Bæjarráð Grindavíkur - 1677. fundur
- 04.03.2025
- Fundargerð
- Kl. 14:00 - 16:10
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1677
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Sævar Þór Birgissonvaraformaður
Starfsmenn
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Hættusvæði og hættumatskort vegna jarðhræringa
Veðurstofa Íslands mun senda fulltrúa á fundinn.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Eigna- og veitustjóri Grindavíkurbæjar, skipulagsfulltrúi, Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs (Teams), Guðjón Bragason, lögfræðingur (Teams) og Birgitta Rán Friðfinnsdóttir, bæjarfulltrúi. Frá Veðurstofu Íslands: Sara Barsotti, fagstjóri eldfjallavár, Bergrún Arna Óladóttir, sérfræðingur á sviði eldfjallafræði og Hrafnhildur Valdimarsdóttir, skrifstofustjóri.
Fulltrúar Veðurstofunnar kynntu stöðuna og þá aðferðafræði sem þau nota við gerð hættumatskorta.2. Vatnsmóttökustöð Klifhólabrunnur
Lagt fram minnisblað um byggingu vatnsmóttökustöðvar við Grindavíkurveg.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Eigna- og veitustjóri Grindavíkurbæjar, skipulagsfulltrúi og Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs (Teams).
Lagt fram minnisblað um byggingu vatnsmóttökustöðvar við Grindavíkurveg, dags. 26.02.2025.
Bæjarráð samþykkir tilhögun verkefnisins eins og henni er lýst í minnisblaðinu.3. Fyrirspurn NTÍ um skipulagsmál í Grindavíkurbæ
Náttúruhamfaratrygging Íslands hefur komið að tjónamati og unnið að afgreiðslu fjölda bótamála vegna skemmda á húseignum innan bæjarmarkanna í samræmi við gildandi lög og reglur þar að lútandi. Af því tilefni óskar NTÍ eftir skriflegri afstöðu Grindavíkurbæjar til ákveðinna atriða.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Eigna- og veitustjóri Grindavíkurbæjar, skipulagsfulltrúi, Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs (Teams) og Guðjón Bragason, lögfræðingur (Teams).
Náttúruhamfaratrygging Íslands hefur komið að tjónamati og unnið að afgreiðslu fjölda bótamála vegna skemmda á húseignum innan bæjarmarkanna í samræmi við gildandi lög og reglur þar að lútandi. Af því tilefni óskar NTÍ eftir skriflegri afstöðu Grindavíkurbæjar til ákveðinna atriða.
Lögð fram drög að svari til NTÍ.4. Hugmynd að stoppistað fyrir ferðamenn
Lagt fram til kynningar
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Eigna- og veitustjóri Grindavíkurbæjar, skipulagsfulltrúi og sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs (Teams).
Bæjarráð felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs og skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram.5. Samningur um stuðning við Björgunarsveitina Þorbjörn 2025
Slysavarnadeildin Þorbjörn óskar eftir sambærilegu framlagi til reksturs sveitarinnar og árið 2024.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Slysavarnadeildin Þorbjörn óskar eftir sambærilegu framlagi til reksturs sveitarinnar og árið 2024.
Bæjarráð felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að vinna málið áfram.6. Sala á fasteigninni Bjarmalandi í Grindavíkurbæ
Með tölvupósti þann 25.02.2025 var Grindavíkurbæ tilkynnt um aðilaskipti á fasteigninni Bjarmalandi, 241 Grindavíkurbæ. Fastanúmer: 2092733. Landeignarnúmer: 129167. Eignin er lögbýli og því þarf að tilkynna aðilaskipti að henni til sveitarstjórnar skv. 10. gr. jarðalaga nr. 81/2004.
Með tölvupósti þann 25.02.2025 var Grindavíkurbæ tilkynnt um aðilaskipti á fasteigninni Bjarmalandi, 241 Grindavíkurbæ. Fastanúmer: 2092733. Landeignarnúmer: 129167. Samkvæmt afsali sem lá frammi á fundinum eru Ómar Davíð Ólafsson og Berglind Benónýsdóttir seljendur seljandi eignarinnar og Fasteignafélagið Þórkatla kaupandi. Eignin er lögbýli og því þarf að tilkynna aðilaskipti að henni til sveitarstjórnar skv. 10. gr. jarðalaga nr. 81/2004.
7. Sala á fasteigninni Vík í Grindavíkurbæ
Með tölvupósti þann 26.02.2025 var Grindavíkurbæ tilkynnt um aðilaskipti á fasteigninni Vík, 241 Grindavíkurbæ. Fastanúmer: 2092711. Landeignarnúmer: 129161. Eignin er lögbýli og því þarf að tilkynna aðilaskipti að henni til sveitarstjórnar skv. 10. gr. jarðalaga nr. 81/2004.
Með tölvupósti þann 26.02.2025 var Grindavíkurbæ tilkynnt um aðilaskipti á fasteigninni Vík, 241 Grindavíkurbæ. Fastanúmer: 2092711. Landeignarnúmer: 129161. Samkvæmt afsali sem lá frammi á fundinum eru Heiðar Guðmundsson og Særún Lind Barnes seljendur seljandi eignarinnar og Fasteignafélagið Þórkatla kaupandi. Eignin er lögbýli og því þarf að tilkynna aðilaskipti að henni til sveitarstjórnar skv. 10. gr. jarðalaga nr. 81/2004.