Bæjarráð Grindavíkur - 1569. fundur
- 19.01.2021
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 17:40
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1569
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Helga Dís Jakobsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir að taka á dagskrá mál með afbrigðum sem síðasta mál: Rekstrarleyfi veitingastaðar í flokki II - Kokksi ehf.
Samþykkt samhljóða.
1. Lagning á fjarskiptasæstreng í landi Grindavíkurbæjar
Farice áformar að leggja sæstreng að landi í Grindavik og óskar eftir samstarfi við Grindavíkurbæ um verkefnið og eru skipulagsmál þar nefnd sérstaklaga. Málið lagt fram til kynningar.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt fram erindi frá Farice ehf. vegna lagningar á fjarskiptasæstreng í landi Grindavíkurbæjar, dags. 13. janúar 2021.2. Breyting á deiliskipulagi norðan Hópsbrautar frá 2016
Svarbréf vegna kröfu í kjölfar breytinga á deiliskipulagi við Norðurhóp lagt fram til kynningar og samþykktar.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Svarbréf vegna kröfu í kjölfar breytinga á deiliskipulagi við Norðurhóp lagt fram.
Bæjarráð staðfestir bréfið og felur sviðsstjóra að vinna málið áfram.3. Smáhýsi vestan við Sjónarhól
Tillaga að sáttum vegna lóðamarka lagt fram til kynningar og samþykktar.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram tillaga að breytingu á lóðarmörkum milli Sjónarhóls og smáhýsa við Hópsveg 1.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og felur sviðsstjóra að vinna málið áfram.4. Gerðavellir 17 Húsasótt
Sótt er um viðauka að upphæð 14.580.000 kr. vegna Gerðavalla 17 í samræmi við aðgerðaráætlun sem samþykkt var í bæjarráði þann 5. janúar sl.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram beiðni um viðauka að upphæð 14.580.000 kr. vegna Gerðavalla 17 í samræmi við aðgerðaráætlun sem samþykkt var í bæjarráði þann 5. janúar sl.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann.5. Fasteignagjöld 2020, Frestun innheimtu lögaðila vegna Covid 19
Nú er að renna út sá frestur sem gefinn var á síðasta ári.
Bæjarráð samþykkir að framlengja greiðslufrest vegna fasteignagjalda 2020 hjá þeim sem sóttu um frestinn til 1. mars 2021. Staðan verður endurmetin fyrir þann tíma.
6. Fjárvörslusamningar
Yfirlit eignastýringa 31.12.2020 lagt fram.
Lagt fram yfirlit yfir ávöxtun fjármuna Grindavíkurbæjar í eignastýringu.
7. Kjarasamningar - Stytting vinnuviku
Stytting vinnuviku hjá Kvikunni lögð fram til afgreiðslu.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt fram samkomulag um styttingu vinnuviku hjá Kvikunni.
Bæjarráð samþykkir framlagt samkomulag.8. Endurskoðun menningarstefnu Grindavíkurbæjar
Drög að menningarstefnu Grindavíkurbæjar lögð fram til afgreiðslu. Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs situr fundinn undir þessum lið.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Drög að menningarstefnu Grindavíkurbæjar lögð fram.
Bæjarráð felur sviðsstjóra frístunda- og vinna málið áfram.9. Lokaskýrsla vegna breytinga á búningsklefum knattspyrnudeildar
Framkvæmdaskýrsla vegna breytinga á búningsklefum meistaraflokks karla lögð fram. Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs situr fundinn undir þessum lið.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Framkvæmdaskýrsla vegna breytinga á búningsklefum meistaraflokks karla í knattspyrnu lögð fram.
Bæjarráð harmar það að styrkur sem veittur var til kaupa á líkamsræktartækjum hafi ekki verið notaður til þess heldur nýttur í annað án samráðs við bæjaryfirvöld.
Sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs er falið að vinna málið áfram.10. Beiðni um styrk vegna breytinga á klefum mfl. kvenna í knattspyrnu
Erindi kvennaráðs Knattspyrnudeildar UMFG þar sem óskað er eftir styrk vegna breytinga á búningsklefum lagt fram að nýju.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Beiðni kvennaráðs Knattspyrnudeildar UMFG um styrk vegna breytinga á búningsklefum lögð fram.
Bæjarráð tekur vel í erindið en frestar afgreiðslu málsins þar til eftir vettvangsferð sem áætluð er 2. febrúar nk.11. Ósk um nafnabreytingu á keppnisvelli körfuknattleiksdeildar UMFG
Aðalstjórn UMFG óskar eftir heimild til að setja upp auglýsingaskilti á útvegg íþróttahúss.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram beiðni frá aðalstjórn UMFG um heimild til að setja upp auglýsingaskilti á útvegg íþróttahúss.
Bæjarráð samþykkir erindið. Merkingarnar skulu vera settar upp í samráði við sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs og forstöðumann íþróttamannvirkja.12. Rekstrarleyfi veitingarstaðar í flokki II - Kokksi ehf
Fyrir liggja umsagnir frá HES, Slökkviliði Grindavíkur og byggingarfulltrúanum í Grindavík.
Fyrir liggja umsagnir frá HES, Slökkviliði Grindavíkur og byggingarfulltrúanum í Grindavík.
Sótt er um opnun til 23:00 virka daga og 01:00 aðfaranætur frídaga.
Bæjarráð mælir með veitingu leyfisins.