Bæjarráð Grindavíkur - 1580. fundur
- 04.05.2021
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 18:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1580
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Sævar Þór Birgissonvaramaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir að taka á dagskrá mál með afbrigðum sem 10. mál: 2104025 - Skólastjóri Grunnskóla - Ráðning.
Samþykkt samhljóða.
1. Starfshópur um vernd mikilvægra innviða
Björn Oddsson jarðeðlisfræðingur PhD tengist fundinum með fjarfundarbúnaði.
Björn Oddsson jarðeðlisfræðingur PhD kom á fundinn undir þessum dagskrárlið í gegnum Teams og fór hann yfir stöðu mála.
Lagt fram minnisblað unnið af Verkís, Eflu, HÍ og VÍ, dags. 12.04.2021, um prófanir á hraunrennslisvörnum.
Bókun
Fyrir liggja útfærslur á prófunum á mögulegum hraunrennslisvörnum í Meradölum út frá núverandi gosi í Geldingadölum. Tilgangur þessara prófana er að afla reynslu og þekkingar á uppbyggingu varnargarða sem gæti þurft að byggja síðar til að verja mikilvæga innviði eða íbúðabyggð á Reykjanesskaga. Bæjarráð Grindavíkur leggur mikla áherslu á að þær aðstæður sem nú eru til staðar í Meradölum verði tafarlaust nýttar til að framkvæma prófanir á hraunrennslisvörnum að veittum tilskyldum leyfum til framkvæmdanna.2. Starfshópur um uppbyggingu eldgosasvæðisins í Geldingadölum
Lögð fram lokadrög að minnisblaði vegna uppbyggingar í tengslum við eldgosið.
Lagt fram minnisblað starfshóps um uppbyggingu eldgosasvæðsisins í Geldingadölum, dags. 30. apríl 2021.
3. Víkurbraut 62, 3 hæð - Starfsaðstæður
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, umsjónarmaður fasteigna og ráðgjafi Grindavíkurbæjar munu sitja fundinn undir dagskrárliðnum.
Minnisblað og önnur gögn eftir skoðun EFLU á 3. hæð að Víkurbraut 62 þann 17.03.2021 lagt fram. Ræða þarf næstu skref varðandi rakavandamál á hæðinni. Enn fremur verður hugsanlegt rakavandamál við sambýlið við Túngötu rætt.Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðsusviðs, umsjónarmaður fasteigna og ráðgjafi Grindavíkurbæjar sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Minnisblað og önnur gögn eftir skoðun EFLU á 3. hæð að Víkurbraut 62 þann 17.03.2021 lögð fram.4. Körfur í íþróttahúsi - nýr hæðarstillingarbúnaður og þjónusta
Ráðast þarf í lagfæringar á körfum í nýjum íþróttasal og breytingar á hæðarstillingarbúnaði. Beiðnin kemur frá sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs og forstöðumanni íþróttamannvirkja. Tilboð söluaðila á þessu verki er 1.771.718 kr. Óskað er eftir viðauka vegna þessa sem fjármagnaður verður með lækkun á handbæru fé.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Ráðast þarf í lagfæringar á körfum í nýjum íþróttasal og breytingar á hæðarstillingarbúnaði. Beiðnin kemur frá sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs og forstöðumanni íþróttamannvirkja. Tilboð söluaðila á þessu verki er 1.771.718 kr. Óskað er eftir viðauka vegna þessa.
Bæjarráð leggur til við bæjarráð að samþykkja viðauka að fjárhæð 1.772.000 kr. og að hann verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.5. Húsdýraáburður frá Staðarbúi
Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja óskar eftir viðbrögðum frá Grindavíkurbæ við staðarvali varðandi meðhöndlun og dreifingu á hænsnaskít frá Staðarbúi.
sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið
Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja óskar eftir viðbrögðum frá Grindavíkurbæ við staðarvali varðandi meðhöndlun og dreifingu á hænsnaskít frá Staðarbúi.
Grindavíkurbær gerir ekki athugasemdir við staðarvalið.6. Ný brunavarnaáætlun fyrir slökkvilið Grindavíkur
Uppfærð brunavarnaráætlun slökkviliðs Grindavíkur lögð fram til kynningar og umræðu.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Uppfærð brunavarnaráætlun slökkviliðs Grindavíkur lögð fram.7. Félagsaðstaða eldri borgara - hönnun og undirbúningur
Farið yfir stöðu mála á hönnun á félagsaðstöðu fyrir eldri borgara við Víðihlíð.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram fundargerð starfshóps um félagsaðstöðu eldri borgara í Grindavík, dags. 16.02.2021.8. Víkurhóp 57 - umsókn um byggingarleyfi
Upplýsingar frá Bjargi - íbúðafélagi um íbúðasamsetningu í fjölbýlishúsi sem þeir eru með í undirbúningi að byggja lagðar fram til umræðu.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Tölvupóstur frá Bjargi-íbúðafélagi, dags. 30.04.2021, varðandi íbúðasamsetningu hússins lagður fram.9. Sérstuðningur í leikskóla - Beiðni um viðauka
Óskað eftir viðauka til að manna stuðning með langveiku barni í leikskóla.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram beiðni um viðauka að fjárhæð 4.500.000 kr. til að manna stuðning með langveiku barni í leikskóla.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann og að hann verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.10. Skólastjóri grunnskóla - Ráðning
Málið lagt fyrir bæjarráð til upplýsinga. Umsóknarfrestur rennur út í lok dags, 3. maí og þegar þessi orð eru rituð hafa borist tvær umsóknir. Taka þarf ákvörðun um hvort frestur til að skila umsókn verður framlengdur enda þjónar það hagsmunum sveitarfélagsins best sem vinnuveitanda að hafa úr stærri hópi umsækjenda að velja.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt fram.12. Nafn á nýju hrauni og gígum við Fagradalsfjall
Umsagnir Örnefnanefndar um tillögur bæjarráðs lagðar fram.
Lögð fram umsögn Örnefndanefndar á heiti á nýju hrauni og gígum í mótun við Fagradalsfjall.
Með vísan til laga nr. 22/2015 leggur bæjarráð til við bæjarstjórn að nýtt hraun austan Fagradalsfjalls verði nefnt Fagradalshraun.13. Fjármál sveitarfélaga 2021 - beiðni ráðuneytis um gögn
Beiðni ráðuneytis um fjárhagsupplýsingar 2021.
Lagt fram bréf frá Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti, dags. 13. apríl 2021 þar sem óskað er eftir fjárhagslegri stöðu sveitarfélaga vegna hinna óvæntu aðstæðna sem nú eru uppi.
Bæjarráð felur sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að svara bréfinu.14. Styrkbeiðni - Blái herinn
Blái herinn óskar eftir stuðningi við að hreinsa strandlengju Reykjaness og önnur opin svæði.
Blái herinn óskar eftir stuðningi við að hreinsa strandlengju Reykjaness og önnur opin svæði.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.