Bæjarráð Grindavíkur - 1613. fundur
- 21.06.2022
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 17:30
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1613
- Ritari: Fannar Jónasson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sævar Þór Birgissonvaramaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir að taka á dagskrá mál með afbrigðum sem 6. mál: 2201007 - Fjárfesting 2022 - Stúka og tafla í nýjan íþróttasal.
Samþykkt samhljóða.
1. Félagsaðstaða eldri borgara - hönnun og undirbúningur
Staðan á hönnun og útboði vegna félagsaðstöðu eldri borgara við Víðihlíð lögð fram.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Staðan á hönnun og útboði vegna félagsaðstöðu eldri borgara við Víðihlíð lögð fram.2. Framkvæmdir við æfingasvæði við golfvöll
Framkvæmdir við æfingasvæði við golfvöll til umræðu. Til að ljúka verkefninu og sá í svæðið þarf aukið fjármagn sem áætlað er að sé 4 milljónir króna.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Framkvæmdir við æfingasvæði við golfvöll teknar til umræðu. Til að ljúka verkefninu og að sá í svæðið þarf aukið fjármagn sem áætlað er að nemi 5 milljónum króna. Bæjarráð samþykkir viðauka að fjárhæð 5.000.000 kr. sem verði fjármagnaður með lækkun á fjárfestingarverkefni nr. 32-110206, Ásabraut 2, klæðning að utan.3. Viðgerð á stíg frá Grindavík vestur að golfvelli 2022
Verð frá verktaka í viðgerðir á hjóla- og göngustíg að golfvelli lögð fram. Gögn munu koma undir dagskrárliðinn á þriðjudagsmorgun.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Verðtilboð frá verktaka í viðgerðir á hjóla- og göngustíg að golfvelli lagt fram. Bæjarráð samþykkir að hefja verkið og felur sviðsstjóra að vinna málið áfram.4. Fráveita Grindavíkurbæjar - dælulögn frá Seljabót
Tillaga að útfærslu til að bregðast við flóði á Miðgarði lögð fram til umræðu.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Tillaga að útfærslu til að bregðast við flóði á Miðgarði lögð fram til umræðu.5. Gerðavellir 17-19, malarsvæði á lóð
Óskað er heimildar bæjarráðs til að setja kantstein við lóðarmörk Gerðavalla 17-19 við Hólavelli og tyrfa svæðið fyrir innan.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Óskað er heimildar bæjarráðs til að setja kantstein við lóðarmörk Gerðavalla 17-19 við Hólavelli og tyrfa svæðið fyrir innan.
Bæjarráð samþykkir erindið.6. Fjárfesting 2022 - Stúka og tafla í nýjan íþróttasal
Í upphafi árs var farið af stað með opið útboð vegna stúku í nýjan íþróttasal þar sem samið var við lægstbjóðanda, Exton. Tilboð Exton hljóðaði upp á 229.464 evrur eða tæpar 32 milljónir á gengi dagsins í dag. Grindavíkurbær og hönnuðir hafa undanfarnar vikur og mánuði átt samtal við Exton um stúkuna sem átti að vera með sæti í miðjunni og bekki til endanna. Nú er lagt til að hafa sæti í allri stúkunni sem felur í sér aukinn kostnað sem samkvæmt uppfærðu verði frá Exton er 52.355 evrur. Tölvupóstur frá Exton lagður fram með erindinu. Heildarkostnaður stúku frá Exton yrði því um 38.904.822 kr. á gengi dagsins i dag.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt er til að hafa sæti fyrir áhorfendur í allri stúkunni í nýja íþróttasalnum. Það felur í sér aukinn kostnað.7. Uppfærð viðbragðsáætlun vegna eldgoss við Grindavík
Uppfærð viðbragðsáætlun vegna eldgoss við Grindavík frá almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra lögð fram til upplýsinga.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Uppfærð viðbragðsáætlun vegna eldgoss við Grindavík frá almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra lögð fram til upplýsinga.8. Endurskoðun á systkinaafslætti
Málið er sett á dagskrá að beiðni Hallfríðar Hólmgrímsdóttur bæjarfulltrúa.
Meirihlutinn tekur undir mikilvægi þess að endurskoða systkinaafslátt enda er kveðið á um slíkt í meirihlutasamningi B, D og U þar sem tekið er fram að markmiðið er að lækka gjöld til foreldra og aðlaga afslætti. Meirihlutinn er nú þegar með málið í vinnslu í samráði við sviðsstjóra og mun leggja málið fyrir þegar upplýsingar á faglegum grundvelli liggja fyrir.
9. Niðurgreiðsla til foreldrar barna yngri en 18 mánaða sem nýta sér þjónustu dagforeldra
Málið er sett á dagskrá að beiðni Hallfríðar Hólmgrímsdóttur bæjarfulltrúa.
Málinu frestað og óskað eftir því að sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs mæti á næsta fund bæjarráðs.
10. Landskerfi bókasafna - Aðalfundur 2022
Boðað er til aðalfundarins miðvikudaginn 29. júní 2022. Skipa þarf fulltrúa frá Grindavíkurbæ til að sitja fundinn.
Lagt fram fundarboð aðalfundar Landskerfa bókasafna miðvikudaginn 29. júní 2022. Bæjarráð samþykkir samhljóða að Andrea Ævarsdóttir verði fulltrúi Grindavíkurbæjar á fundinum.