Bæjarráð Grindavíkur - 1538. fundur
- 04.02.2020
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 18:30
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1538
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Páll Valur Björnssonaðalmaður
- Helga Dís Jakobsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Gunnar Már Gunnarssonvaramaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Verkalýðsfélag Grindavíkur - ósk um fund
Fulltrúar félagsins munu mæta á bæjarráðsfundinn til að ræða ýmis málefni sem varða hagsmuni félagsmanna.
Málinu er frestað til næsta fundar.
2. Bílastæði við suðurhlið íþróttahúss
Málinu vísað frá bæjarstjórn til fullnaðarafgreiðslu.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Fyrir liggur beiðni um viðauka að fjárhæð 16.000.000 kr. vegna bílastæðis við suðurgafl íþróttahúss. Bæjarstjórn fól bæjarráði fullnaðarákvörðun í málinu.
Bæjarráð samþykkir viðaukann og að hann verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.3. Stígur frá Grindavík vestur að gólfvelli
Tillaga að leiðarvali á göngu- og hjólastíg vestur að gólfvelli lögð fram fram. Gert er ráð fyrir 12 milljónum í verkið á þessu ári.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Tillaga að leiðarvali á göngu- og hjólastíg vestur að golfvelli lögð fram. Gert er ráð fyrir 12 milljónum í verkið á þessu ári.
Bæjarráð felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að vinna málið áfram.4. Fráveita Grindavíkurbæjar - hönnun og staðarval
Áætlun hönnuða í ráðgjafavinnu við frumhönnun á fráveitukerfi Grindvíkur lög fram.
Það er margt þarna inni, jarðfræðivinna varðandi útrásina, rennslismælingarnar og þessir líkanreikningar um dreifingu mengunar sem eru unnir af okkar samstarfsaðilum fyrir vestan.Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Áætlun hönnuða í ráðgjafavinnu við frumhönnun á fráveitukerfi Grindavíkur lögð fram.
Bæjarráð felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að vinna málið áfram.5. Jarðskjálftar og landris við Grindavík
Rætt um stöðu mála.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Farið yfir stöðu málsins og atburði síðustu daga. Vel hefur gengið að vinna rýmingaráætlanir fyrir stofnanir bæjarins.
Bæjarráð fer fram á að skólastjóri grunnskólans mæti til fundar við bæjarráð á morgun kl. 17:00.6. Beiðni um um auglýsingu á Led skjá í Laugardalshöll 12. feb nk.
Bæjarráð samþykkir 100.000 kr. af styrktarlið bæjarráðs og felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að útfæra það nánar.
7. Kosning fulltrúa á landsþing
Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga verður haldið á Grand hóteli í Reykjavík 26. mars nk. Grindavíkurbær hefur rétt til að senda þrjá bæjarfulltrúa á landsþingið auk bæjarstjóra.
Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga verður haldið á Grand hóteli í Reykjavík 26. mars nk. Grindavíkurbær hefur rétt til að senda þrjá bæjarfulltrúa á landsþingið auk bæjarstjóra.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að tilkynna landsþingfulltrúa frá Grindavíkurbæ.