Bæjarráð Grindavíkur - 1525. fundur
- 10.09.2019
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:10
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1525
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Páll Valur Björnssonaðalmaður
- Helga Dís Jakobsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Leikskólar - Beiðni um viðauka vegna aukinnar þjónustu
Lögð er fram beiðni um viðauka vegna starfsemi 5. deildar við Krók sem áformað er að byrji 1. nóvember nk.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð er fram viðaukabeiðni að fjárhæð 6.920.000 kr. vegna starfsemi 5. deildar við Krók sem áformað er að byrji 1. nóvember nk.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann og að hann verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.2. Tjaldsvæði - rekstur 2018 og 2019
Ósk um viðauka vegna launakostnaðar. Ljóst er að fyrirliggjandi áætlun dugir ekki fyrir opnun út september. Sjá minnisblað.
Upplýsinga- og markaðsfulltrúi sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt fram minnisblað um rekstur tjaldsvæðis árið 2018 og það sem af er ári 2019.
Bæjarráð samþykkir að þjónusta á tjaldsvæðinu verði skert frá og með 1. október. Tjaldsvæði verði þó opið en greiða þarf dvalargjöld í Kvikunni.
Jafnframt leggur bæjarráð til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka að fjárhæð 3.200.000 kr. á launaliði tjaldsvæðisins og að viðaukinn verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.3. Reglur um styrki vegna íþróttaafreka
Drög að reglum um styrki vegna íþróttaafreka lagðar fram. Reglurnar koma í stað reglugerðar Íþrótta- og afrekssjóðs Grindavíkur og vinnureglur Íþrótta- og afrekssjóðs Grindavíkur. Frístunda- og menningarnefnd hefur samþykkt reglurnar fyrir sitt leyti. Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs situr fundinn undir þessum lið.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Drög að reglum um styrki vegna íþróttaafreka lagðar fram. Reglurnar koma í stað reglugerðar Íþrótta- og afrekssjóðs Grindavíkur og vinnureglur Íþrótta- og afrekssjóðs Grindavíkur. Frístunda- og menningarnefnd hefur samþykkt reglurnar fyrir sitt leyti.
Bæjarráð samþykkir reglurnar og að þær taki gildi um næstu áramót.4. Samstarfssamningar við Knattspyrnudeild UMFG 2020-2021
Knattspyrnudeild UMFG hefur óskað eftir endurnýjun á samstarfssamningum við Grindavíkurbæ. Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs situr fundinn undir þessum lið.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Knattspyrnudeild UMFG hefur óskað eftir endurnýjun á samstarfssamningum við Grindavíkurbæ.
Bæjarráð felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að gera drög að samningi og leggja fyrir bæjarráð.5. Beiðni um samstarf vegna kaupa á hoppuköstulum
Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur og Verkalýðsfélag Grindavíkur óska eftir samstarfi við Grindavíkurbæ vegna kaupa á hoppuköstulum til nota á viðburðum í sveitarfélaginu. Frístunda- og menningarnefnd tekur jákvætt í erindið. Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs situr fundinn undir þessum lið.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur og Verkalýðsfélag Grindavíkur óska eftir samstarfi við Grindavíkurbæ vegna kaupa á hoppuköstulum til nota á viðburðum í sveitarfélaginu.
Frístunda- og menningarnefnd tekur jákvætt í erindið.
Bæjaráð tekur jákvætt í erindið og felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að vinna málið áfram.6. Umsókn um leyfi fyrir hjólreiðakeppni
Stjórn hjólreiðadeilda UMFG og Víkings er að skipuleggja hjóleiðakeppni þann 14.september nk. Upphaf keppni er við Norðurljósaveg, hjólað að Reykjanesvita og snúið við þar á keilu og endað á sama stað.
Óskað er eftir að fá að takmarka og hægja á umferð á mðean keppni stendur eða frá 14:55 til 17:00 (líklega verður lokað fyrr).
Vegna veðurspár er hugsanlegt að hjólreiðakeppninni verði frestað um sólharhrings.Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Stjórn hjólreiðadeilda UMFG og Víkings er að skipuleggja hjóleiðakeppni þann 14.september nk. Upphaf keppni er við Norðurljósaveg, hjólað að Reykjanesvita og snúið við þar á keilu og endað á sama stað.
Óskað er eftir að fá að takmarka og hægja á umferð á mðean keppni stendur eða frá 14:55 til 17:00 (líklega verður lokað fyrr).
