Bæjarráð Grindavíkur - 1651. fundur
- 22.08.2023
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 17:05
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1651
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Helga Dís Jakobsdóttirvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir að taka tvö mál á dagskrá með afbrigðum. Sem 2. mál: 2308175 - Förum alla leið - Samþætt þjónusta í heimahúsum. Sem 4. mál: 2304078 - Ný vefsíða.
Samþykkt samhljóða.
1. Beiðni um námsvist í grunnskóla
Óskað er eftir samþykki bæjarráðs vegna gjaldskyldu sveitarfélagsins. Viðauki þarf að fylgja með. Um er að ræða tímabundi úrræði.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð samþykkir beiðnina og felur sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs að leggja fyrir viðaukabeiðni á næsta bæjarráðsfund vegna málsins.2. Förum alla leið - Samþætt þjónusta í heimahúsum
Allt til enda, alla leið. Tvö ráðuneyti óska eftir umsóknum frá sveitarfélögum og heilbrigðisstofnunum (sem reka heimahjúkrun) um þátttöku í þróunarverkefni um samþætta heimahjúkrun og -þjónustu. Valin verða sex svæði til þátttöku. Umsóknarfrestur er til 1.9.2023. Suðurnesjabær tekur jákvætt í erindið, afstaða Reykjanesbæjar er ókunn sem og HSS.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Tvö ráðuneyti óska eftir umsóknum frá sveitarfélögum og heilbrigðisstofnunum (sem reka heimahjúkrun) um þátttöku í þróunarverkefni um samþætta heimahjúkrun og -þjónustu. Valin verða sex svæði til þátttöku. Umsóknarfrestur er til 1.9.2023.
Bæjarráð tekur vel í erindið og felur sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs að vinna málið áfram.3. Framkvæmdir við Grunnskólann Ásabraut
Málið er sett á dagskrá að beiðni Hallfríðar Hólmgrímsdóttur bæjarfulltrúa.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Farið yfir stöðu verkefnisins.4. Ný vefsíða
Fyrir liggur kostaðarmat og áætlun sem barst í nýjan vef Grindavíkurbæjar eftir verðkönun Sjá ehf.
Upplýsinga- og markaðsfulltrúi sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram kostnaðarmat frá 4 aðilum í gerð á nýrri heimasíðu.
Upplýsinga- og markaðsfulltrúa er falið að vinna málið áfram.5. Fjárhagsáætlun 2024-2027 - Grindavíkurbær og stofnanir
Lögð fram tillaga að tímaramma við fjárhagsáætlun 2024-2027.
Lögð fram tillaga að tímaramma við fjárhagsáætlun 2024-2027.
Bæjarráð samþykkir tímarammann.6. Beiðni um viðauka vegna kjarasamninga ofl. - bæjarskrifstofa
Lögð fram beiðni um viðauka vegna launaliða á bæjarskrifstofu og tölvudeildar.
Alls viðaukabeiðni er 11.625.000 sem lagt er til að verði fjármögnuð með lækkun bókhaldsliðar "21611-1119 Lagt til hliðar vegna kjarasamninga" að fjárhæð 8.069.000 og með hækkun á áætlun staðgreiðslu, bókhaldsliður 00010-0021 að fjárhæð 3.556.000 kr.Lögð fram beiðni um viðauka vegna launaliða á bæjarskrifstofu og tölvudeild.
Alls viðaukabeiðni er 11.625.000 sem lagt er til að verði fjármögnuð með lækkun bókhaldsliðar "21611-1119 Lagt til hliðar vegna kjarasamninga" að fjárhæð 8.069.000 og með hækkun á áætlun staðgreiðslu, bókhaldsliður 00010-0021 að fjárhæð 3.556.000 kr.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann.7. ADHD samtökin - styrkbeiðni
Samtökin óska eftir styrk frá Grindavíkurbæ.
Samtökin óska eftir styrk frá Grindavíkurbæ.
Bæjarráð samþykkir að styrkja samtökin um 100.000 kr. af styrktarlið bæjarráðs.