Bæjarráð Grindavíkur - 1605. fundur
- 01.03.2022
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 18:15
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1605
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Birgitta H. Ramsay Káradóttirvaramaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Fjölþætt heilsuefling 65
Janus Guðlaugsson íþrótta- og heilsufræðingur kynnir stöðuna eftir tveggja ára heilsueflingu meðal íbúa Grindavíkur.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og forstöðumaður öldrunarþjónustu sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Janus Guðlaugsson íþrótta- og heilsufræðingur kynnti stöðuna eftir tveggja ára heilsueflingu meðal íbúa Grindavíkur.
Bæjarráð lýsir ánægju sinni með niðurstöður verkefnisins.2. Styrkbeiðni frá körfuknattleiksdeild UMFG
Körfuknattleiksdeild UMFG óskar eftir styrk vegna tekjutaps.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram beiðni um styrk til Körfuknattleiksdeildar UMFG vegna tekjutaps.
Bæjarráð bendir á að erindi eiga að koma frá aðalstjórn UMFG skv. gildandi samningi en ekki frá einstökum deildum. Sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs er falið að svara erindinu og vinna málið áfram.3. Framkvæmdir við Hópskóla - 2.áfangi
Lokaskýrsla framkvæmda við Hópsskóla lögð fram.
Málinu er frestað til næsta fundar.
4. Umsókn um leyfi fyrir rekstri á stöðvalausri deilileigu fyrir rafskútur
Hopp óskar eftir leyfi til að reka stöðvalausa deilileigu á rafskútum í Grindavík.
Hopp ehf. óskar eftir leyfi til að reka stöðvalausa deilileigu á rafskútum í Grindavík.
Bæjarráð fagnar framtakinu.5. Ársuppgjör 2021 - Grindavíkurbær og stofnanir
Taka þarf ákvörðun um framlag ársins 2021 til Víðihlíðar frá málaflokki 02 Félagsþjónusta.
Áætlun gerir ráð fyrir framlagi að fjárhæð 14.935.000 kr. en þrátt fyrir það vantar 18,4 milljónir til viðbótar, bara til að halda í horfinu. Að óbreyttu verður skuld við aðalsjóð 28,2 milljónir í árslok 2021 en var 9,8 milljónir í ársbyrjun.
Lagt er til að auka framlagið um 10 milljónir og ná sjóðshallanum niður á 3 árum.Lagt fram áætlað rekstrar og sjóðstreymisyfirlit vegna ársins 2021. Mikill sjóðshalli er á félaginu og samþykkir bæjarráð að auka rekstrarframlag ársins 2021 um 28,2 milljónir umfram það sem þegar er í fjárhagsáætlun.
6. Almennt eftirlit á fjármálum sveitarfélaga á árinu 2022
Bréf frá Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga, dags. 21. febrúar 2022 lagt fram.
Bréf frá Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga, dags. 21. febrúar 2022 lagt fram.
7. Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum - bókun stjórnar
Stjórn S.S.S hvetur aðildarsveitarfélög sín til að skoða hvort þau geti aukið samvinnu við Vinnumálastofnun vegna atvinnuleitenda með skerta stafsgetu.
Lögð fram eftirfarandi bókun stjórnarfundar SSS sem haldinn var 16. febrúar sl.
"Lagt fram. Stjórn S.S.S. hvetur aðildarsveitarfélög sín til að skoða hvort þau geti aukið samvinnu við Vinnumálastofnun vegna atvinnuleitenda með skerta stafsgetu. Framkvæmdastjóra falið að áframsenda erindið til aðildarsveitarfélaga".
Bæjarráð tekur undir bókun SSS og mun halda áfram að taka þátt í þessu átaki hér eftir sem hingað til.8. Lánasjóður sveitarfélaga - framboð til stjórnar
Stjórn Lánasjóðsins auglýsir eftir framboðum til stjórnarsetu.
Lagt fram erindi, dags. 11. febrúar sl., frá Stjórn Lánasjóðsins þar sem auglýst eftir framboðum til stjórnarsetu.
9. Tækifærisleyfi - Lionsklúbbur Grindavíkur
Sótt er um leyfi til að halda kútmagakvöld í íþróttahúsinu 11. mars nk.
Lögð fram beiðni um umsögn vegna umsóknar Lionsklúbbs Grindavíkur um leyfi til að halda kútmagakvöld í íþróttahúsinu 11. mars nk.
Bæjarráð mælir með veitingu leyfisins.10. Lionshreyfingin á Íslandi - beiðni um fjárframlag
Lionshreyfingin og Blindrafélagið hafa tekið höndum saman um átak til að tryggja framboð af leiðsöguhundum í landinu og óskar eftir fjárstuðningi til verkefnisins.
Lionshreyfingin og Blindrafélagið hafa tekið höndum saman um átak til að tryggja framboð af leiðsöguhundum í landinu og óskar eftir fjárstuðningi til verkefnisins.
Bæjarráð samþykkir styrk að fjárhæð 50.000 kr.