Bæjarráð Grindavíkur - 1586. fundur
- 29.06.2021
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 16:30
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1586
- Ritari: Fannar Jónasson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Breytingar á aðalskipulagi Grindavíkurbæjar - lýsing verkefnis
Óskað er viðauka vegna hluta Grindavíkurbæjar í breytingu á aðalskipulagi Grindavíkurbæjar 2018-2032 að upphæð 1.000.000 kr. Viðaukabeiðnin verður fjármögnuð með lækkun á handbæru fé.
Óskað er viðauka vegna hluta Grindavíkurbæjar í breytingu á aðalskipulagi Grindavíkurbæjar 2018-2032 að upphæð 1.000.000 kr.
Bæjarráð samþykkir samhljóða viðauka við fjárhagsáætlun 2021 að fjárhæð 1.000.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.2. Breyting á deiliskipulagi við Víðihlíð
Tillaga að breyttu deiliskipulagi við Víðihlíð var auglýst í samræmi við skipulagslög á tímabilinu 6. maí til og með 17. júní 2021. Umsagnir lagðar fram til umfjöllunar í skipulagsnefnd þann 21. júní sl. Umsagnir bárust frá Umhverfisstofnun, Vegagerðinni, Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja, Minjastofnun Íslands og HS veitum. Sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs er falið að svara umsagnaraðilum.
Þær viðbætur/breytingar sem eru gerðar við greinagerð og deiliskipulagsuppdráttinn eftir að auglýsingartíma deiliskipulagstillögunnar lauk eru eftirfarandi:
- Tengibygging á milli Víðihlíðar og félagsheimilisins má vera 2 hæðir.
- Hámarkshæð félagsheimilis er breytt úr 7 m í 9 m frá botnplötu.
- Heimilt verður að byggja tæknirými m.a. fyrir loftræstisamstæðu ofan á eða undir félagsheimili.
Skipulagsnefnd samþykkir tillögu að breyttu deiliskipulagi fyrir Víðihlíð með þeim breytingum sem gerðar eru á henni eftir auglýsingu.
Tillögunni var vísað til fullnaðarafgreiðslu bæjarstjórnar á fundi skipulagsnefndar þann 21. júní sl.Auglýsingartíma á tillögu að breyttu deiliskipulagi við Víðihlíð er lokið, auglýsingartími var frá 6. maí 2021 til og með 17. júní 2021. Umsagnir bárust frá Umhverfisstofnun, Minjastofnun Íslands, Vegagerðinni, Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja og HS veitum. Ein athugasemd barst og var hún frá Öldungaráði Grindavíkurbæjar.
Þær viðbætur/breytingar sem voru gerðar við tillöguna eftir að auglýsingartíma lauk eru eftirfarandi:
- Tengibygging á milli Víðihlíðar og félagsheimilisins má vera 2 hæðir.
- Hámarkshæð félagsheimilis er breytt úr 7 m í 9 m frá botnplötu.
- Heimilt verður að byggja tæknirými m.a. fyrir loftræstisamstæðu ofan á eða undir félagsheimili.
Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna að breyttu deiliskipulagi við Víðihlíð, með þeim breytingum sem hafa orðið á henni eftir auglýsingu, á fundi nefndarinnar þann 21. júní 2021. Tillögunni var vísað til bæjarstjórnar til fullnaðarafgreiðslu.
Bæjarráð samþykkir samhljóða tillögu að breyttu deiliskipulagi fyrir Víðihlíð eins og hún er hér lögð fram, með áorðnum minniháttar breytingum. Er skipulagsfulltrúa falið að senda deiliskipulagið til staðfestingar Skipulagsstofnunar í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Þá er skipulagsfulltrúa falið að senda þeim er gerðu umsagnir og athugasemd við deiliskipulagið umsögn Grindavíkurbæjar um þær. Í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þá verður niðurstaða bæjarstjórnar auglýst.3. Fráveita Grindavíkurbæjar - Dælustöð við Bakkalág
Á fjárfestingaráætlun ársins 2021 er 2. áfangi við fráveituframkvæmdir sem hafa það markmið að setja upp hreinsistöð á fráveitu frá þéttbýli Grindavíkurbæjar. Niðurstöður verðfyrirspurna vegna 2. áfanga (dælustöð við Bakkalág 2) lagðar fram til upplýsinga. Framkvæmdir hefjast á næstu vikum.
Á fjárfestingaráætlun ársins 2021 er 2. áfangi við fráveituframkvæmdir sem hafa það markmið að setja upp hreinsistöð á fráveitu frá þéttbýli Grindavíkurbæjar. Niðurstöður verðfyrirspurna vegna 2. áfanga (dælustöð við Bakkalág 2) lagðar fram til kynningar.
4. Samningur slökkviliðs Grindavíkur og Slökkviliðs Höfuðborgarsv. um gagnkvæma aðstoð
Samningur milli Slökkviliðs Grindavíkur og Slökkviliðs Höfuðborgarsvæðisins um gagnkvæma aðstoð lagður fram til upplýsinga.
Samningur milli Slökkviliðs Grindavíkur og Slökkviliðs Höfuðborgarsvæðisins um gagnkvæma aðstoð lagður fram til kynningar.
5. Samningur slökkviliðs Grindavíkur og brunavarnir Árnessýslu um gagnkvæma aðstoð
Samningur milli Slökkviliðs Grindavíkur og Brunavarna Árnessýslu um gagnkvæma aðstoð lagður fram til upplýsinga.
Samningur milli Slökkviliðs Grindavíkur og Brunavarna Árnessýslu um gagnkvæma aðstoð lagður fram til kynningar.
6. Starfshópur um uppbyggingu eldgosasvæðisins í Geldingadölum
Farið yfir stöðu mála vegna eldgossins í Geldingadölum.
Farið yfir stöðu mála vegna eldgossins í Geldingadölum.
7. Fundargerðir - Samband íslenskra sveitarfélaga 2021
Fundargerð 898. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags 28. maí 2021, er lögð fram til kynningar.
Fundargerð 898. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 28. maí 2021, er lögð fram til kynningar.
8. Skipulagsnefnd - 88
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
9. Frístunda- og menningarnefnd - 105
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
10. Afgreiðslunefnd byggingarmála - 51
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.