Bæjarráð Grindavíkur - 1504. fundur
- 15.01.2019
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:50
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1504
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Gunnar Már Gunnarssonvaramaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Starfaflokkun hjá Grindavíkurbæ
Lögð er fram tillaga um að hækka launakjör þeirra starfahópa sem lægsta launaflokk taka hjá sveitarfélaginu.
Sviðsstjóri félagþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð er fram tillaga um að hækka launakjör þeirra starfahópa sem lægsta launaflokk taka hjá sveitarfélaginu.
Sviðsstjóra er falið að vinna málið áfram og leggja fyrir næsta fund bæjarráðs.2. Starfsumhverfi leikskóla og menntun kennara
Fræðslunefnd leggur til að skipaður verði starfshópur til að leggja fram tillögu að bættu starfsumhverfi leikskóla.
Sviðsstjóri félagþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Fræðslunefnd leggur til að skipaður verði starfshópur til að leggja fram tillögu að bættu starfsumhverfi leikskóla.
Bæjarráð telur að ekki sé þörf á því að skipa starfshóp þar sem fyrirliggjandi gögn gefi góða mynd af því hvað gera þurfi til að bæta starfsumhverfi í leikskólum.
Bæjarráð óskar eftir að leikskólastjórar leggi mat á það hvaða þættir þurfi að vera í forgangi.3. Félag eldri borgara í Grindavík - Samstarfssamningur 2019
Frístunda- og menningarnefnd leggur til að samningur milli Grindavíkurbæjar og Félags eldri borgara um skipulagt félagsstarf fyrir eldri borgara í Grindavík til 31. desember 2019 verði samþykktur.
Frístunda- og menningarnefnd leggur til að samningur milli Grindavíkurbæjar og Félags eldri borgara um skipulagt félagsstarf fyrir eldri borgara í Grindavík til 31. desember 2019 verði samþykktur.
Bæjarráð samþykkir samninginn.4. Beiðni um viðauka vegna samstarfssamnings milli Grindavíkurbæjar og Félags eldri borgara í Grindavík 2019
Í framhaldi af afgreiðslu á máli nr. 1812012(Félag eldri borgara í Grindavík - Samstarfssamningur 2019)er lögð fram beiðni um viðauka vegna fjárhagsáætlunar 2019 að upphæð kr. 50.000.
Í framhaldi af afgreiðslu á máli nr. 1812012(Félag eldri borgara í Grindavík - Samstarfssamningur 2019)er lögð fram beiðni um viðauka vegna fjárhagsáætlunar 2019 að upphæð kr. 50.000.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka að fjárhæð 50.000 kr. og að hann verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.5. Golfklúbbur Grindavíkur: Endurnýjun samstarfssamnings
Frístunda- og menningarnefnd leggur til að samningur milli Grindavíkurbæjar og Golfklúbbs Grindavíkur um eflingu golfíþróttarinnar í Grindavík 2019-2021 verði samþykktur.
Málinu frestað til næsta fundar.
6. Beiðni um viðauka vegna samstarfssamnings milli Grindavíkurbæjar og Golfklúbbs Grindavíkur 2019-2021
Í framhaldi af afgreiðslu á máli nr. 1809073 (Golfklúbbur Grindavíkur: Endurnýjun samstarfssamnings) er lögð fram beiðni um viðauka vegna fjárhagsáætlunar 2019 að upphæð kr. 200.000.
Málinu frestað til næsta fundar.
7. Tölvukerfi Grindavíkurbæjar
Fyrir liggja endanlegar tölur frá Sensa og Þekkingu.
Bæjarráð samþykkir að semja við Þekkingu ehf með rekstur á miðlægu tölvukerfi Grindavíkurbæjar.
Jafnframt samþykkir bæjarráð að auglýst verði eftir starfsmanni í 100% stöðu til að sinna notendaþjónustu við stofnanir Grindavíkurbæjar.9. Birting launakjara vegna nefndasetu á heimasíðu Grindavíkurbæjar
Sigurður Óli Þórleifsson forseti bæjarstjórnar leggur málið fyrir fundinn.
Sigurður Óli Þórleifsson forseti bæjarstjórnar leggur málið fyrir fundinn.
Tillaga
Lagt er til að Grindavíkurbær birti launakjör bæjarfulltrúa og launakjör þeirra sem sitja í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum bæjarins á heimasíðu Grindavíkurbæjar.
Tillagan er samþykkt samhljóða.
Bæjarráð felur sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að útfæra tillöguna.
10. Heimasíða Grindavíkurbæjar og upplýsingagjöf til bæjarbúa
Páll Valur Björnsson bæjarfulltrúi leggur málið fyrir fundinn.
Páll Valur Björnsson bæjarfulltrúi leggur málið fyrir fundinn.
Bæjarráð er sammála því að heimasíðan sé góður vettvangur til að miðla upplýsingum til bæjarbúa um framkvæmdir og viðburði á vegum bæjarins.11. Starfslýsingar og breytt stöðugildi í þjónustumiðstöð
Fyrir liggja starfslýsingar vegna umsjónarmanns grænna og opinna svæða og vegna starfsmanns í þjónustumiðstöð. Óskað er eftir breytingu á stöðugildum í þjónustumiðstöð Grindavíkurbæjar vegna þessa.
Lagðar fram starfslýsingar vegna umsjónarmanns grænna og opinna svæða og vegna starfsmanns í þjónustumiðstöð.
Óskað er eftir breytingu á stöðugildum í þjónustumiðstöð Grindavíkurbæjar vegna þessa.
Bæjarráð samþykkir framlagðar starfslýsingar og breytingar á stöðugildum.12. Vegagerðin - Minnispunktar vegna fundar
Lagðir fram minnispunktar vegna fundar þann 10.01.2019.
Lagðir fram minnispunktar vegna fundar með Vegagerðinni þann 10.01.2019.
13. Ný reglugerð um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga
Reglugerðin tók gildi 1. janúar sl.
Lögð fram ný reglugerð um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga en hún tók gildi 1. janúar sl.