Bæjarráð Grindavíkur - 1544. fundur
- 07.04.2020
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:30
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1544
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Páll Valur Björnssonaðalmaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Helga Dís Jakobsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
Í upphafi fundar óskaði formaður heimildar til að taka á dagskrá með afbrigðum forkaupsrétt vegna sölu á bátnum Margréti GK-707, sem dagskrárlið nr. 11.
Samþykkt samhljóða.
1. Kaup á hlut í skólahúsnæði Keilis
Óskað er eftir afstöðu sveitarfélaganna á Suðurnesjum til kaupa á hlut í fasteignafélagi Keilis. Guðmundur Kjartansson endurskoðandi mætir á fundinn undir þessum dagskrárlið.
Guðmundur Kjartansson endurskoðandi mætti á fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarfulltrúarnir Guðmundur Pálsson og Birgitta Káradóttir sátu einnig fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarstjóra er falið að afla frekari gagna og jafnframt óskar bæjarráð eftir að forsvarsmenn Keilis mæti á næsta fund bæjarráðs.2. Undirgöng undir Nesveg við Golfvöll
Óskað var eftir verðum frá fjórum verktökum í vinnu við gönguræsi undir Nesveg við golfvöll. Þrír af verktökunum skiluðu inn verðum. Jón og Margeir ehf voru lægstir með verð upp á 6.336.000 kr. eða 93% af kostnaðaráætlun.
Óska þarf viðauka vegna þessa á næsta fundi bæjarstjórnar.
Óskað er heimildar til að semja við lægstbjóðanda um verkið.Bæjarfulltrúarnir Guðmundur Pálsson og Birgitta Káradóttir sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Óskað var eftir verðum frá fjórum verktökum í vinnu við gönguræsi undir Nesveg við golfvöll. Þrír af verktökunum skiluðu inn verðum. Jón og Margeir ehf voru lægstir með verð upp á 6.336.000 kr. eða 93% af kostnaðaráætlun.
Óskað er heimildar til að semja við lægstbjóðanda um verkið.
Bæjarráð samþykkir að samið verði við lægstbjóðanda.
Jafnframt er óskað eftir viðauka á fjárhagsáætlun 2020 að fjárhæð 3.200.000 kr. á lykilinn 06813-9612.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann og að hann verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.3. Stígur frá Grindavík vestur að gólfvelli
Lagðar eru fram hugmyndir um legu á göngu- og hjólastíg frá Grindavík vestur að golfvelli.
Bæjarfulltrúarnir Guðmundur Pálsson og Birgitta Káradóttir sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagðar eru fram hugmyndir um legu á göngu- og hjólastíg frá Grindavík vestur að golfvelli.
Fyrir liggur að Vegagerðin taki þátt í kostnaði við stíginn allt að 50%.4. Samningar um landsvæði: Óskipt land Þórkötlustaða
Minnisblað bæjarstjóra og fylgigögn málsins lögð fram.
Bæjarfulltrúarnir Guðmundur Pálsson og Birgitta Káradóttir sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Minnisblað bæjarstjóra og fylgigögn málsins lögð fram. Bæjarstjóra falið að vinna málið áfram.5. Björgunarsveitin Þorbjörn leitar eftir stuðningi
Fyrir liggja minnisblöð vegna kaupa sveitarinnar á búnaði og tækjum.
Bæjarfulltrúarnir Guðmundur Pálsson og Birgitta Káradóttir sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram minnisblöð vegna kaupa sveitarinnar á búnaði og tækjum.
Bæjarráð samþykkir að styrkja björgunarsveitina um 5.000.000 kr. af rekstrareiningunni Náttúruvá.6. Ársuppgjör 2019 - Grindavíkurbær og stofnanir
Árreikningur lagður fram en hann er tilbúinn til endurskoðunar og afgreiðslu í bæjarstjórn.
Bæjarfulltrúarnir Guðmundur Pálsson og Birgitta Káradóttir sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Ársreikningur Grindavíkurbæjar og stofnana fyrir árið 2019 er lagður fram.
Bæjarráð samþykkir ársreikninginn og vísar honum til endurskoðunar og afgreiðslu bæjarstjórnar í samræmi 18. gr. og 61. gr. laga nr. 138/2011.7. Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga. Fjárfestingar á árinu 2019
Lögð fram yfirlit yfir fjárfestingar ársins 2019 sundurliðað niður á ársfjórðunga.
Bæjarfulltrúarnir Guðmundur Pálsson og Birgitta Káradóttir sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt fram yfirlit yfir eignfærða fjárfestingu árið 2019 sundurliðað niður á ársfjórðunga.8. Aðgerðir til að mæta fjárhagslegum áhrifum af kórónuveirunni
Fyrir liggur uppfærð staða verkefna í aðgerðapakka Sambands íslenskra sveitarfélaga sem og fleiri gögn er varða fjárhagslegar aðgerðir.
Bæjarfulltrúarnir Guðmundur Pálsson og Birgitta Káradóttir sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Minnisblað bæjarstjóra lagt fram.9. Landssamband eldri borgara
Landssambandið hefur sent ályktun og áskorun til sveitarfélaganna.
Bæjarfulltrúarnir Guðmundur Pálsson og Birgitta Káradóttir sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram ályktun frá Landssambandinu til sveitarfélaga.10. Mötuneyti fyrir stofnanir Grindavíkurbæjar
Málið er á dagskrá að beiðni Sigurðar Óla Þórleifssonar forseta bæjarstjórnar.
Bæjarfulltrúarnir Guðmundur Pálsson og Birgitta Káradóttir sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Málið er á dagskrá að beiðni Sigurðar Óla Þórleifssonar forseta bæjarstjórnar.
Bæjarstjóra falið að vinna málið áfram.11. Forkaupsréttur á bátnum Margréti GK-707
Lagt er fyrir erindi frá Dorg ehf. um að falla frá forkaupsrétti.
Bæjarfulltrúarnir Guðmundur Pálsson og Birgitta Káradóttir sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að falla frá forkaupsrétti.