Bæjarráð Grindavíkur - 1721. fundur
- 15.09.2026
- Fundargerð
- Kl. 14:00 - 16:20
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1721
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Guðbjörg Eyjólfsdóttirformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttirvaraformaður
- Magnús Már Jakobssonaðalmaður
Starfsmenn
- Pétur Georg Markanbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Guðjón Bragasonlögfræðingur
1. Kynning á framkvæmdaáætlun - HS Orka
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Axel Viðarsson, yfirverkefnisstjóri þróunarverkefna hjá HS Orku, og Halla Einarsdóttir, verkfræðingur frá HS Orku og Atli Geir Júlíusson, skiplagsfulltrúi Grindavíkurbæjar.
Axel kynnti áform um virkjun í Eldvörpum og svaraði spurningum.2. Áhættumat fyrir Grindavík
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Eigna- og veitustjóri Grindavíkurbæjar.
Lögð fram til kynningar drög að lokaskjölum vegna vinnu þriggja vinnuhópa um rýni áhættuvísa.
Stefnt er að kynningarfundi fyrir íbúa Grindavíkur í samstarfi við forsætisráðuneytið.3. Fjárhagsáætlun 2026-2029 - Grindavíkurbær og stofnanir
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Eigna- og veitustjóri Grindavíkurbæjar.
Lögð fram beiðni um viðauka vegna viðhalds bifreiða og tækja hjá þjónustumiðstöð að fjárhæð 8.500.0000 kr.
Lagt er til að fjármögnun verði með lækkun á eignfærðri fjárfestingu, nánar tiltekið liðnum Túngata 15-17 - lagfæringar húss vegna náttúruvár.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukabeiðnina.4. Fjárhagsáætlun 2026-2029 - Grindavíkurbær og stofnanir
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Eigna- og veitustjóri Grindavíkurbæjar.
Lögð fram beiðni um viðauka vegna viðhalds húsa og mannvirkja hjá Eignasjóði að fjárhæð 24.950.000 kr. Beiðnin felst í færslu fjárheimilda milli rekstrareininga og eignfærðrar fjárfestingar.
Lagt er til að fjármögnun verði með lækkun á nokkurum rekstrarlyklum og eignfærðri fjárfestingu skv. greinargerðinni.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukabeiðnina.5. Slökkvistöð - breytingar innanhúss
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Eigna- og veitustjóri Grindavíkurbæjar.
Lögð fram lokaskýrsla og viðaukabeiðni vegna framkvæmda við slökkvistöð.
Óskað er eftir viðbótarheimild að fjárhæð 39.500.000 kr. á framkvæmdaáætlun Eignasjóðs vegna breytinga í slökkvistöð.
Lagt er til að fjármögnun verði með lækkun á fjárfestingaáætlun hafnarinnar.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukabeiðnina.6. Framkvæmdir við klæðningu á Ásabraut 2 (Grunnskóli Grindavíkur)
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Eigna- og veitustjóri Grindavíkurbæjar.
Lögð fram lokaskýrslu um klæðningarverkefni Grunnskóla Grindavíkur að Ásabraut 2, verkefni 32-110206, ásamt beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2026.
Óskað er eftir viðbótarfjárheimild að fjárhæð 15.000.000 kr. vegna grunnskólans.
Lagt er til að fjármögnun verði með lækkun á verki 32-11009 stígagerð o.fl. tengt "Perlan í Grindavík".
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukabeiðnina.7. Eftirlit með framkvæmd skólahalds
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs.
Svarbréf til mennta- og barnamálaráðuneytis og minnisblað vegna fundar með MNR 14.09.2026 eru lögð fram til kynningar.
Sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs er falið að senda svarbréfið.8. Notendaráð sveitarfélaga
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs.
Lagt fram bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 8. september 2026 varðandi skyldur sveitarfélaga til að skipa í lögbundin notendaráð sveitarfélaga, þ.e. samráðshóp í málefnum fatlaðs fólks, öldungaráð og ungmennaráð.9. Ásýnd Grindavíkurbæjar
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs (í Teams).
Lögð fram drög að vörumerkjahandbók Grindavíkur. Handbókin byggir á byggðarmerki Grindavíkur frá árinu 1986. Grunnhugmynd merkisins og táknfræði eru óbreytt en útfærslan hefur verið einfölduð og aðlöguð að fjölbreyttri notkun í stafrænum og prentuðum miðlum.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til samþykktar.10. Samstarfssamningar á frístunda- og menningarsviði 2027
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs (í Teams).
Lagt fram yfirlit yfir samstarfssamninga á frístunda- og menningarsviði.11. Opnunartími tjaldsvæðis veturinn 2026-2027
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs (í Teams).
Lagt fram minnisblað, dags. 11.09.2026 þar sem óskeð er eftir heimild til að tjaldsvæðið verði opið í allan vetur í tilraunaskyni.
Áætlað er að kostnaður vegna opnunar á fjárhagsárinu 2026 verði óverulegur og rúmist innan núverandi fjárheimilda ársins vegna vöru- og þjónustukaupa. Gera þarf þó ráð fyrir lengri opnunartíma tjaldsvæðisins við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027.
Bæjarráð samþykkir erindið.12. Slit á Reykjanesfólkvangi
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs (í Teams).
Lögð fram fundargerð 2. fundar samstarfshóps vegna endurskoðunar friðlýsingar Reykjanesfólkvangs, ásamt valkostagreiningu frá Náttúrverndarstofnun.
Bæjarráð óskar eftir að eiga fund með Hafnarfjarðarbæ um málið.13. Nordic SME Risk & Resilience (NSRR)
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs (í Teams).
Grindavíkurbær hefur fengið samþykktan styrk til þátttöku í alþjóðlega samstarfsverkefninu Nordic SME Risk & Resilience (NSRR).
Bæjarráð felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að vinna málið áfam.14. Fjárhagsáætlun 2027-2030 - Grindavíkurbær og stofnanir
Lagt fram rekstaryfirlit 1. janúar - 31. ágúst 2026 og útkomuspá rekstar fyrir árið 2026.
Auk þess eru lögð fram fyrstu drög að launaáætlun fyrir árið 2027.