Bæjarráð Grindavíkur - 1693. fundur
- 21.10.2025
- Fundargerð
- Kl. 14:00 - 15:15
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1693
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Inga Fanney Rúnarsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Guðjón Bragasonlögfræðingur
1. Erindi frá Grindavíkurnefnd
Árni Þór Sigurðsson formaður Grindavíkurnefndar mætir á fundinn og ræðir málefni nefndarinnar.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Gunnar Már Gunnarsson, bæjarfulltrúi (Teams), forstöðumaður þjónustumiðstöðvar (Teams) og slökkviliðsstjóri. Frá Grindavíkurnefnd: Árni Þór Sigurðsson og Skarphéðinn B. Steinarsson.
Árni Þór og Skarphéðinn kynntu stöðu mála í verkefnum nefndarinnar og hvað er framundan.2. Norðurljósabærinn Grindavík
Lagt fram erindi frá Dagmar Valsdóttur um að þróa Grindavík sem norðurljósabæ.
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Forstöðumaður þjónustumiðstöðvar.
Lagt fram erindi frá Dagmar Valsdóttur um að þróa Grindavík sem norðurljósabæ.
Bæjarráð þakkar fyrir þessa hugmynd og felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að skoða hvort og hvernig megi útfæra hana.3. Þrif á heimilistunnum - Kalka sorpeyðingarstöð
Í tunnuverkefninu í vor var innifalið að þrífa tunnurnar en eins og myndir sýna var frekar illa að því staðið.
Fyrir liggur tilboð í þrif á tunnunum, sjá meðfylgjandi póst.Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Forstöðumaður þjónustumiðstöðvar.
Lagt fram tilboð í þrif á heimilistunnum.
Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins og óskar eftir nánari upplýsingum um málið.4. Snjómokstur og samningar 2025-2027
Minnisblað vegna snjómokstur 2025-2027.
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Forstöðumaður þjónustumiðstöðvar.
Lagt fram minnisblað vegna snjómoksturs árin 2025-2027.
Bæjarráð samþykkir að gengið verði til samninga við verktakana.