Bæjarráð Grindavíkur - 1614. fundur
- 28.06.2022
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 17:15
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1614
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Helga Dís Jakobsdóttirvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Beiðni um námsvist utan lögheimilissveitarfélags
Óskað er eftir heimild til að sækja grunnskólanám utan lögheimilissveitarfélags.
Lagt fram minnisblað frá sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs, dags. 23. júní 2022, vegna beiðni Þórunnar Ólafsdóttur um heimild til að sækja grunnskólanám utan lögheimilissveitarfélags.
Bæjarráð samþykkir að greiða fyrir námskostnað vegna skólavistar í Ásgarði og felur sviðsstjóra félagþjónustu- og fræðslusviðs að leggja fyrir viðaukabeiðni vegna málsins.2. Umsókn um tónlistarnám utan lögheimilissveitarfélags
Sótt er um mótframlag sveitarfélagsins vegna tónlistarnáms á höfuðborgarsvæðinu
Lagður fram tölvupóstur vegna beiðni um mótframlag sveitarfélagsins vegna tónlistarnáms á höfuðborgarsvæðinu.
Bæjarráð samþykkir erindið.4. Kosning í nefndir samkvæmt D-lið 48. gr. samþykktar um stjórn Grindavíkurbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar
Lögð fram tillaga um skipan aðal- og varamanna í Öldungaráð Grindavíkurbæjar.
Tillaga lögð fram um skipan aðal- og varamanna í Öldungaráð Grindavíkurbæjar.
Aðalmenn
Sæmundur Halldórsson
Klara Bjarnadóttir
Ingi Steinn Ingvarsson
Varamenn
Birgitta Káradóttir
Ásrún Kristinsdóttir
Margrét Birna Valdimarsdóttir
Bæjarráð felur öldungaráði að kjósa formann ráðsins á fyrsta fundi ráðsins. Bæjarráð felur bæjarstjóra að boða til fyrsta fundar ráðsins.
Fyrri skipan bæjarstjórnar í ráðið fellur jafnframt úr gildi.
Bókun
Tillaga meirihluta bæjarstjórnar á skipun í Öldungaráð er með eindæmum. Að útiloka Miðflokkinn, stærsta flokkinn í Grindavík í s.l. sveitarstjórnarkosningum frá ráðinu er alveg útí hött. Töluverður hluti eldri borgara lagði lóð á vogarskálarnar til að kosning Miðflokksins varð eins glæsileg og raunin varð vegna þess að þau treysta okkur til að vinna fyrir þau. Ein af aðaláherslunum frá stofnun Miðflokksdeildar Grindavíkur hefur einmitt verið að bæta þjónustu og kjör eldri borgara.
F.h. Miðflokksins,
Hallfríður Hólmgrímsdóttir
Fundarhlé tekið kl. 16:30 til 16:50
Bókun
Meirihluti B, D og U hafnar því að verið sé að útiloka Miðflokkinn úr öldungaráði. Meirihlutinn samanstendur af þremur stjórnmálaöflum sem hver kýs sinn fulltrúa í ráðið. Á síðasta kjörtímabili sat einn fulltrúi bæjarstjórnar í öldungaráði og var það fulltrúi frá Miðflokknum en núna er komið að öðrum að taka þátt í þeim samráðsvettvangi.
Framundan eru spennandi tímar í málefnum eldri borgara þar sem fara þarf í stefnmótun með nýrri félagsaðstöðu og uppbyggingu á svæðinu við Víðihlíð. Í málefnasamningi meirihlutans kemur fram að farið verði í framtíðarstefnumótun í tómstunda- og frístundastarfi með það að markmiði að efla tómstundastarf m.a. eldri borgara. Það er ætlun meirihlutans að halda áfram uppbyggingu og stuðningi við eldri borgara í Grindavík.
Meirihluti B-, D- og U-lista
Bæjarráð samþykkir tilnefninguna með 2 atkvæðum, Hallfríður er á móti.5. Rekstrarleyfi gististaðar í flokki IIC - Gistihúsgrindavík ehf.
Fyrir liggja umsagnir frá HES, Slökkviliði Grindavíkur og byggingarfulltrúanum í Grindavík.
Fyrir liggja umsagnir frá HES, Slökkviliði Grindavíkur og byggingarfulltrúanum í Grindavík.
Bæjarráð mælir með veitingu leyfisins.6. Rekstrarleyfi gististaðar í flokki IIG - VK List ehf.
Fyrir liggja umsagnir frá HES, Slökkviliði Grindavíkur og byggingarfulltrúanum í Grindavík.
Fyrir liggja umsagnir frá HES, Slökkviliði Grindavíkur og byggingarfulltrúanum í Grindavík.
Bæjarráð mælir með veitingu leyfisins innan þeirra tímamarka sem HES hefur sett fram.7. Skipulagsnefnd - 102
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
8. Afgreiðslunefnd byggingar- og skipulagsmála - 61
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.