Bæjarráð Grindavíkur - 1520. fundur
- 02.07.2019
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 17:10
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1520
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Páll Valur Björnssonaðalmaður
- Helga Dís Jakobsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Byggingarnefnd vegna viðbyggingar við Hópið
Fyrir liggja drög að teikningum vegna 1. áfanga viðbyggingarinnar.
Lögð fram drög að teikningum vegna 1. áfanga viðbyggingarinnar.
Bæjarráð lýsir ánægju sinni með teikningarnar og óskar eftir kostnaðaráætlun á verkið.2. Vegagerðin - Undirgöng undir Víkurbraut
Fyrir liggur tilboð í verkið sem er talsvert hærra en kostnaðaráætlun. Taka þarf afstöðu til þess hvort ganga eigi til samninga á grundvelli tilboðsins.
Fyrir liggur eitt tilboð í verkið sem er talsvert hærra en kostnaðaráætlun.
Bæjarráð samþykkir tilboðið en það felur í sér að hluti bæjarins verður allt að 20 milljónum króna.3. Malbikun gatna mm
Opnun útboðs vegna "Nýlögn og yfirlögn malbiks og endurbætur" við Bakkalág, Garðvegur - Verbraut og Víkurbraut.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs óskar eftir samþykki og staðfestingu bæjarráðs vegna samningsgerðar við lægstbjóðanda Hlaðbæ Colas hf.Lögð fram tilboð vegna "Nýlögn og yfirlögn malbiks og endurbætur" við Bakkalág, Garðvegur - Verbraut og Víkurbraut.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs óskar eftir samþykki og staðfestingu bæjarráðs vegna samningsgerðar við lægstbjóðanda Hlaðbæ Colas hf. að fjárhæð 50.762.140 kr.
Bæjarráð samþykkir tillögu sviðsstjóra.4. Bæjarskrifstofur Víkurbraut 62: Stækkun og breytingar frh
Opnun tilboða fór fram 1. júní og eitt tilboð barst en það var frá Grindinni ehf.
Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 23.450.584 kr.og tilboð Grindarinnar er kr. 27.821.000.Opnun tilboða fór fram 1. júní og eitt tilboð barst en það var frá Grindinni ehf.
Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 23.450.584 kr.og tilboð Grindarinnar er kr. 27.821.000 með þeim fyrirvara að ekki er boðið í lið 6.8 þar sem forsendur vantar í verklýsingu.
Bæjarráð samþykkir tilboð Grindarinnar og felur byggingafulltrúa að ganga til samninga við Grindina.5. Fasteignamat 2020
Bréf frá Þjóðskrá Íslands lagt fram.
Þá hefur stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga hvatt sveitarfélög til þess að á árinu 2020 hækki þau gjaldskrár sínar um 2,5% að hámarki, en minna ef verðbólga verður lægri.Bréf frá Þjóðskrá Íslands lagt fram vegna fasteignamats 2020 sem er að hækka um 9,6% frá árinu 2019.
Þá hefur stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga hvatt sveitarfélög til þess að hækka gjaldskrár sínar um 2,5% að hámarki á árinu 2020, en minna ef verðbólga verður lægri.
Grindavíkurbær hefur ávallt haft það að leiðarljósi að milda áhrif hækkunar fasteignamats vegna fasteignagjalda og mun gera það á árinu 2020.6. Eftirlitsmyndavélar á tjaldsvæði
Upp hefur komið í tvígang kynferðisleg áreitni gesta á starfsmenn tjaldsvæðis. Lagt fram minnisblað frá upplýsinga- og markaðsfulltrúa.
Bæjarráð samþykkir að taka málið upp í vinnu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2020. En fram að þeim tíma að starfsmenn fái öryggishnapp.
7. Sveitarfélögin og heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna
Hinn 21. júní sl. var haldinn fundur um samstarf sveitarfélaga um loftslagsmál og heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga hvetur sveitarfélög til að samþykkja yfirlýsinguna sem fundurinn samþykkti.
Hinn 21. júní sl. var haldinn fundur um samstarf sveitarfélaga um loftslagsmál og heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga hvetur sveitarfélög til að samþykkja yfirlýsinguna sem fundurinn samþykkti.
Bæjarráð samþykkir yfirlýsinguna.8. Rekstrarleyfi gististaðar í flokki IV - Gott lag ehf.
Umsagnir HES, slökkviliðs og byggingafulltrúa liggja fyrir.
Fyrir liggja umsagnir frá HES, slökkviliði Grindavíkur og byggingarfulltrúanum í Grindavík.
Bæjarráð mælir með veitingu leyfisins.9. Fundargerðir: Samband íslenskra sveitarfélaga 2018
Fundargerð 872. fundar, dags. 21. júní sl. er lögð fram til kynningar.
Fundargerð 872. fundar, dags. 21. júní 2019, lögð fram til kynningar.