Bæjarráð Grindavíkur - 1518. fundur
- 11.06.2019
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 16:25
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1518
- Ritari: Fannar Jónasson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Sævar Þór Birgissonvaramaður
- Marta Sigurðardóttirvaramaður
Starfsmenn
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. HS Orka - Óveruleg breyting á deiliskipulagi iðnaðar og orkuvinnslusvæðis á Reykjanesi
HS Orka óskar eftir að skipulags- og umhverfisnefnd og bæjarstjórn Grindavíkurbæjar taki fyrir og samþykki óverulega breytingu á deiliskipulagi.
HS Orka óskar eftir samþykki fyrir óverulegri breytingu á deiliskipulagi iðnaðar- og orkuvinnslusvæðis á Reykjanesi, þ.e. færslu á lögnum og hækkun skiljustöðvar. Breytingin nær til svæðis sem er að öllu leyti innan Reykjanesbæjar.
Bæjarráð samþykkir þessa óverulegu breytingu á deiliskipulagi.2. Vegagerðin - Undirgöng undir Víkurbraut
Vegagerðin er tilbúin með útboðsgögn vegna undirganga við Suðurhóp. Hlutdeild Grindavíkurbæjar í verkinu er um 16 mkr. Samþykkja þarf viðauka við fjárhagsáætlun fyrir þeirri fjárhæð.
Fyrir liggja drög að samningi milli Vegagerðarinnar og Grindavíkurbæjar vegna framkvæmda við gerð undirganga og aðliggjandi stíga undir Grindavíkurveg á móts við Suðurhóp. Samþykkja þarf viðauka vegna hlutdeildar bæjarins í verkinu.
Bæjarráð samþykkir viðauka að fjárhæð 16.100.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé og felur jafnframt bæjarstjóra að undirrita samning við Vegagerðina.3. Kalka - Sorpeyðingarstöð Suðurnesja: Kynning á mögulegri sameiningu SS og Sorpu
Lagt hefur verið til að skipuð verði viðræðunefnd á vegum sveitarfélaganna á Suðurnesjum sem muni yfirfara mögulega sameiningu Kölku og SORPU.
Lagt hefur verið til að skipuð verði viðræðunefnd á vegum sveitarfélaganna á Suðurnesjum sem muni yfirfara mögulega sameiningu Kölku og SORPU.
Bæjarráð samþykkir að skipuð verði vinnunefnd varðandi framtíð Kölku og tilnefnir Hjálmar Hallgrímsson fyrir hönd Grindavíkurbæjar.4. Heilsueflandi samfélag á Suðurnesjum
Uppi eru áform um að öll sveitarfélögin á Suðurnesjum taki þátt í verkefninu ásamt Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.
Uppi eru áform um að öll sveitarfélögin á Suðurnesjum efni til samstarfs um Heilsueflandi samfélag á Suðurnesjum ásamt Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum og Embætti landlæknis.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirrita viljayfirlýsingu um ofangreint samstarf.5. Ungmennaráð: Umferðaröryggi okkar mál
Óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2019 að fjárhæð 1.250.000 kr. vegna eftirfarandi deildar nr. 06014-4921, Ungmennaráð - Fundir og ráðstefnur.
Landskrifstofa Erasmus á Íslandi veitti fyrirframstyrk vegna verkefnisins Umferðaröryggi - okkar mál. Heildarstyrkur var nokkru hærri en sem nam kostnaði vegna verkefnisins og því þarf að endurgreiða hluta styrksins.
Óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2019 að fjárhæð 1.250.000 kr. vegna deildar nr. 06014-4921, Ungmennaráð - Fundir og ráðstefnur.
Samþykkt samhljóða.6. Fundargerðir - Samband íslenskra sveitarfélaga 2019
Fundargerð 871. fundar dags. 29. maí sl.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
7. Fræðslunefnd - 88
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
8. Umhverfis- og ferðamálanefnd - 36
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.