Bæjarráð Grindavíkur - 1702. fundur
- 10.02.2026
- Fundargerð
- Kl. 14:00 - 16:05
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1702
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Birgitta H. Ramsay Káradóttirvaramaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttirvaraformaður
- Inga Fanney Rúnarsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Guðjón Bragasonlögfræðingur
Í upphafi fundar óskaði varaformaður eftir heimild til að taka eftirfarandi fjögur mál á dagskrá með afbrigðum:
2602024 Fasteignagjöld 2026 ? Víkurbraut 46, beiðni um niðurfellingu
2602023 Fasteignagjöld 2026 ? Hafnargata 7b, beiðni um niðurfellingu
2602022 Fasteignagjöld 2026 ? Fálkahlíð 1-5, beiðni um niðurfellingu
2602021 Fasteignagjöld 2026 ? Altjónshús
Samþykkt samhljóða.
Birgitta Hrund og Guðjón sátu fundinn í Teams.
1. Dagmæður - húsnæði í eigu bæjarins
Óskað er eftir að fá húsnæði hjá bænum undir starfsemi dagmæðra.
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs.
Lagt fram erindi þar sem óskað er eftir húsnæði hjá bænum undir starfsemi dagmæðra.
Sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs er falið að vinna málið áfram.2. Ný vefsíða Grindavíkurbæjar
Farið yfir stöðuna á nýrri vefsíðu Grindavíkurbæjar og óskað eftir viðhorfi bæjarfulltrúa til beiðna um birtingu aðsendra tilkynninga á vefnum.
Gert er ráð fyrir að opna nýja heimasíðu seinni hluta febrúar eða fyrri hluta mars.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs mun ritstýra heimasíðunni.3. Frumvarp um afnám heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga
Lagt fram bréf frá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja, dags. 5. janúar sl. til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra vegna frumvarps um afnám heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga.
Lagt fram bréf frá HES til ráðherra, dags. 5. febrúar sl. og minnisblað um fyrirhugaðar lagabreytingar.
4. Skil á lóð -Staðarsund 3
Þórunn Björg Ásmundardóttir óskar eftir því að aflýsa lóðarleigusamningi að Staðarsundi 3, F2368457 og skila lóðinni skv. meðfylgjandi umsókn dags 5.2.2026
Þórunn Björg Ásmundardóttir óskar eftir því að aflýsa lóðarleigusamningi að Staðarsundi 3, F2368457 og skila lóðinni skv. meðfylgjandi umsókn dags 5.2.2026.
Bæjarráð samþykkir lóðaskilin en vekur athygli á að það eru fleiri eigendur undir þessum lóðarleigusamningi og þarf því undirritun allra eigenda á yfirlýsinguna.5. Fasteignagjöld 2026
Álagningu fasteignagjalda fyrir árið 2026 er lokið.
Lagt fram yfirlit heildartalna fasteignagjalda.
Jafnframt þarf að ákveða hvernig skuli meðhöndla fasteignagjöld altjónaðra húsa. Auk þess ákveða hvort eigi að bregðast við vegna hlutatjóna. Við þurfum að fá yfirlit yfir altjónaðar eignir til að geta séð umfangið.
Það er mismunandi hvaða gjöld reiknast útfrá því hvert byggingastig eignarinnar er. Ef búið er að færa það niður þá reiknast ekki vatns og fráveita.
Þótt fasteignamat mannvirkis hafi verið fært í 0 þá reiknast fasteignaskattur á lóðarmat og svo lóðarleiga.Álagningu fasteignagjalda fyrir árið 2026 er lokið.
Lögð fram yfirlit yfir álögð gjöld.6. Fasteignagjöld 2026 - altjónshús
Lagður fram listi frá NTÍ yfir þau hús sem metin eru altjónuð.
Bæjarráð samþykkir að fella niður fasteignagjöld ársins 2026 á altjónuð mannvirki.7. Fasteignagjöld 2026 - Víkurbraut 46, beiðni um niðurfellingu
Um er að ræða altjónshús og því munu fasteignagjöld 2026 verða felld niður, skv. bókun bæjarráðs í máli nr. 6 á fundi 1702.
8. Fasteignagjöld 2026 - Fálkahlíð 1-5, Beiðni um niðurfellingu
Bæjarráð samþykkir að fella niður fasteignagjöld 2026 af húsnæði sem er afgirt samkvæmt ákvörðun almannavarna eða Grindavíkurnefnd og umgengni óheimil um lóð og mannvirki af öryggisástæðum.
Af þeim sökum er fallist á erindið.9. Fasteignagjöld 2026 - Hafnargata 7B, beiðni um niðurfellingu eða afslátt
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.
10. Fasteignagjöld 2026 - Víkurbraut 31, beiðni um niðurfellingu
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.