Bæjarráð Grindavíkur - 1634. fundur
- 07.02.2023
- Fundargerð
- Kl. 15:00 - 18:40
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1634
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Helga Dís Jakobsdóttirvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Móttaka flóttafólks
Bæjarráð upplýst um stöðuna.
Sviðstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Minnisblað sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs, dags. 31. janúar sl. er lagt fram.2. Hönnun sundlaugarsvæðis og aðliggjandi mannvirkja
Uppfærð frumdrög að hönnun á nýju sundlaugarsvæði lögð fram.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Uppfærð frumdrög að hönnun á nýju sundlaugarsvæði, dags. 2. febrúar 2023, eru lögð fram.
Fyrirhugaður er íbúafundur í Gjánni næstkomandi þriðjudag kl. 17:00.3. Framkvæmdir í Hópinu 2023
Bókun 123. fundar frístunda- og menningarnefndar lögð fram.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram bókun af fundi frístunda- og menningarnefndar nr. 123, dags. 1.2.2023.
Bókun
Fulltrúi M-lista leggur til að það verði farið í það strax að skipta út gervigrasinu í Hópinu.
Fundarhlé tekið kl. 17:45 - 18:00
Bókun
Meirihluti B, D og U tekur undir bókun frístunda- og menningarnefndar að skoða þann möguleika að skipta gervigrasinu í Hópinu út fyrr en áætlað var. Viðgerð er hafin á gervigrasinu í samræmi við úttekt fagaðila en bregðast þurfti strax við skemmdum eins og áætlað var í fjárhagsáætlun. Að viðgerð lokinni, ef mat á ástandi gervigrassins er verra en áætlað var, verður aðilum falið að undirbúa útboð og kanna afhendingartíma á nýju gervigrasi. Ákvörðun verður tekin um framhaldið í vinnu við fjárhagsáætlun í haust.4. Þjónustukönnun Janusar heilsueflingar 2023
Þjónustukönnun meðal þátttakenda í Fjölþættri heilsueflingu 65 lögð fram.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Þjónustukönnun meðal þátttakenda í Fjölþættri heilsueflingu 65 lögð fram.
Bæjarráð lýsir ánægju sinni með fjölþætta heilsueflingu 65 hjá Janusi heilsueflingu.5. 50 ára kaupstaðarafmæli Grindavíkurbæjar
Grindavíkurbær fagnar 50 ára kaupstaðarafmæli 10. apríl 2024. Frístunda- og menningarnefnd leggur til við bæjarráð að skipuð verði afmælisnefnd sem í eiga sæti fimm fulltrúar. Fulltrúarnir skulu endurspegla fjölbreytni samfélagsins í Grindavík.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Grindavíkurbær fagnar 50 ára kaupstaðarafmæli 10. apríl 2024. Frístunda- og menningarnefnd leggur til við bæjarráð að skipuð verði afmælisnefnd sem í eiga sæti fimm fulltrúar. Fulltrúarnir skulu endurspegla fjölbreytni samfélagsins í Grindavík.
Sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs er falið að vinna erindisbréf fyrir nefndina.6. Grunnskólinn við Ásabraut - breytingar á rýmum í kennslustofur
Borist hefur erindi frá skólanum þar sem þess er óskað að tveimur kennslustofum verði skipt upp í tvö rými hvorri.
Lagt fram erindi frá grunnskólanum vegna vöntunar á sérkennslurými.
Bæjarráð samþykkir erindið og felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að kostnaðarmeta verkefnið og koma með viðaukabeiðni fyrir bæjarráð.7. Heimgreiðslur til foreldra 12 mánaða gamalla barna sem fá ekki daggæslu fyrir börn sín
Málið er sett á dagskrá að beiðni meirihluta bæjarstjórnar.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Meirihluti leggur upp með að heimgreiðslurnar verði ekki skilyrtar heldur val foreldra frá 12 mánaða aldri, að loknu fæðingarorlofi, þangað til barnið fer í daggæslu eða á leikskóla.
Bæjarráð vísar málinu til umfjöllunar í félagsmálanefnd og fræðslunefnd.8. Sameiginlegt erindi HSS og Grindavíkurbæjar til heilbrigðisráðherra
Borist hefur svar frá heilbrigðisráðherra við erindi er varðar heilsugæslu og hjúkrunarheimili í Grindavík.
Lagt fram bréf til heilbrigðisráðherra vegna hugmynda um að heilsugæsla í Grindavík fái nýja aðstöðu á efri hæð félagsaðstöðu eldri borgara.
Heilbrigðisráðherra tekur vel í erindið en næsta skref er að fá svar frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu.
Bæjarráð lýsir ánægju sinni með velvilja ráðherra í garð verkefnisins og felur bæjarstjóra að vinna málið áfram.9. Rafmagnsleysi á Suðurnesjum vegna bilunar
Bókun skipulagsnefndar frá fundi nr. 113 lögð fram til umræðu.
Farið yfir stöðu mála.
10. Kosning í nefndir samkvæmt C-lið 48. gr. samþykktar um stjórn Grindavíkurbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar
Lögð fram tillaga um að Atli Geir Júlíusson verði aðalmaður í Svæðisskipulagsnefnd Suðurnesja í stað Birgittu Ránar Friðfinnsdóttur.
Lögð fram tillaga um að Atli Geir Júlíusson verði aðalmaður í Svæðisskipulagsnefnd Suðurnesja í stað Birgittu Ránar Friðfinnsdóttur.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja tillöguna.