Bæjarráð Grindavíkur - 1572. fundur
- 16.02.2021
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1572
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Helga Dís Jakobsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Reykjanes - Góðar sögur
Árlega vinnur Gallup könnun á viðhorfi landsmanna til landshlutanna. Niðurstöður könnunar 2020 fyrir Reykjanes liggja fyrir.
Upplýsinga- og markaðsfulltrúi sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Kristján Hjálmarsson frá H:N samskiptum kynnti niðurstöður könnunarinnar í gegnum Teams.
Lagðar fram niðurstöður viðhorfskönnunar til Reykjanessins sem gerð var 29. desember 2020 til 11. janúar 2021.2. Vefsíða Grindavíkurbæjar
Tilboð frá Sjá í undirbúnings- og greiningarvinnu fyrir nýjan vef bæjarins.
Upplýsinga- og markaðsfulltrúi sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Tilboð frá Sjá ehf. í undirbúnings- og greiningarvinnu fyrir nýjan vef bæjarins lagt fram.
Bæjarráð samþykkir að semja við Sjá ehf. vegna undirbúnings og greiningarvinnu við nýja heimasíðu.
Jafnframt leggur bæjarráð til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka við fjárhagsáætlun 2021 að fjárhæð 1.000.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.3. Dagdvöl aldraðra - Aðstaða
Í kjölfar umræðunnar um þjónustu dagdvalar aldraðra við gerð fjárhagsáætlunar 2021 liggur nú fyrir tillaga félagsmálanefndar um þjónustustig.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram tillaga félagsmálanefndar um þjónustustig í dagdvöl aldraðra.
Bæjarráð samþykkir að viðmið í dagdvöl verði 12 rými, en beinir því jafnframt til forstöðumanns að reyna að þjónusta sem flesta innan þessara marka.
Bæjarráð felur sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs að kostnaðarmeta viðbótar stöðugildi í þjónustunni fyrir næsta fund bæjarráðs.4. Ábending um þjónustu í dagdvöl
Aðstandandi þjónustuþega í dagdvöl aldraðra í Grindavík gerir athugasemd við að viðkomandi þjónustuþegi fái ekki óskerta þjónustu, þ.e. að fái aðgang að dagdvöl fimm daga vikunnar. Bókun félagsmálanefndar í fylgiskjali.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Erindið er lagt fram.5. Heimsendur matur - Bakkar
Forstöðumaður heimaþjónustu óskar eftir viðauka vegna kaupa á matarbökkum. Verða notaðir í þjónustu Miðgarðs vegna heimsends matar. Bakkarnir eru fjölnota og endast í 5 ár.
Forstöðumaður heimaþjónustu óskar eftir viðauka vegna kaupa á matarbökkum. Verða þeir notaðir í þjónustu Miðgarðs vegna heimsends matar. Bakkarnir eru fjölnota og endast í 5 ár.
Bæjarráð frestar málinu til næsta fundar og óskar frekari gagna.6. Geymslusvæði gáma. Nýtt svæði, gjaldskrá og reglur.
Tillaga að breyttri gjaldskrá og reglum á geymslusvæði lögð fram.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið í gegnum fjarfundabúnað.
Lögð fram tillaga að breyttri gjaldskrá og reglum á geymslusvæði.
Bæjarráð samþykkir að stofngjald lóðar verði 40.000 kr. og miðast við 50 fermetra. Gjaldtaka umfram það verði 1.000 kr. hver fermetri. Bæjarráð vísar gjaldskránni til staðfestingar í bæjarstjórn.7. Fjölþætt heilsuefling 65 - Staðan í upphafi árs 2021
Lagt fram minnisblað um stöðu Fjölþættrar heilsueflingar 65 í Grindavík. Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs situr fundinn undir þessum lið.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt fram minnisblað um stöðu Fjölþættrar heilsueflingar 65 í Grindavík.8. Kjarasamningar - Stytting vinnuviku
Lagðar fram tillögur að breyttu vaktafyrirkomulagi í íþróttamannvirkjum. Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og forstöðumaður íþróttamannvirkja sitja fundinn undir þessum dagskrárlið.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, forstöðumaður íþróttamannvirkja og launafulltrúi sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagðar fram tillögur að breyttu vaktafyrirkomulagi í íþróttamannvirkjum.9. Endurskoðun menningarstefnu Grindavíkurbæjar
Lögð fram samantekt á kostnaði við frístunda- og tómstundastarf í öðrum sveitarfélögum. Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs situr fundinn undir þessum lið.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram samantekt á kostnaði við frístunda- og tómstundastarf í öðrum sveitarfélögum.
Bæjarráð felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs og sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að útfæra afsláttarreglur hjá börnum sem eingöngu eru í tónlistarnámi.
Bæjarráð vísar menningastefnunni til bæjarstjórnar.10. Fjárhagsstaða deilda UMFG vegna heimsfaraldurs
Lögð fram frekari gögn frá UMFG vegna tekjufalls. Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs situr fundinn undir þessum lið.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Málinu er frestað þar til gögn berast frá UMFG.11. Lokaskýrsla vegna breytinga á búningsklefum knattspyrnudeildar
Framhald frá fundi 1569. Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs situr fundinn undir þessum lið.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Skýrslan lögð fram.12. Beiðni um styrk vegna breytinga á klefum mfl. kvenna í knattspyrnu
Framhald frá fundi 1569 og vettvangsferð. Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs situr fundinn undir þessum lið.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð bendir á að styrkumsóknir skulu berast frá aðalstjórn UMFG samkvæmt samningi bæjarins við UMFG.
Sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs er falið að ræða við umsækjanda.13. Aðstaða fyrir vetraræfingar Golfklúbbs Grindavíkur
Golfklúbbur Grindavíkur óskar eftir húsnæði fyrir vetraræfingar. Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs situr fundinn undir þessum lið.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Golfklúbbur Grindavíkur óskar eftir húsnæði fyrir vetraræfingar.
Grindavíkurbær hefur ekki laust húsnæði en bendir golfklúbbnum á Hópið en þar er möguleiki til vetraræfinga líkt og undanfarin ár.
Grindavíkurbær gerir ráð fyrir töluverðum fjárfestingum fyrir golfklúbbinn í fjögurra ára áætlun.14. Styrkumsókn vegna Þorrablóts UMFG 2021
UMFG sækir um styrk að upphæð kr. 200.000 vegna rafræns þorrablóts 20. febrúar nk. Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs situr fundinn undir þessum lið.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð samþykkir styrk að fjárhæð 200.000 kr. af styrktarlið bæjarráðs.15. Golfklúbbur Grindavíkur 40 ára
Í tilefni afmælisins verður gefið út veglegt afmælisrit. Leitað er stuðnings við útgáfuna.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð samþykkir auglýsingu að fjárhæð 99.000 kr. af styrktarlið bæjarráðs.16. Íbúakönnun 2020 - Íbúar og mikilvægi búsetuskilyrða
Atvinnuþróunarfélögin, Byggðastofnun og landshlutasamtökin hafa gefið út ofangreinda skýrslu.
Lagðar fram niðurstöður í Íbúakönnun 2020 um íbúa og mikilvægi búsetuskilyrða.