Bæjarráð Grindavíkur - 1690. fundur
- 16.09.2025
- Fundargerð
- Kl. 14:00 - 15:15
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1690
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Eva Lind Matthíasdóttirvaramaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttirformaður
- Inga Fanney Rúnarsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Guðjón Bragasonlögfræðingur
1. Fyrirspurn um rekstur tjaldsvæðis
Lögð fram fyrirspurn frá Tjald ehf um rekstur tjaldsvæðis í Grindavík.
Lagt fram yfirlit um rekstur tjaldsvæðisins árin 2019-2025.
Bæjarráð samþykkir að Grindavíkurbær verði rekstaraðili tjaldsvæðisins á næsta ári.Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Lögð fram fyrirspurn frá Tjald ehf um rekstur tjaldsvæðis í Grindavík.
Lagt fram yfirlit um rekstur tjaldsvæðisins árin 2019-2025.
Bæjarráð samþykkir að Grindavíkurbær verði rekstaraðili tjaldsvæðisins á næsta ári.2. Geitin - Tákn samstöðu
Teikningar af Geitinni lagðar fram til kynningar. Um er að ræða samstarfsverkefni Grindavíkurbæjar og UMFG. Ungmennaráð hefur samþykkt geitina fyrir sitt leyti.
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Teikningar af Geitinni lagðar fram til kynningar. Um er að ræða samstarfsverkefni Grindavíkurbæjar og UMFG. Ungmennaráð hefur samþykkt geitina fyrir sitt leyti og segir að hún sé nett.
Bæjarráð tekur undir bókun ungmennaráðs.3. Starfsstyrkir á frístunda- og menningarsviði 2026
Umbeðin gögn frá UMFG vegna komandi árs lögð fram. Gögn verða send á bæjarfulltrúa þegar þau berast.
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Eva Lind víkur af fundi við umræður og afgreiðslu málsins.
Umbeðin gögn frá UMFG vegna komandi árs lögð fram.
Sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs er falið að vinna málið áfram.4. Varavatnsból í Vatnsheiði
Minnisblað vegna varavatnsból í Vatnsheiði kynnt.
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Forstöðumaður þjónustumiðstöðvar Grindavíkurbæjar og veitustjóri.
Minnisblað vegna varavatnsbóls í Vatnsheiði er lagt fram.
Bæjarráð samþykkir að farið verði í 1. áfanga verksins, þ.e. forvinnu og rannsóknarborholu. Gert er ráð fyrir þessu í fjárhagsáætlun ársins 2025.5. Sóknarsjóður til stuðnings lítilla og meðalstórra fyrirtækja í Grindavík
Lagðar fram reglur, dags. 1. september 2025, um úthlutun Byggðastofnunar á framlögum úr sk. Sóknarsjóði til smærri fyrirtækja í Grindavík. Sjóðurinn hefur allt að 180 m.kr. til ráðstöfunar.
Umsóknarfrestur er til kl. 16:00, 1. október 2025.Lagðar fram reglur, dags. 1. september 2025, um úthlutun Byggðastofnunar á framlögum úr sk. Sóknarsjóði til smærri fyrirtækja í Grindavík. Sjóðurinn hefur allt að 180 m.kr. til ráðstöfunar.
Umsóknarfrestur er til kl. 16:00, 1. október 2025.
Bæjarráð hvetur smærri og meðalstór fyrirtæki í Grindavík að sækja um stuðning úr Sóknarsjóði og vekur athygli á því að fyrirtæki geta leitað til SSS um aðstoð við umsóknina.6. Fundir forsætisráðuneytis og Grindavíkurbæjar
Næsti fundur verður 17. september.
Dagskrá:
Sæl verið þið
Við höldum okkar þriðja fund á miðvikudaginn næsta. Við hér í FOR sjáum dagskrá fundarins fyrir okkur með þessum hætti, sbr. umræðu í lok 2. fundar.
1. Þórkatla ? staða og stefnumótun ? Örn Viðar frá Þórkötlu með kynningu
2. Framhald umræðu frá síðasta fundi
i. Greint frá fundum með Jöfnunarsjóði
ii. Greint frá fundi með Þjóðskrá og Landkjörstjórn
iii. Kynntar útvíkkaðar sviðsmyndir um fjármál Grindavíkurbæjar
3. Endurreisnaráætlun, mögulegt samstarf við Alþjóðabankann og sveitarstjórnarkosningar ? Grindavíkurnefnd leiðir þessa umræðu.
Góða helgi
BenediktDagskrá næsta fundar kynnt og rædd en hann verður á morgun, 17. september.
7. Tækifærisleyfi - Tímabundið áfengisleyfi - U.M.F.G.
Óskað er umsögn um breytingu á leyfinu.
1. Breyting á staðsetningu sals innan hússins, úr Gjánni í íþróttasal.
2. Gildistími framlengdur um klukkustund, þ.e. til 01:00 aðfararnætur 14. september.Bæjarráð samþykkir veitingu leyfisins.