Bæjarráð Grindavíkur - 1560. fundur
- 13.10.2020
- Fundargerð
- Kl. 15:00 - 16:35
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1560
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Helga Dís Jakobsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Þekkingar- og nýsköpunarsetur í Grindavík
Lögð fram greinagerð um þekkingar- og nýsköpunarsetur í Grindavík ásamt tillögu að viðbyggingu við Kvikuna.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram greinagerð um þekkingar- og nýsköpunarsetur í Grindavík ásamt tillögu að viðbyggingu við Kvikuna.
Bæjarráð tekur vel í erindið og felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að vinna málið áfram.2. Samþykkt fyrir lýðheilsuteymi Grindavíkurbæjar
Lögð fram drög að samþykktum fyrir lýðheilsuteymi sem kæmi í stað forvarnateymis.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram drög að samþykktum fyrir lýðheilsuteymi sem kæmi í stað forvarnateymis.
Bæjarráð vísar samþykktunum til bæjarstjórnar.3. Áskorun um kaup á leikklukku í nýjan íþróttasal
Lögð fram áskorun frá unglingaráði körfuknattleiksdeildar UMFG.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Unglingaráð körfuknattleiksdeildar Grindavíkur óskar eftir því að Grindavíkurbær kaupi keppnisklukku í nýja íþróttasalinn.
Málinu er vísað til fjárhagsáætlunarvinnunnar.4. Boð um kaup á uppstoppuðum fuglum
Grindavíkurbæ hefur verið boðið að kaupa safn af uppstoppuðum fuglum. Frístunda- og menningarnefnd telur í ljósi stöðunnar í samfélaginu ekki réttlætanlegt að fjárfesta í safninu.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Grindavíkurbæ hefur verið boðið að kaupa safn af uppstoppuðum fuglum.
Frístunda- og menningarnefnd telur í ljósi stöðunnar í samfélaginu ekki réttlætanlegt að fjárfesta í safninu.
Bæjarráð tekur undir ályktun frístunda- og menningarnefndar.5. Grindavíkurskip
Erindi frá Ólafi Sigurðssyni ásamt áhugahópi um byggingu áttærings í fullri stærð.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt fram erindi frá Ólafi Sigurðssyni og áhugahópi um byggingu áttærings í fullri stærð.
Bæjarráð tekur vel í erindið en bendir á að umsóknarfrestur um starfsstyrki á frístunda- og menningarsviði rann út 1. júní sl. Bæjarráð felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að vinna áfram í málinu.6. Stofnun landshlutateymis á Suðurnesjum um málefni fatlaðra barna
Lagt er til að Grindavíkurbær verði aðili að landshlutateymi á Suðurnesjum um málefni fatlaðra barna. Ekki er gert ráð fyrir að kostnaður hljótist af nema þá óverulegur.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt er til að Grindavíkurbær verði aðili að landshlutateymi á Suðurnesjum um málefni fatlaðra barna. Ekki er gert ráð fyrir að kostnaður hljótist af nema þá óverulegur.
Bæjarráð samþykkir erindið og felur sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs að vinna málið áfram.7. Dagdvöl aldraðra - Aðstaða
Forstöðumaður Miðgarðs óskar eftir því að taka eina íbúð við Austurveg nr. 5 undir dagdvöl aldraðra, a.m.k. tímabundið.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Forstöðumaður Miðgarðs óskar eftir því að taka eina íbúð við Austurveg nr. 5 undir dagdvöl aldraðra, a.m.k. tímabundið.
Bæjarráð samþykkir erindið tímabundið, eða þar til nýtt félagsheimili fyrir eldri borgara rís. Hjálmar situr hjá.8. Deiliskipulag - Norðan Hópsbrautar
Niðurstöður verðkönnunar vegna 1. áfanga í hönnun gatnakerfisins í nýju hverfi, Hlíðarhverfi. Verðkönnun lýkur kl.10:00 þriðjudaginn 13. okt.
Nánari gögn um málið verða sett inn í fyrramálið eftir lok verðkönnunar.Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Niðurstöður verðkönnunar vegna 1. áfanga í hönnun gatnakerfisins í nýju hverfi, Hlíðarhverfi lagðar fram.
Bæjarráð samþykkir að fela sviðsstjóra að semja við lægstbjóðanda, Tækniþjónustu SÁ ehf.9. Fráveita Grindavíkurbæjar - hönnun og staðarval
Niðurstöður verðkönnunar vegna 1. áfanga í fráveitukerfi Grindavíkurbæjar. Verðkönnun lýkur kl.10:00 þriðjudaginn 13. okt.
Nánari gögn um málið verða sett inn í fyrramálið eftir lok verðkönnunar.Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Niðurstöður verðkönnunar vegna 1. áfanga í fráveitukerfi Grindavíkurbæjar lagðar fram.
Bæjarráð samþykkir að fela sviðsstjóra að semja við lægstbjóðanda, Jón og Margeir ehf.11. Tilnefning í samstarfshóp - Samfélagsrannsóknir
Óskað eftir tilnefningu tveggja fulltrúa í samstarfshópinn.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð tilnefnir Nökkva Má Jónsson og Thelmu Guðbjörnsdóttur í samstarfshópinn sem fulltrúa Grindavíkurbæjar.