Vegna veðurspár er hugsanlegt að hjólreiðakeppninni verði frestað um sólharhrings.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að keppnin verði haldin.7. Frágangur á lóð í kringum íþróttahús
Skissur vegna frágangs á lóð í kringum íþróttamannvirki. Áætlar er að fara í frágang á bílastæði sunnan við eldri íþróttasal á haustdögum.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Skissur vegna frágangs á lóð í kringum íþróttamannvirki lagðar fram. Áætlað er að fara í frágang á bílastæði sunnan við eldri íþróttasal á haustdögum.
Bæjarráð samþykkir að haldið verði áfram með tillögu 2.8. Malbikun gatna mm
Fjármögnun vegna aukins kostnaðar við malbikun í Grindavík. Samþykkt tilboð verktaka er 13.812.140 hærra er fjárfestingaráætlun gerði ráð fyrir.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt fram minnisblað um fjármögnun vegna aukins kostnaðar við malbikun í Grindavík. Samþykkt tilboð verktaka er 13.812.140 hærra er fjárfestingaráætlun gerði ráð fyrir.
Í minnisblaðinu er óskað er eftir að flytja fjárheimildir af öðrum verkefnum innan fjárfestingaráætlunar ársins 2019.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann.9. Frágangur við Hópið - sandfok af plani
Tilboð í frágang á plani fyrir framan Hópið (Austurveg 3C) voru opnuð 4.september sl. Læstbjópðandi var Ellert Skúlason ehf. en tilboð þeirra var 22.704.900 (90% af kostnaðaráætlun).
Óskað er eftir heimild til að semja við lægstbjóðanda.Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Tilboð voru opnuð í frágang á plani við Hópið þann 4. september sl. og var Ellert Skúlason lægstbjóðandi með 22.704.900 kr. sem er 90% af kostnaðaráætlun.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka við fjárhagsáætlun 2019 að fjárhæð 25.000.000 kr. sem fjármagnaðar verði með lækkun á handbæru fé.10. Félagsaðstaða eldri borgara
Samkvæmt fjárfestingaráætlun Grindavíkurbæjar fyrir árið 2019 átti að nota 50 milljónir króna í liðinn "02 - Félagsaðstaða eldri borgarar". Þá eru 200 milljónir króna settar í verkefnið árið 2020.
Lagt er til að hefjst handa við að undirbúa verkefnið hið snarhasta.Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að hefja vinnu við hönnun á félagsaðstöðu fyrir aldraða.11. Stamphólsvegur 1 - umsókn um byggingarleyfi
Minnisblað sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs lagt fram og rætt.
Verklok eru áætluð 15.nóvember.Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Minnisblað sviðsstjóra lagt fram.12. Austurvegur 1: Umsókn um byggingarleyfi
Lagt er fram minnisblað sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs vegna kaupa á búnaði í nýjan íþróttasal.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt er fram minnisblað sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs vegna kaupa á búnaði í nýjan íþróttasal.
Bæjarráð heimilar sviðsstjóra að kaupa hljóðkerfi í salinn.13. Fráveitumál í Grindavík
Fráveitumál í iðnðaðarhverfinu í Grindavík.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Minnisblað sviðsstjóra lagt fram.14. Umferðaröryggisáætlun Grindavíkurbæjar
Umferðaröryggisáætlun Grindavíkurbæjar 2014-2017. Sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs fór til fundar við VSÓ ráðgjöf til að ræða hvað hefur áunnist með þeirri umferðaröryggisáætlun sem sett var árið 2014. VSÓ er að kanna ávinning umferðaröryggisáætlanna meðal nokkurra sveitarfélaga víðsvegar um landið í rannsóknarverkefni sem styrkt er af rannsóknarsjóði Vegagerðarinnar.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Minnisblað sviðsstjóra lagt fram.15. Sjávarútvegsfundur 2019
Fundurinn verður haldinn í Reykjavík 2. október nk.
Samtök sjávarútvegssveitarfélaga boða til sjávarútvegsfundar þann 2. október nk. kl. 13:00 sem haldinn verður á Hilton Reykjavík Nordica.
16. Fjárhagsáætlun 2020-2023 - Grindavíkurbær og stofnanir
Áætlun skatttekna 2020 lögð fram sem og fyrstu drög að launaáætlun 2020.
Ákveða þarf forsendur varðandi vöru og þjónustukaup á árinu 2020.Áætlun skatttekna 2020 lögð fram sem og fyrstu drög að launaáætlun 2020.
Bæjarráð samþykkir að heimila allt að 3% hækkun reglubundinna vöru- þjónustukaupa á árinu 2020 sé talin þörf á slíku.17. Þóknanir til bæjarfulltrúa og nefndarmanna
Málinu er vísað til næsta bæjarráðsfundar.