Bæjarráð Grindavíkur - 1516. fundur
- 21.05.2019
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 20:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1516
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Kynning á íbúðum fyrir fyrstu kaupendur
Júlíus Þór Júlíusson frá Hoffelli kemur á fundinn og heldur kynningu.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Júlíus Þór Júlíusson frá Hoffelli kom á fundinn og kynnti starfsemi Hoffells.2. Austurvegur 1: Umsókn um byggingarleyfi
Minnisblað lagt fyrir bæjarráð til ákvörðunar á kaupum á búnaði í Nýtt íþróttahús við Austurveg.
Sviðssstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt fram minnisblað til ákvörðunar á kaupum á búnaði í Nýtt íþróttahús við Austurveg.
Bæjarráð samþykkir tillögu sviðsstjóra um kaup á búnaði.3. Samstarfssamningur við KFUM og KFUK vegna leikjanámskeiða 2019
Málið lagt fyrir að nýju eftir að sviðsstjóra var falið að vinna frekar í málinu. Sviðsstjóri- frístunda og menningarsviðs situr fundinn undir þessum lið.
Sviðsstjóri- frístunda og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Málið lagt fyrir að nýju eftir að sviðsstjóra var falið að vinna frekar í málinu.
Bæjarráð vísar málinu til frístunda- og menningarnefndar til frekari umfjöllunar.4. Garðsláttur eldri borgara 2019
Óskað eftir afstöðu bæjarráðs til fjölda slátta sumarið 2019. Einnig er óskað eftir viðauka til að sinna verkefninu. Sviðsstjóri- frístunda og menningarsviðs situr fundinn undir þessum lið.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð samþykkir að garðsláttur fyrir eldri borgara sumarið 2019 verði 3 skipti á garð og sú verðskrá sem samþykkt var í nóvember 2018 gildi og verður því hver sláttur á kr. 1.500 kr.
Bókun
Fulltrúi M-lista leggur áherslu á að Grindavíkurbær slái í 5 skipti sumarið 2019.
Hallfríður Hólmgrímsdóttir5. Starfsumhverfi leikskóla og menntun kennara
Lagðar fram tillögur til að bæta starfsumhverfi í leikskóla. (gögn koma á mánudaginn).
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagðar fram tillögur til að bæta starfsumhverfi í leikskóla.
Bæjarráð samþykkir að lægsti launaflokkur í leikskóla verði 126 þ.e. starfsmaður í leikskóla með stuðning.
Bæjarráð samþykkir að starfsmannafundir geti hafist kl. 15:00.
Jafnframt samþykkir bæjarráð að hægt sé að sækja um lækkun leikskólagjalda ef barn er ekki í leikskóla milli jóla og nýjárs.
Bæjarráð samþykkir að tryggt sé að hver deild í leikskóla hafi að lágmarki 12 tíma vegna undirbúnings.6. Málefni leikskólabarna
Lögð fram staða á biðlista í leikskóla. Tillögur lagðar fram samhliða (gögn inn í gáttina á mánudaginn).
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram staða á biðlista í leikskóla.
Sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs falið að vinna málið áfram.
Bókun
Samkvæmt 4. grein laga um leikskóla segir að sveitarfélög beri ábyrgð á starfsemi leikskóla og að sveitarfélög hafi forustu um að tryggja börnum leikskóladvöl.
Fulltrúi S-lista gerir það að tillögu sinni að starfsmenn skipulags- og tæknideildar geri úttekt á kostnaði við að setja upp færanlega starfsmannaaðstöðu við leikskólann Laut. Það er ljóst að við stöndum frammi fyrir nokkrum vanda hvað varðar að leysa dagvistunarmál hér í bæ en það er einnig ljóst að það er tímabundinn vandi þar sem nú stendur fyrir dyrum að byggja nýjan leikskóla. Fulltrúi S-lista telur að það sé þess virði að leysa þennan vanda með því að setja upp færanlega starfsmannaaðstöðu og við það eykst rými leikskólans til að taka við þeim börnum sem annars væru á biðlista lengur en æskilegt er. Þannig geta foreldrar þeirra barna sem um ræðir komist út á vinnumarkað og borgað sína skatta og útsvar til samfélagsins. Leikskólinn er einnig fyrsta skólastigið og því mikilvægt að bjóða öllum börnum upp á leikskólavist sem styður við mikilvægan þroska ungra barna.
Fulltrúi S-lista7. Starfsnámsár og námsstyrkir vegna nýliðunar í kennarastétt
Borist hefur bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga ásamt gögnum frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu.
Lagt fram bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 10. maí 2019, með upplýsingum um aðgerðir vegna starfsnáms kennaranema og námsstyrki.
Bæjarráð fagnar þessum aðgerðum í menntamálum.8. Rekstraryfirlit janúar - mars 2019
Lagt fram rekstraryfirlit janúar-mars 2019.
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs fór yfir helstu frávik rekstrar frá fjárhagsáætlun 2018 fyrir tímabilið janúar - mars 2019.
9. Innkaupareglur Grindavíkurbæjar
Sveitarfélög munu falla að öllu leyti undir lög um opinber innkaup frá og með næstu mánaðarmótum.
Í ljósi þess er nauðsynlegt að endurskoða innkaupareglur bæjarins.
Sambandið, í samstarfi við KPMG, hafa samið drög að innkaupareglum sem hægt er að nota og fylgja þau drög með, aðlöguð að Grindavíkurbæ.Sveitarfélög munu falla að öllu leyti undir lög um opinber innkaup, lög 120/2016, frá 31. maí 2019, sbr. 123. gr. laganna.
Lögð fram tillaga að nýjum innkaupareglum fyrir Grindavíkurbæ og stofnanir.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja reglurnar.12. Aðalfundur 2019
Fundarboð á aðalfund Fisktækniskóla Íslands. Ákveða þarf hver fari með atkvæði Grindavíkurbæjar á fundinum. Einnig þarf að tilnefna aðalmann og varamann í stjórn.
Lagt fram fundarboð á aðalfund Fisktækniskóla Íslands, sem haldinn verður í húsnæði skólans að Víkurbraut 56 Grindavík, fimmtudaginn 23. maí nk kl. 16:00.
Bæjarráð tilnefnir Ólaf Þór Jóhannsson sem aðalmann í stjórn Fisktækniskóla Íslands og Fannar Jónasson til vara.
Bæjarráð felur Hjálmari Hallgrímssyni að mæta á fundinn og fer hann með atkvæði Grindavíkurbæjar.13. Rekstrarleyfi veitingastaðar í flokki III - Bryggjan Gastro ehf
Fyrir liggja umsagnir frá HES, Slökkviliði Grindavíkur og byggingarfulltrúanum í Grindavík.
Fyrir liggja umsagnir frá HES, Slökkviliði Grindavíkur og byggingarfulltrúanum í Grindavík.
Bæjarráð mælir með veitingu leyfisins.