur frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu til aðilarsveitarfélaga samtaka orkusveitarfélaga, dags. 27. september sl., varðandi mögulegar áherslur aðildarsveitarfélaganna vegna fyrirkomulags vindorkunýtingar. Sveitarfélögum er gefinn kostur á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri.
7. Kvennaathvarfið - styrkbeiðni
Samtökin óska eftir rekstrarstyrk á árinu 2022.
Lögð fram styrkbeiðni Kvennaathvarfsins vegna ársins 2023 að fjárhæð 400.000 kr.
Bæjarráð samþykkir 100.000 kr. styrk til Kvennaathvarfsins á árinu 2022 og óskar eftir reikningi vegna þessa.
Jafnframt samþykkir bæjarráð að setja 100.000 kr. í styrk í fjárhagsáætlun 2023 til Kvennaathvarfsins.8. Fjárhagsáætlun Grindavíkurhafnar 2023-2026
Þjónustugjaldskrá Grindavíkurhafnar 2023. Ráðning hafnavarðar/hafnsögumanns
Hafnarstjórn samþykkir vísutöluhækkun á þjónustugjaldskrá Grindavíkurhafnar 2023 og vísar henni til staðfestingar hjá bæjarstjórn.
Hafnarstjórn samþykkir tillögu hafnastjóra um ráðningu hafnarvarðar/hafnsögumanns.
Bæjarráð vísar málinu í vinnu við fjárhagsáætlun 2023-2026.9. Fjárhagsáætlun 2023-2026 - Grindavíkurbær og stofnanir
Vísa þarf áætluninni til fyrri umræðu í bæjarstjórn
Frumvarp til fjárhagsáætlunar fyrir Grindavíkurbæ og stofnanir 2023-2026 lagt fram.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að vísa fjárhagsáætluninni til fyrri umræðu í bæjarstjórn.