Bæjarráð Grindavíkur - 1574. fundur
- 09.03.2021
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 18:15
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1574
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Sævar Þór Birgissonvaramaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Sumarstörf 2021
Ungmennaráð telur mikilvægt að boðið verði upp á störf fyrir ungmenni í sumar líkt og sumarið 2020.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð tekur vel í hugmyndina og felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að útfæra og kostnaðarmeta í samræmi við umræður á fundinum og koma með á næsta fund bæjarráðs.2. Fjárhagsstaða deilda UMFG vegna heimsfaraldurs
Lögð fram frekari gögn frá UMFG vegna tekjufalls. Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs situr fundinn undir þessum lið.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Málið lagt fram og sviðsstjóri mun fylgjast með framvindu rekstrar UMFG á árinu 2021 og upplýsa bæjarráð eftir atvikum.3. Beiðni um styrk vegna breytinga á búningsklefa við knattspyrnuvöll
Lagt fram erindi aðalstjórnar UMFG þar sem óskað er eftir styrk vegna breytinga á búningsklefa meistaraflokks kvenna í knattspyrnu.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Tillaga 1 frá fulltrúa U-lista
Beiðni þessar styrks kemur í kjölfar styrks sem veittur var meistaraflokki karla í fótbolta árið 2020. Þeim styrk var ekki varið í þá hluti sem styrktarumsóknin hljóðaði upp á. Þessi vinnubrögð, með almannafé, eru óviðunandi. Rödd unga fólksins leggur því til að styrkurinn verði endurgreiddur og nýttur í uppbyggingu á styrktaraðstöðu fyrir allar deildir UMFG, óháð kyni svo gætt sé jafnræðis.
Tillaga 2 frá fulltrúa U-lista
Ef sú tillaga er felld þá samþykkir Rödd unga fólksins styrk að sömu upphæð til meistaraflokks kvenna í ljósi jafnræðis.
Bæjarráð hafnar tillögu 1 en samþykkir tillögu 2.
Bókun
Fulltrúar B og D lista taka undir margt sem kemur fram í bókun U lista.
En þrátt fyrir að styrkur til mfl. karla hafi verið misnotaður, þá geta fulltrúar B og D lista ekki annað en samþykkt framkvæmdir í klefa mfl. kvenna til jafns við klefa mfl. karla. Því samþykkja fulltrúar B og D lista með því skilyrði að fylgst verði með framkvæmdum og fjármunir fari eingöngu í endurbætur á klefa mfl. kvenna.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka að fjárhæð 737.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.4. Ástand knattspyrnuvalla og götun
Lagt fram erindi frá vallarverði Grindavíkurvallar og framkvæmdastjóra Golfklúbbs Grindavíkur þar sem lýst er yfir áhyggjum af ástandi íþróttavalla í Grindavík.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð vísar erindinu til fjárhagsáætlunar næsta árs.5. Starfsemi Pólska skólans í Reykjavík
Lagt fram minnisblað frá fundi starfsmanna Grindavíkurbæjar og skólastjóra Pólska skólans í Reykjavík. Óskað er eftir stuðningi við börn sem sækja skólann.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð vísar erindinu til fjárhagsáætlunargerðar næsta árs.6. Félag eldri borgara - Beiðni um styrk vegna fasteignagjalda
Beiðni félags eldri borgara vegna fasteignagjalda á Víkurbraut 27, fastanúmer 227-5710.
Bæjarráð samþykkir styrk á móti fasteignagjöldum ársins 2021.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka að fjárhæð 155.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.7. Fasteignagjöld 2020, Frestun innheimtu lögaðila vegna Covid 19
Bæjarráð heimilar sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að gera áfram samkomulag við þá aðila í ferðaþjónustu sem orðið hafa fyrir verulegu tekjufalli og geta ekki staðið í skilum.
8. Ofgreiðsla staðgreiðslu 2020
Lagt fram minnisblað frá fjármála- og efnahagsráðuneyti vegna ofgreiðslu á staðgreiðslu til sveitarfélaga.
9. Kvennaathvarfið - styrkbeiðni
Samtökin óska eftir rekstrarstyrk á árinu 2021.
Bæjarráð samþykkir að styrkja samtökin um 50.000 kr. af styrktarlið bæjarráðs.
10. Stígur frá Grindavík vestur að golfvelli
Farið yfir stöðuna á framkvæmdum við stíg út á golfvöll og mögulega lýsingu við hvorn enda.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið í gegnum Teams.
Farið yfir stöðuna á framkvæmdum við stíg út á golfvöll.11. Víkurbraut 62, 3 hæð - Starfsaðstæður
Lagt er fram bréf vegna aðstæðna starfsfólks félags- og fræðslusviðs Grindavíkurbæjar og þeirra sem þjónustunnar njóta.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið og sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn í gegnum Teams.
Fram hafa komið rakaskemmdir á 3. hæð og þarf að koma starfseminni annað meðan viðgerðir fara fram.
Bæjarstjóra er falið að vinna málið áfram.12. Jarðskjálftar og landris við Grindavík
Farið yfir stöðu mála.