Bæjarráð Grindavíkur - 1668. fundur
- 22.10.2024
- Fundargerð
- Kl. 14:00 - 17:10
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1668
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sævar Þór Birgissonvaramaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
- Guðjón Bragasonlögfræðingur
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir heimild til að taka mál á dagskrá með afbrigðum sem 4. mál:
2410025 - Merkingar innanbæjar í Grindavík.
Samþykkt samhljóða
1. Fyrirkomulag stuðnings við atvinnulíf í Grindavík
Lagt fram minnisblað frá GRN, dags. 17. október 2024 um mögulegar aðgerðir til stuðnings atvinnulífi í Grindavík og Grindavíkurbæ.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Skarphéðinn Berg Steinarsson, ráðgjafi og hafnarstjóri. Frá framkvæmdanefnd: Árni Þór Sigurðsson, Viðar Helgason og Pétur M U Tómasson.
Lagt fram minnisblað frá GRN, dags. 17. október 2024 um mögulegar aðgerðir til stuðnings atvinnulífi í Grindavík og Grindavíkurbæ.
Bæjarráð leggur áherslu á að unnið verði markvisst að þeim tillögum sem fram koma í minnisblaðinu.2. Verkefni skólaþjónustu - flutningur verkefna til framkvæmdanefnda
Lagt fram bréf til innviðaráðherra frá GRN dags. 14.10.2024 - Aðgerðaráætlun vegna flutnings verkefna frá Grindavíkurbæ til Grindavíkurnefndar.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs. Frá framkvæmdanefnd: Árni Þór Sigurðsson, Viðar Helgason og Pétur M U Tómasson.
Lagt fram bréf til innviðaráðherra frá GRN dags. 14.10.2024 - Aðgerðaráætlun vegna flutnings verkefna frá Grindavíkurbæ til Grindavíkurnefndar.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við hlutfallslega skiptingu kostnaðar við verkefni á sviði fræðslumála sem fram kemur í tillögu að framkvæmdaáætlun framkvæmdanefndar. Bæjarráð setur hins vegar almennan fyrirvara um að uppgjör verði á grundvelli raunkostnaðar og væntir þess að sá kostnaður verði a.m.k. ekki hærri en áætlun.3. Fjárhagsáætlun 2025-2028 - Grindavíkurbær og stofnanir
Vangaveltur Grindavíkurnefndar um tekjustofna Grindavíkurbæjar eru í meðfylgjandi minnisblaði.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Hafnarstjóri, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs. Frá framkvæmdanefnd: Árni Þór Sigurðsson, Viðar Helgason og Pétur M U Tómasson.
Bæjarráð bendir á að töluverð óvissa er um lögbundna tekjustofna sveitarfélagsins á árinu 2025 og felur bæjarstjóra að eiga sem fyrst fund með hlutaðeigandi ráðuneytum um nauðsynlegar lagabreytingar.4. Merkingar innanbæjar í Grindavík
Óskað er eftir afstöðu bæjarráðs til merkinga innanbæjar í Grindavík eftir að bærinn var opnaður almenningi. Lagðar eru fyrri tillögur frá Aton sem að verkinu með Grindavíkurnefndinni.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Hafnarstjóri, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og skipulagsfulltrúi Grindavíkurbæjar. Frá framkvæmdanefnd: Árni Þór Sigurðsson, Viðar Helgason og Pétur M U Tómasson.
Lagt fram minnisblað, frá Aton ehf. vegna merkinga innanbæjar í Grindavík.
Bæjarráð samþykkir að miðlungsleið verði til grundvallar en hún felur í sér hófstilltar merkingar innanbæjar.
Bæjarráð lýsir ánægju sinni með opnun Grindavíkurbæjar og þakkar framkvæmdanefndinni fyrir gott samstarf í þessu mikilvæga máli.5. Verkefni Innviðanefndar
Finna þarf leiðir til að eiga í gagnvirkum samskiptum við GRN.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Hafnarstjóri, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og Skarphéðinn Berg Steinarsson, ráðgjafi.
Gert er ráð fyrir því að fastanefndir boði fulltrúa framkvæmdanefndar á fundi þegar við á, þar með talið fulltrúa þjónustuteymis.
Bæjarstjóra er falið að ræða nánara fyrirkomulag við framkvæmdanefnd.6. Stjórn Knattspyrnudeildar Grindavíkur óskar eftir stuðningi
Frekari gögn lögð fyrri bæjarráð.
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Lögð fram beiðni um stuðning við knattspyrnudeild UMFG á árinu 2024.
Bæjarráð samþykkir að styrkja UMFG um 10.000.000 kr. og felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að fylgja málinu eftir.7. Ósk um kaup á búnaði
Fulltrúar tveggja grunnskóla í sveitarfélaginu Árborg hafa óskað eftir kaupum á búnaði í eigu Grunnskóla Grindavíkur
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Hafnarstjóri, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs.
Bæjarráð felur sviðsstjórum að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.8. Staða óvarinna rafstrengja í og við Grindavík
Lögð fram erindi sem varða frágang rafstrengja og álit HMS um að fram þurfi að fara áhættumat til að greina hættu af háspennustrengjum.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Hafnarstjóri og sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Lögð fram erindi sem varða frágang rafstrengja og álit HMS um að fram þurfi að fara áhættumat til að greina hættu af háspennustrengjum.Guðjón Bragason vék af fundi kl. 16:30
9. Öryggisgæsla - Tollhús við Tryggvagötu
Öryggisvarslan er út október og ákveða þarf fyrirkomulag næstu mánaða.
Fyrir liggur að Grindavíkurnefndin mun taka þátt í kostnaði við öryggisgæsluna og leggja til óbreytt fyrirkomulag til áramóta.Bæjarráð felur sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að útfæra aðgangsmál í aðalandyri Tollhússins í samræmi við umræður á fundinum.
10. Kalka sorpeyðingarstöð - gámaplan og sorpílát á tímum náttúruhamfara
Lögð fram samantekt á áföllnum kostnaði vegna sorpmála í Gríndavík það sem af er árinu 2024.
Í sama skjali er tilboð frá björgunarsveitinni í tunnuflutning frá Grindavík til Njarðvíkur sem taka þarf afstöðu til.
Jafnframt kemur fram hver rekstrarkostnaður á grenndargámaplani verður miðað við mismunandi tæmingarforsendur.Lagt fram yfirlit yfir útlagðan kostnað Kölku vegna sorphirðu í Grindavík og reksturs gámaplans það sem af er ári 2024 ásamt áætluðum kostnaði við rekstur grenndargáma, ásamt tilboði frá björgunarsveitinni í flutning á sorptunnum frá Grindavík til Kölku.
Bæjarráð samþykkir tilboð björgunarsveitarinnar.