Bæjarráð Grindavíkur - 1601. fundur
- 11.01.2022
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 16:55
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1601
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Fjárfesting 2022 - Stúka og tafla í nýjan íþróttasal
Á fjárfestingaráætlun ársins 2022 er gert ráð fyrir stúku og skjám í nýjan íþróttasal. Undirbúningur þessara verkefna er i gangi.
Áður en haldið verður áfram með vinnu við útboðsgögn fyrir stúku er óskað eftir að bæjarráð taki afstöðu til þess hvort koma skulu fyrir veggsvölum fyrir ofan stúkuna ásamt fjölmiðlastúku ofan við ritaraborð. Kostnaðaráætlun vegna þessa fylgir dagskrárlið.Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Á fjárfestingaráætlun ársins 2022 er gert ráð fyrir stúku og skjám í nýjan íþróttasal. Undirbúningur þessara verkefna er i gangi.
Lögð fram hugmynd, ásamt kostnaðaráætlun, um að koma fyrir veggsvölum fyrir ofan stúkuna ásamt fjölmiðlastúku ofan við ritaraborð.
Bæjarráð samþykkir framlagðar hugmyndir.2. Samstarf um undirbúning vegna breytinga á úrgangsmeðhöndlun
Til stendur að setja á fót starfshóp á vegum Kölku í þeim tilgangi að greina þær breytingar sem kunna að verða á nærsamfélaginu í kjölfar laga sem tóku gildi 1. janúar sl. Þess er óskað að Grindavíkurbær skipi fulltrúa í starfshópinn.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt fram bréf frá SSS, dags. 17.12.2021 varðandi starfshóp á vegum Kölku í þeim tilgangi að greina þær breytingar sem kunna að verða á nærsamfélaginu í kjölfar laga sem tóku gildi 1. janúar sl. Þess er óskað að Grindavíkurbær skipi fulltrúa í starfshópinn.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að skipa í starfshópinn.3. Björgunarmiðstöð í Grindavík - hugmyndavinna
Borist hefur erindi frá björgunarsveitinni Þorbirni um viðræður vegna málsins.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagður fram tölvupóstur frá björgunarsveitinni Þorbirni varðandi hugmyndir um sameiginlega björgunarmiðstöð í Grindavík.
Bæjarráð tekur vel í hugmyndina og felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að vinna málið áfram.4. Fisktækniskóli Íslands - fjárframlög frá ríkinu
Skólinn hefur fengið aukið fjárframlag til reksturs á fjárlögum 2022.
Skólinn hefur fengið aukið fjárframlag til reksturs á fjárlögum 2022.
Bæjarráð fagnar því að skólinn sé kominn með betri rekstrargrundvöll með auknu fjárframlagi frá ríkinu.
Næstu skref eru að koma húsnæðismálum skólans í góðan farveg. Horft er til nýrrar viðbyggingar við Kvikuna að Hafnargötu 12a sem myndi tryggja skólanum húsnæði til framtíðar í Grindavík.5. Rekstrarleyfi gististaðar í flokki IIG - Ingibjörg Jakobsdóttir
Fyrir liggja umsagnir frá HES, Slökkviliði Grindavíkur og byggingarfulltrúanum í Grindavík.
Fyrir liggja umsagnir frá HES, Slökkviliði Grindavíkur og byggingarfulltrúanum í Grindavík.
Bæjarráð samþykkir veitingu leyfisins með þeim fyrirvara sem Slökkvilið Grindavíkur setur um útistandandi úrbætur og fresti.