Bæjarráð Grindavíkur - 1619. fundur
- 23.08.2022
- Fundargerð
- Kl. 15:00 - 16:35
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1619
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Helga Dís Jakobsdóttirvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Umsókn um skólavist utan lögheimilissveitarfélags
Sótt er um námsvist utan lögheimilis á komandi skólaári.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram umsókn Karólínu Hreiðarsdóttir, dags. 18.08.2022, um námsvist utan lögheimilissveitarfélags á komandi skólaári.
Bæjarráð samþykkir erindið.2. Heimilið - Beiðni um viðauka
Óskað er eftir viðauka til að mæta sértækri þjónustu við heimilismann.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram beiðni um viðauka til að mæta sértækri þjónustu við heimilismann við sambýlið á Túngötu 15-17.
Bæjarráð samþykkir erindið og að fjármögnunin verði með ónýttri heimild annarra stöðugilda sambýlisins.3. Brunavarnaáætlun Slökkvilið Grindavíkur 2022-2026
Brunavarnaáætlun Slökkvilið Grindavíkur 2022-2026 lögð fram til umfjöllunar og samþykkis.
Slökkviliðsstjóri sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Brunavarnaáætlun fyrir Slökkvilið Grindavíkur 2022-2026 lögð fram til umfjöllunar og samþykkis.
Bæjarráð samþykkir framlagða brunavarnaáætlun.4. Byggðastofnun - Samanburður fasteignagjalda viðmiðunareignar árið 2022
Lögð fram samanburðarskýrsla Byggðastofnunar vegna fasteignagjalda viðmiðunareignar árið 2022.
Lögð fram samanburðarskýrsla Byggðastofnunar vegna fasteignagjalda viðmiðunareignar árið 2022.
5. Innri leiga Eignasjóðs - viðaukabeiðni við fjárhagsáætlun 2022
Lögð er fram beiðni um viðauka vegna hækkunar gjalda hjá aðalsjóði um 52.368.578 kr. og
hækkun gjalda þjónustumiðstöðvar um 3.777.332 kr., sbr. framlagða sundurliðun,
Fjármögnun viðaukans er með hækkun tekna eignasjóðs að fjárhæð 56.145.910 kr.Lögð er fram beiðni um viðauka vegna hækkunar gjalda hjá aðalsjóði um 52.368.578 kr. og hækkun gjalda þjónustumiðstöðvar um 3.777.332 kr., sbr. framlagða sundurliðun,
Fjármögnun viðaukans er með hækkun tekna eignasjóðs að fjárhæð 56.145.910 kr.
Bæjarráð samþykkir viðaukann.6. Fjárhagsáætlun 2023-2026 - Grindavíkurbær og stofnanir
Tímaáætlun vegna fjárhagsáætlunar 2022-2025 er lögð fram til umræðu og samþykktar.
Tímaáætlun vegna fjárhagsáætlunar 2022-2025 er lögð fram til umræðu og samþykktar.
Bæjarráð samþykkir tímaáætlunina.7. Eldgos í Meradölum
Farið yfir stöðu mála.
Farið yfir stöðu mála.