Bæjarráð Grindavíkur - 1664. fundur
- 03.09.2024
- Fundargerð
- Kl. 14:00 - 17:45
- í Tollhúsi við Tryggvagötu
- Fundur nr. 1664
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Helga Dís Jakobsdóttirvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Hús á sprungusvæðum í Grindavík
Vinnugögn vegna húsa á hættusvæðum/sprungusvæðum lögð fram til umræðu og ákvörðunar um framhald.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Guðjón Bragason, ráðgjafi, Árni Þór Sigurðsson, FUMG, Gylfi Þór Þorsteinsson, FUMG, fráfarandi sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs í Teams, hafnarstjóri og forstöðumaður þjónustumiðstöðvar.
Lagt fram minnisblað um uppgjör vegna húsa á hættusvæðum, dags. 27. ágúst 2024.
Fyrirhugaður er vinnufundur Grindavíkurbæjar og Grindavíkurnefnarinnar um aðgerðir varðandi mannvirki á og við sprungur.2. Lokunarpóstar við Grindavík
Til umræðu lokunarpóstar við Grindavík og opnun Grindavíkur fyrir almenning.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Guðjón Bragason, ráðgjafi, Árni Þór Sigurðsson, FUMG, Gylfi Þór Þorsteinsson, FUMG, Fráfarandi sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs í Teams, hafnarstjóri og forstöðumaður þjónustumiðstöðvar.
Bæjarráð leggur áherslu á að bærinn verði opnaður sem fyrst fyrir almenningi og lokunarpóstarnir verði aflagðir í núverandi mynd.3. Verkefni skipulags- og umhverfissviðs
Verkefni skipulags- og umhverfissviðs til umræðu. Greinagerð sviðsstjóra lögð fram.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Guðjón Bragason, ráðgjafi, sviðsstjórar Grindavíkurbæjar, launafulltrúi, sérfræðingur tæknideildar og forstöðumaður þjónustumiðstöðvar Grindavíkurbæjar.
Lögð fram greinargerð um stöðu mála á skipulags- og umhverfissviði og tillögur um nýtt skipulag á sviðinu, dags. 27. ágúst 2024.
Bæjarráð samþykkir tillögurnar.4. Niðurrif á Hópinu
Lagt fram minnisblað frá umsjónamanni fasteigna Grindavíkurbæjar varðandi framtíð Hópsins.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Guðjón Bragason, ráðgjafi, sviðsstjórar Grindavíkurbæjar, launafulltrúi, sérfræðingur tæknideildar, forstöðumaður þjónustumiðstöðvar Grindavíkurbæjar og Skarphéðinn Berg Steinarsson, ráðgjafi.
Lagt fram minnisblað frá umsjónamanni fasteigna Grindavíkurbæjar varðandi framtíð Hópsins, dags. 23.08.2024 og minnisblað frá Batteríinu um skipulag til framtíðar vegna aðgengis ferðamanna til að áhrif jarðskjálfta og eldgosa, dags. 10.07. 2024.
Bæjarráð samþykkir að stofna vinnuhóp sem vinnur áfram með þær tillögur sem fram koma í minnisblöðunum og samþykkja eftirfarandi í hópinn:
Elísabet Bjarnadóttir
Sigurður Rúnar Karlsson
Eggert Sólberg Jónsson
Skarphéðinn Berg Steinarsson
Fulltrúi bæjarstjórnar5. Félagsmál Grindavíkurbæjar - stöðuskýrsla
Ósk um upplýsingar vegna árlegrar samantektar um félagsleg málefni Grindavíkurbæjar.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Guðjón Bragason, ráðgjafi, sviðsstjórar Grindavíkurbæjar, launafulltrúi, sérfræðingur tæknideildar og skólastjóri tónlistarskólans í Grindavík.
Lagt fram minnisblað sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs um verkefni á sviðinu, dags. 29. ágúst 2024.7. Nafngiftir nýrra náttúrufyrirbæra
Lagt fram minnisblað um nafngiftir á náttúrufyrirbærum.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Guðjón Bragason, ráðgjafi, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og sérfræðingur tæknideildar.
Lagt fram minnisblað um nafngiftir nýrra náttúrufyrirbæra, dags. 30.08.2024.8. Aðstaða UMFG til æfinga og keppni
Drög að leigusamningum við Breiðablik og Kópavogsbæ lögð fram.
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Lagður fram leigusamningur við Kópavogsbæ vegna aðstöðu í íþróttahúsinu við Kársnesskóla með gildistíma 1. okt. 2024 til 31. maí 2025.
Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra að undirrita hann.9. Áfangastaðurinn Grindavík í kjölfar náttúruhamfara
Óskað er eftir umræðu í bæjarráði um hvernig marka á stefnu til framtíðar um Grindavík sem áfangastað ferðamanna þ.á.m um það hvaða ummerki náttúruhamfara á að vernda. Huga þarf að mannvirkjum, sprungum, varnargörðum, nýju hrauni o.s.frv. hvað þetta varðar.
Gögn frá umsjónarmanni fasteigna og Batteríinu lögð fram.Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Lagt fram minnisblað frá Batteríinu, dags. 10.07.2024 um framtíðarskipulag í Grindavík.10. Stjórn Knattspyrnudeildar Grindavíkur óskar eftir stuðningi
Rætt um stöðu knattspyrnudeildar UMFG.
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Lagt fram erindi frá Stjórn knattspyrnudeildar UMFG varðandi styrk að fjárhæð 10.000.000 kr.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að vinna málið áfram.11. Viðburðir og samverustundir fyrir Grindvíkinga veturinn 2024-2025
Rætt um viðburði og samverustundir fram að áramótum.
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs fór yfir skipulag samverustunda veturinn 2024-2025.
Bæjarráð samþykkir að fela sviðsstjóra að vinna málið áfram.12. Starfsstyrkir á frístunda- og menningarsviði 2025
Lagt fram yfirlit yfir starfsstyrki á frístunda- og menningarsviði.
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Lagt fram yfirlit um tillögur að samstarfssamningum á árinu 2025 og áætluðum kostnaði vegna þeirra.
Bæjarráð samþykkir að fela sviðsstjóra frístunda- og menningarnefndar að vinna málið áfram.13. Kvikan - Opnunartími veturinn 2024-2025
Áframhald umræðu frá síðasta fundi bæjarráðs.
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Bæjarráð felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að útfæra opnunartíma Kvikunnar þrjá til fjóra daga í viku frá og með 9. september nk. Tilgangur er að búa til samfélagsmiðstöð fyrir Grindvíkinga heima í Grindavík.