Bæjarráð Grindavíkur - 1639. fundur
- 21.03.2023
- Fundargerð
- Kl. 15:00 - 18:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1639
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Helga Dís Jakobsdóttirvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
Formaður óskar eftir að taka inn mál með afbrigðum sem þriðja mál:
2111026: Húsnæðismál Fisktækniskóla Íslands
Samþykkt samhljóða.
1. Endurskoðun á skipuriti Grindavíkurbæjar
Framhald umræðna um nýtt skipurit. Engin undirgögn fylgja málinu.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og hafnarstjóri sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Farið yfir tillögur að nýju skipuriti.2. Húsnæðisaðstæður skólaþjónustu, félagsþjónustu og barnaverndar
Farið verður yfir stöðu mála.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að gera viljayfirlýsingu um gerð leigusamnings út yfirstandandi kjörtímabil í þágu félagsþjónustu- og fræðslusviðs á Hafnargötu 8, þ.e. Hælsvíkurhúsinu.3. Húsnæðismál Fisktækniskóla Íslands
Málið tekið fyrir að nýju í framhaldi af síðasta bæjarráðsfundi.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Tillaga
Bæjarráð felur bæjarstjóra að gera viljayfirlýsingu um gerð leigusamnings til 10 ára með heimild til framleigu til Fisktækniskóla Íslands. Að liðnum 5 árum tekur Fisktækniskóli Íslands við skyldum leigutaka samkvæmt samningi á Hafnargötu 8, þ.e. Hælsvíkurhúsinu.
Með þessari viðleitni Grindavíkurbæjar er skorað á ríkisvaldið að tryggja skólanum húsnæðisframlag á fjárlögum til framtíðar í samræmi við aðra einkarekna framhaldsskóla.
Tillagan er samþykkt með 2 atkvæðum meirihluta, Hallfríður greiðir atkvæði á móti.4. Beiðni um viðauka - Búnaður í leikskóla
Sótt er um viðauka til endurnýjunar á búnaði.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram beiðni um viðauka að fjárhæð 600.000 kr. til kaupa á þurrkara í Laut. Lagt er til að viðaukinn verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukabeiðnina.5. Málefni fatlaðs fólks - Beiðni um viðauka
Sótt er um viðauka til að fjármagna þjónustuáætlun undir málefnum fatlaðs fólks.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram beiðni um viðauka að fjárhæð 4.649.000 kr. til að mæta kostnaði við þjónustu í málaflokki fatlaðs fólks. Lagt er til að viðaukinn verði fjármagnaður með hækkun á framlagi jöfnunarsjóðs vegna málefna fatlaðra.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukabeiðnina.6. Beiðni um fjárstuðning vegna eineltismála
Promis ehf. óskar eftir stuðningi vegna kaupa á hettupeysum sem gefa á öllum 12 ára börnum á Suðurnesjum.
Promis ehf. óskar eftir stuðningi að fjárhæð 250.000 kr. vegna kaupa á hettupeysum sem gefa á öllum 12 ára börnum á Suðurnesjum.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.7. Hafnargata 12a (Kvikan) - beiðni um viðauka
Sótt er um viðauka vegna framkvæmda við útiglugga og hurðir í Kvikunni. Á fjárfestingaráætlun fyrir árið 2023 er samþykkt að setja 15 milljónir króna í verkefnið. Umsjónarmanni fasteigna reiknast til að kostnaðurinn verði rúmar 21 milljón króna.
Erindinu fylgir tölvupóstur frá umsjónarmanni fasteigna vegna málsins.Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram beiðni um viðauka vegna framkvæmda við útiglugga og hurðir í Kvikunni. Á fjárfestingaráætlun fyrir árið 2023 er samþykkt að setja 15 milljónir króna í verkefnið. Umsjónarmanni fasteigna reiknast til að kostnaðurinn verði rúmar 21 milljón króna og því er óskað eftir 6.300.000 kr. viðauka sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukabeiðnina.8. Uppbygging lóða við Víðihlíð
Borist hefur bréf frá Synergía ehf./Render ehf. varðandi lóðir merktar nr. 2, 3, 5 og 6 á deiliskipulagi fyrir Víðihlíð.
Lagt fram bréf frá Synergía ehf./Render ehf., dags 13. mars 2023, varðandi uppbyggingu á lóðum merktum nr. 2, 3, 5 og 6 á deiliskipulagi fyrir Víðihlíð.
Bæjarráð lýsir ánægju sinni með hugmyndina í bréfinu og felur bæjarstjóra að vinna málið áfram.9. 50 ára kaupstaðarafmæli Grindavíkurbæjar
Rætt um skipan afmælisnefndar.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð tilnefnir eftirfarandi í afmælisnefndina:
Aðalmenn:
Aðalgeir Johansen
Ásrún Helga Kristinsdóttir
Emilía Ósk Jóhannesdóttir
Kristín E. Pálsdóttir
Lára Lind Jakobsdóttir
Varamenn:
Tómas Breki Bjarnason
Valdís Inga Kristinsdóttir10. Erindi frá stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum
Fyrir liggja drög að ársreikningi sambandsins fyrir árið 2022. Enn fremur bókun stjórnar vegna skuldar HES við S.S.S.
Lögð fram drög að ársreikningi Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum fyrir árið 2022.
Enn fremur er lögð fram bókun stjórnar SSS vegna skuldar HES við S.S.S. sem stjórnin leggur til að greidd verði upp á tveimur árum. Hlutur Grindavíkurbæjar er 6.163.443 kr.
Bæjarráð staðfestir að Grindavíkurbær mun greiða sinn hlut.