Bæjarráð Grindavíkur - 1546. fundur
- 05.05.2020
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:40
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1546
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Páll Valur Björnssonaðalmaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Helga Dís Jakobsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Starfsumhverfi leikskóla og menntun kennara
Tillögur um aðgerðir til að efla starfsumhverfi í leikskólum Grindavíkur lagðar fram. Málið hefur fengið umfjöllun í FRÆ og aflað hefur verið umsagna frá foreldraráðum beggja leikskóla. Kallað eftir afgreiðslu málsins í bæjarráði gagnvart hverjum og einum lið.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Tillögur í 10 liðum um aðgerðir til að efla starfsumhverfi í leikskólum Grindavíkur lagðar fram. Málið hefur fengið umfjöllun í Fæðslunefnd og aflað hefur verið umsagna frá foreldraráðum beggja leikskóla. Kallað eftir afgreiðslu málsins í bæjarráði gagnvart hverjum og einum lið.
Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins til næsta fundar.2. Sumarstörf 2020
Hugmyndir eru um að útvíkka tímabilið vegna sumarstarfa og byrja í maí og enda í ágúst.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs mætir á fundinn.Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Listi yfir umsóknir ungmenna lagður fram. Sviðsstjóra er falið að vinna málið áfram.3. Heiti hátíðarsvæðis fyrir neðan Kvikuna
Frístunda- og menningarnefnd leggur til við bæjarráð að viðburðatorgið neðan við Kvikuna verði nefnt Húllið. Heitið er sótt í hafsvæðið milli Reykjaness og Eldeyjar. Röstin er í Húllinu og viðeigandi að viðburðir í Grindavík fari fram í Röstinni eða Húllinu.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.

Bæjarráð samþykkir tillöguna.4. Flöggun á fánadögum
Björgunarsveitin Þorbjörn mun taka að sér að flagga á fánadögum. Óskað er eftir viðauka að upphæð kr. 500.000.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Björgunarsveitin Þorbjörn samþykkir að taka að sér að flagga á fánadögum.
Óskað er eftir viðauka að upphæð kr. 550.000.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka við fjárhagsáætlun 2020 að fjárhæð 550.000 kr. sem komi til lækkunar á handbæru fé.5. Salernisaðstaða við Hópið
Óskað er eftir heimild til þess að fjárfesta í nýjum salernisgám við Hópið og viðauka að upphæð kr. 3.500.000.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Óskað er eftir heimild til þess að fjárfesta í nýjum salernisgám við Hópið og viðauka að upphæð kr. 3.500.000.
Bæjarráð frestar málinu til næsta fundar.6. Gjafabréf til starfsmanna Grindavíkurbæjar 2020
Í ljósi þeirrar einstöku stöðu sem verið hefur að undanförnu vegna kórónufaraldursins og framlags starfsmanna við að leysa úr málefnum bæjarfélagsins í því sambandi, er lagt til að veita starfsmönnum umbun í formi gjafabréfs sem nýta má til úttektar hjá fyrirtækjum heimamanna í Grindavík.

Bæjarráð samþykkir að gefa starfsmönnum sem eru í starfi í maí 2020 10.000 kr. gjafabréf til nota í fyrirtækjum í Grindavík samkvæmt lista sem samþykktur var á fundinum.
Bæjarráð leggur jafnframt til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka við fjárhagsátætlun 2020 að fjárhæð 2.500.000 kr. á rekstrareininguna 21611 og að viðaukinn komi til lækkunar á handbæru fé.