Bæjarráð Grindavíkur - 1545. fundur
- 21.04.2020
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 20:45
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1545
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Páll Valur Björnssonaðalmaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Helga Dís Jakobsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir að taka á dagskrá mál með afbrigðum sem 3. mál á dagskrá:
Breyting á deiliskipulagi við Víðihlíð - 1911034.
Samþykkt samhljóða.
1. Bjarg íbúðafélag - Um húsnæðissjálfseignastofnun
Fulltrúi félagsins verður í fjarfundasambandi við fundinn og kynnir formið á húsnæðissjálfseignarstofnun.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Formaður og varaformaður Verkalýðsfélags Grindavíkur og sátu fundinn einnig undir þessum dagskrárlið.
Fulltrúi Bjargs íbúðafélags var í fjarfundasambandi í Teams og kynnti hann formið á húsnæðissjálfseignarstofnun.
Einnig sátu fundinn bæjarfulltrúarnir Guðmundur Pálsson, Birgitta Káradóttir og Ásrún Kristinsdóttir formaður félagmálaráðs.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að leita til Bjargs um viljayfirlýsingu um stofnun húsnæðissjálfseignarstofnunar.2. Kaup á hlut í skólahúsnæði Keilis
Jóhann Friðrik Friðriksson, framkvæmdastjóri Keilis mætir á fundinn undir þessum dagskrárlið.
Jóhann Friðrik Friðriksson, framkvæmdastjóri Keilis og Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri Reykjanesbæjar mættu á fundinn undir þessum dagskrárlið og kynntu þeir málið. Einnig sátu fundinn bæjarfulltrúarnir Birgitta Káradóttir og Guðmundur Pálsson.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja að Grindavíkurbær kaupi hlut í fasteignafélagi Keilis eins og lagt er upp með í gögnum málsins. Settir eru fyrirvarar um samþykki Kadeco og allra sveitarfélaganna á Suðurnesjum svo og sjálfbærni skólans til framtíðar. Forsenda fyrir kaupunum er að langtímasamningur við mennta-og menningarmálaráðuneyti um leigu fasteignarinnar liggi fyrir. Þegar samningur um kaupin liggur fyrir skal hann lagður fyrir bæjarstjórn.3. Breyting á deiliskipulagi við Víðihlíð
Gögn vegna fyrirhugaðrar deiliskipulagsbreytingar við Víðihlið lögð fram.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Auk þess bæjarfulltrúarnir Birgitta Káradóttir og Guðmundur Pálsson.
Lagt fram minnisblað vegna fyrirhugaðrar deiliskipulagsbreytingar við Víðihlíð.4. Skólahúsnæði: Hönnun og framkvæmdir
Farið yfir stöðuna á hönnun viðbyggingar við Hópsskóla.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram drög að grunnmynd viðbyggingar.5. Stamphólsvegur 1 - framkvæmdir við nýja deild
Óskað er viðauka við útistofurnar við Krók til þess að ljúka þar framkvæmdum sómasamlega. Um er að ræða frágang á jarðvinnu, klæðning á gámaeiningum, nauðsynlegum húsbúnaði og frágangi innanhúss.
Viðaukabeiðni er að upphæð 14.000.000 kr.Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram beiðni um viðauka við fjárfestingaáætlun 2020 vegna útistofu við leikskólann Krók til þess að ljúka þar framkvæmdum sómasamlega. Um er að ræða frágang á jarðvinnu, klæðningu á gámaeiningum, nauðsynlegum húsbúnaði og frágangi innanhúss.
Viðaukabeiðni er að upphæð 14.000.000 kr.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann og að hann verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.6. Víðigerði: gatnagerð 2020
Farið yfir stöðuna á hönnun nýrrar götu í Víðgerði. Verkönnun vegna verks fer út á næstu dögum.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram útboðs- og verklýsing gatnagerðar og lagna við í Víðigerði.
Bæjarráð felur sviðsstjóra að leita eftir verðum í gatnagerðina.7. Gatnahönnun Eyjabakka - Ufsasund
Farið yfir stöðuna á gatnahönnun á Ufsasundi. Verðkönnun vegna þessarar framkvæmdar fer út á næstu vikum.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram gatnahönnun á Ufsasundi.8. Malbikun gatna 2020
Farið yfir stöðuna á gögnum vegna malbikunar á götum í Grindavík sumarið 2020.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram útboðslýsing vegna malbikunar á götum nú í sumar.
Bæjarráð felur sviðsstjóra að bjóða verkið út.9. Frágangur á lóð í kringum íþróttahús
Farið yfir stöðuna á hönnun á frágangi lóðar í kringum íþróttahús. Verkið verður boðið út á næstu vikum.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og sviðstjóri frístunda- og menningarsviðs sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt fram minnisblað vegna hönnunar og frágangs á lóð íþróttahúss.10. Sumarstörf 2020
Minnisblað um sumarstörf fyrir ungmenni lagt fram.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og sviðstjóri frístunda- og menningarsviðs sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt fram minnisblað vegna sumarstarfa fyrir ungmenni.
Sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs er falið að auglýsa eftir sumarstarfsmönnum.11. Sjóarinn síkáti 2020
Farið yfir áhrif samkomubanns á Sjóarann síkáta.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og sviðstjóri frístunda- og menningarsviðs sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram drög að fréttatilkynningu vegna Sjóarans síkáta 2020.12. Beiðni um viðauka vegna samstarfssamnings við Hestamannafélagið Brimfaxa
Óskað er eftir viðauka að fjárhæð kr. 1.251.000 vegna deildar nr. 06814-9922, Hestamenn - Rekstrarstyrkir til íþróttafélaga.
Sviðstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun 2020 á lykilinn 06814-9922. Um er að ræða 1.251.000 kr. vegna samstarfssamnings við hestamannafélagið Brimfaxa.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann og að hann verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.13. Aðgerðir til að mæta fjárhagslegum áhrifum af kórónuveirunni
Úrræði og aðgerðir sveitarstjórna og samráð við ríkisvaldið.
Lagt fram minnisblað.
14. Innviðauppbygging í Helguvík og á öryggissvæði
Borist hefur erindi þar sem óskað er stuðnings við uppbyggingu mannvirkja á þessum svæðum.
Bréfið lagt fram.