Bæjarráð Grindavíkur - 1503. fundur
- 08.01.2019
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 18:45
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1503
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Daggæsla - Húsaleigusamningur
Dagforeldri óskar eftir því að losna undan samningi. Ekkert uppsagnarákvæði er í samningnum sem gildir til eins árs frá og með 1. nóvember sl.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð hafnar því að leysa aðilann undan húsaleigusamningi nema ef annar aðili er tilbúinn að ganga inn í samninginn.3. Svæðisskipulag Suðurnesja - Breyting á skipulagi
Fyrir liggur tillaga að breytingu á afmörkun vatnsverndarsvæðis í Reykjanesbæ og nýtt flugbrautarkerfi Keflavíkurflugvallar.
Fyrir liggur tillaga að breytingu á afmörkun vatnsverndarsvæðis í Reykjanesbæ og nýtt flugbrautarkerfi Keflavíkurflugvallar.
Bæjarráð samþykkir breytingarnar.4. Umhverfisstofnun - Tilnefning í vatnasvæðanefnd
Umhverfisstofnun óskar eftir því að Grindavíkurbær tilnefni fulltrúa í vatnsverndarnefnd.
Umhverfisstofnun óskar eftir því að Grindavíkurbær tilnefni fulltrúa í vatnsverndarnefnd.
Bæjarráð tilnefnir Sigurð Ólafsson, sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs.5. Tölvukerfi Grindavíkurbæjar
Ræða þarf næstu skref.
Lögð fram 2 tilboð í hýsingu á netþjónum Grindavíkurbæjar.
Bæjarráð felur sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að leita eftir tilboðum í hýsingu og umsjón á miðlægu tölvukerfi Grindavíkurbæjar.6. Verkfallslistar
Listi yfir starfsmenn hjá Grindavíkurbæ sem ekki hafa verkfallsrétt. Þarf að birta fyrir 1. febrúar ár hvert.
Verkfallslistar lagðir fram og bæjarráð felur bæjarstjóra að auglýsa í Stjórnartíðindum fyrir 1. febrúar.
7. Refa- og minkaveiðar í Grindavík
Reglur um refa- og minkaveiði og greiðslur fyrir unnin dýr.
Bæjarráð samþykkir að greiðslur verði eftirfarandi:
Refir kr. 8.000 á dýr.
Yrðlingar kr. 2.000 á dýr
Verðlaun fyrir unninn mink kr. 3.500 á fullorðið dýr.
Til þess að aðili fái greitt skv. ofanrituðu þarf að liggja fyrir samningur hans við Grindavíkurbæ.8. Alþingi - Starfshópur um endurskoðun kosningalaga
Til að tryggja breiða aðkomu við endurskoðun kosningalaga er gefinn kostur á að koma athugasemdum á framfæri.
Lagt fram.
9. Ályktun um samgöngumál
Fyrir er lögð svofelld ályktun: Bæjarráð Grindavíkur telur brýnt að leitað verði leiða til að stórauka fjárveitingar til samgönguframkvæmda með umferðaröryggi að leiðarljósi. Jafnframt styður bæjarráð álagningu veggjalda svo flýta megi tilteknum framkvæmdum á sviði samgöngumála.
Tillaga að ályktun frá fulltrúum B- og D-lista:
Bæjarráð Grindavíkur telur brýnt að leitað verði leiða til að stórauka fjárveitingar til samgönguframkvæmda með umferðaröryggi að leiðarljósi. Jafnframt styður bæjarráð álagningu veggjalda svo flýta megi tilteknum framkvæmdum á sviði samgöngumála.
Bókun frá fulltrúum M-, S- og U-lista:
Fulltrúar S - M og U-lista taka heilshugar undir þann hluta ályktunar meirihluta bæjarráðs þar sem segir: „Bæjarráð Grindavíkur telur brýnt að leitað verði leiða til að stórauka fjárveitingar til samgönguframkvæmda með umferðaröryggi að leiðarljósi“.
Hvað varðar seinnihluta ályktunarinnar þá vilja fulltrúar S - M og U-lista bóka eftirfarandi.
Á meðan landsmenn kalla eftir endurbótum á vegakerfinu eykur ríkið stöðugt skattlagningu á bíleigendur sem notuð er í annað. Samt er talað um að ekki séu til peningar til viðhalds og uppbyggingar samgöngumannvirkja sem eru þó einhverjar arðbærustu framkvæmdir sem hægt er að ráðast í. Samkvæmt heimildum og sundurliðuðum tölum frá Félagi íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB um tekjur ríkissjóðs af umferðinni á árunum 2014 til 2018 kemur fram að heildartekjur ríkissjóðs af ökutækjum verði um eða yfir 330 milljarðar króna að árinu 2018 meðtöldu.
Á þessum árum 2014 - 2018 var samkvæmt reikningum og áætlunum ríkisins veitt til viðhalds vega og nýframkvæmda rúmum 73. milljörðum kr. sem er nánast sama tala og áætlaðar tekjur ríkissjóðs af ökutækjum bara á árinu 2018.
Með öðrum orðum þá eru tæpir 258 milljarðar króna sem innheimtir eru af eigendum ökutækja á þessum árum ekki notaðir til viðhalds og uppbyggingar innviða í samgöngukerfinu, heldur í eitthvað annað.
Fulltrúar S - M og U-lista vilja ennfremur leggja til að ályktun bæjarráðs Grindavíkur hljóði þannig:
Bæjarráð Grindavíkur telur brýnt að leitað verði leiða til að stórauka fjárveitingar til samgönguframkvæmda með umferðaröryggi að leiðarljósi. Leggur bæjarráð til að markaðar tekjur ríkisins af ökutækjum verði allar lagðar til uppbyggingar og endurbóta á vegakerfi landsins og skattlagning/gjalddtaka verði í samræmi við þörfina á gjaldheimtu. Ennfremur verði leitað nýrra leiða til þess að fjármagna viðhald og löggæslu á vegum landsins eins og t.d. með komugjöldum á ferðamenn en með mikilli fjölgun þeirra á síðustu árum hefur álag á samgöngumannvirki og alla grunnþjónustu aukist til mikilla muna. Veggjöld eru enn ein skattlagning á ökumenn sem nú þegar borga á milli 70 ? 80 milljarða á ári í skatta af ökutækjum sínum og hafnar bæjarráð hugmyndum um veggjöld ef ekki koma jafnframt til lækkanir annarra álaga á bifreiðaeigendur.
Ályktun B-og D- lista er samþykkt með 2 atkvæðum. Fulltrúi U- lista situr hjá.