Bæjarráð Grindavíkur - 1591. fundur
- 14.09.2021
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 18:30
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1591
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Vefsíða Grindavíkurbæjar
Drög að þarfagreiningu fyrir nýjan vef Grindavíkurbæjar liggja fyrir. Taka þarf afstöðu til þess hvort fara eigi í verðkönnun.
Upplýsinga- og markaðsfulltrúi sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram drög að þarfagreiningu fyrir nýjan vef Grindavíkurbæjar.
Bæjarráð felur upplýsinga- og markaðsfulltrúa að gera verðkönnun við gerð á nýjum vef fyrir Grindavíkurbæ fyrir fjárhagsáætlun næsta árs.2. Umsóknir um starfsstyrki á frístunda- og menningarsviði 2022
Drög að samningum á frístunda- og menningarsviði lögð fram til afgreiðslu.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Drög að samningum á frístunda- og menningarsviði lögð fram.
Bæjarráð felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að vinna málið áfram.3. Leigusamningur vegna heilsuræktarstöðvar
Leigusamningur við Gym heilsu rennur út í september 2022. Taka þarf ákvörðun um framhaldið.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Farið yfir stöðu málsins.4. Skipulags - og umhverfissvið: Verkefnastaða og starfsmannamál
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs situr fundinn undir dagskrárliðnum.
Farið yfir verkefnastöðu sviðsins ásamt því að farið verður yfir starfsmannamál. Engin gögn fylgja dagskrárliðnum.Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Farið yfir verkefnastöðu sviðsins, framtíðarsýn í starfsmannamálum.5. Brunamál og almannavarnir- beiðni um viðauka
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs situr fundinn undir dagskrárliðnum.
Óskað er viðauka vegna brunamála og almannavarna.Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2021 á málaflokk 07 Brunamál og almannavarnir, að fjárhæð 25.255.000 kr. skv. framlagðri sundurliðun. Lagt er til að viðaukinn verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann.6. Tæknideild - beiðni um viðauka
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs situr fundinn undir dagskrárliðnum.
Óskað er viðauka vegna tæknideildar.Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2021 á rekstrarliði 09521 Tæknideild, að fjárhæð 2.929.000 kr. skv. framlagðri sundurliðun. Lagt er til að viðaukinn verði fjármagnaður með lækkun á á liðnum 13031-2990, Átaksverkefni, önnur vörurkaup.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann.7. Eignfærð fjárfesting á árinu 2021 - beiðni um viðauka
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs situr fundinn undir dagskrárliðnum.
Óskað er viðauka vegna eignfærðrar fjárfestingar á árinu 2021.Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Óskað er eftir viðauka á fjárfestingaáætlun ársins 2021 að fjárhæð 120.000 kr. sem skiptist svo:
Viðbygging Hópsskóla kr. 100 milljónir og hönnun félagsaðstöðu eldri borgara kr. 20 milljónir.
Lagt er til að fjármögnun þessa viðauka verði með lækkun á verkinu Gatnagerð í Hliðarhverfi um 70 milljónir kr. og Vatnsveitustofn frá Svartsendi um 50 milljónir kr.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann.8. Bílastæði - Ósk um stækkun stæða til móts við Hafnargötu 4-6
Einn af lóðarhöfum við Hafnargötu 2,4 og 6 óskar eftir að fá að stækka bílastæði handan við Hafnargötu 2-4-6. Heimild fyrir þeim stæðum sem þegar eru þarna var veitt af skipulagsnefnd árið 2017.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Einn af lóðarhöfum við Hafnargötu 2,4 og 6 óskar eftir að fá að stækka bílastæði handan við Hafnargötu 2-4-6. Heimild fyrir þeim stæðum sem þegar eru þarna var veitt af skipulagsnefnd árið 2017.
Bæjarráð felur sviðsstjóra að vinna málið áfram.9. Slökkvilið Grindavíkur - ráðning slökkviliðsstjóra
Auglýsing á starfi slökkviliðsstjóra lögð fram.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Auglýsing á starfi slökkviliðsstjóra lögð fram.
Bæjarráð felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að vinna málið áfram.10. Fjárhagsáætlun 2022-2025 - Grindavíkurbær og stofnanir
Lögð fram útkomuspá fyrir árið 2021 og launaáætlun fyrir árið 2022.
Áætlun skatttekna fyrir árið 2022 lögð fram sem og fyrstu drög að launaáætlun 2022.
Vegna fjárhagsáætlunar fyrir árið 2022 leggur bæjarráð fyrir sviðsstjóra og forstöðumenn að vöru- og þjónustukaup verði ekki meiri 2022 heldur en áætlun 2021 segir til um. Jafnframt er þess óskað að rýnt verði í hvern lið með það í huga að lækka kostnað.