Bæjarráð Grindavíkur - 1642. fundur
- 02.05.2023
- Fundargerð
- Kl. 15:00 - 16:40
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1642
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Helga Dís Jakobsdóttirvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Garðsláttur eldri borgara
Málið lagt fram til umræðu og ákvörðunartöku. Skoða þarf fyrirkomulag á grasslætti eldri borgara. Tölvupóstur frá yfirmanni þjónustumiðstöðvar lagður fram.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Tölvupóstur frá forstöðumanni þjónustumiðstöðvar, dags. 14.04.2023 er lagður fram.
Sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs falið að vinna málið áfram og leggja tillögur fyrir næsta fund bæjarráðs.2. Sorpflokkun við heimili - Borgað þegar hent er, innleiðing
Lögð fram drög að dreifibréfi og kynningu fyrir framlínustarfsfólk.
Fyrirhugaður er íbúafundur í næstu viku. Nánari tímasetning og staðsetning ekki alveg komin á hreint.Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram drög að dreifibréfi og kynningu fyrir framlínustarfsfólk.
Fyrirhugað er að deila út tvískiptri tunnu á hvert heimili nú í lok maí eða byrjun júní ásamt því að merkja þær tunnur sem fyrir eru.
Einnig lögð fram drög að nýrri gjaldskrá.3. 50 ára afmælismerki Grindavíkurbæjar
Samkvæmt erindisbréfi skal 50 ára afmælisnefnd láta hanna afmælismerki sem fangar anda kaupstaðarafmælisins. Lagt er til að skoða ásýnd og hönnunarstaðal fyrir Grindavíkurbæ í leiðinni.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Samkvæmt erindisbréfi skal 50 ára afmælisnefnd láta hanna afmælismerki sem fangar anda kaupstaðarafmælisins.
Lagt er til að skoða ásýnd og hönnunarstaðal fyrir Grindavíkurbæ í leiðinni.
Bæjarráð samþykkir tillöguna.4. Leiksvæði vestan Víkurbrautar
Málið lagt fyrir að beiðni meirihluta bæjarstjórnar.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sátu fundinn undir þessum dagksrárlið.
Lögð fram tillaga um niðursetningu á nýjum ærslabelg.
Sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs og sviðstjóra skipulags- og umhverfisviðs er falið að útfæra málið.5. Siðareglur kjörinna fulltrúa Grindavíkurbæjar
Samin hafa verið drög að siðareglum kjörinna fulltrúa Grindavíkurbæjar.
Lögð fram drög að breytingum á siðareglum kjörinna fulltrúa Grindavíkurbæjar.
Bæjarráð vísar siðareglunum til staðfestingar í bæjarstjórn.6. Heimgreiðslur til foreldra 12 mánaða gamalla barna sem fá ekki daggæslu fyrir börn sín
Bókanir frá fræðslunefnd og félagsmálanefnd eru lagðar fram.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð samþykkir að heimgreiðslur verði í samræmi við bókun fræðslunefndar og felur sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs að útbúa reglur í samræmi við það og leggja þær fyrir bæjarráð.7. Áhyggjur af stöðu skólahjúkrunar
Lögð fram bókun fræðslunefndar.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram bókun fræðslunefndar á fundi nr. 130 þann 17. apríl sl.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að hafa samband við stjórnendur HSS.8. Landskerfi bókasafna - Aðalfundur 2023
Boðað er til aðalfundarins þriðjudaginn 9. maí 2023. Skipa þarf fulltrúa frá Grindavíkurbæ til að sitja fundinn.
Boðað er til aðalfundarins þriðjudaginn 9. maí 2023 kl. 14:30.
Bæjarráð samþykkir að Andrea Ævarsdóttir, forstöðumaður bókasafnsins, verði fulltrúi Grindavíkurbæjar á fundinum.