Bæjarráð Grindavíkur - 1685. fundur
- 01.07.2025
- Fundargerð
- Kl. 14:00 - 15:45
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1685
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Inga Fanney Rúnarsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Guðjón Bragasonlögfræðingur
1. Rekstrarkostnaður slökkviliðs Grindavíkur
Borist hefur tölvupóstur frá Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra vegna rekstrarkostnaðar við slökkviliðið.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Slökkviliðsstjóri og hafnarstjóri.
Borist hefur tölvupóstur frá Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra vegna rekstrarkostnaðar við slökkviliðið þar sem því er hafnað að greiða reikning fyrir apríl vegna verkefna sem slökkviliðið hefur með höndum vegna almannavarnarástands.
Bæjarráð lýsir yfir miklum vonbrigðum með hversu lítill fyrirvari var á því að gera breytingar á kostnaðarhlutdeild almannavarna í verkefnum slökkviliðs Grindavíkur.2. Fráveita Grindavíkurbæjar - aðgerðaáætlun og áfangaskipting
Eftir að þessum áfanga sem er núna er í gangi 3.b dælustöð Seljabót er tilefni til að endurskoða næstu áfanga og skoða fjármögnun.
Mögulegt er að brjóta upp í minni einingar eftir fjármagni og skoða hvort bæta þurfi fóðrun lagna t.d. vesturstofn inn í áætlun.
Undirbúningur er að hefjast á þeirri yfirferð með Eflu og gott væri að taka þetta mál með bæjarráði til að sjá vilja og hvé miklu sé hægt að ráðstafa í hvern áfanga næstu ár.Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Forstöðumaður þjónustumiðstöðvar og hafnarstjóri.
Lögð fram núgildandi áfangaskipting fráveituframkvæmda.
Bæjarráð felur forstöðumanni þjónustumiðstövar að gera tillögu að nýrri áfangaskiptingu inn í fjárhagsáætlunarvinnu fyrir næstu ár.3. Stígakerfi utan þéttbýlis
Umræða, staða og tillögur að stígakerfi utan þéttbýlis
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Forstöðumaður þjónustumiðstöðvar.
Lagðar fram tillögur að stígakerfi utan þéttbýlis.
Bæjarráð vísar tillögunum til innviðanefndar.4. Vegaframkvæmdir í landi Þórkötlustaða
Borist hefur erindi frá Stakkavík ehf. vegna framkvæmda við slóða í landi Þórkötlustaða.
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Forstöðumaður þjónustumiðstöðvar.
Lagt fram erindi frá Stakkavík ehf. dags. 27. júní 2025 vegna framkvæmda við slóða í landi Þórkötlustaða.
Bæjarstjóra falið að ræða við málsaðila.5. Styrkir vegna íþróttaafreka
Ekki er gert ráð fyrir styrkjum vegna landsliðsverkefna í fjárhagsáætlun. Hver er vilji bæjarráðs í þeim efnum?
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Ekki er gert ráð fyrir styrkjum vegna landsliðsverkefna Grindvíkinga í fjárhagsáætlun 2025 eins og fyrri ár þar sem ekki var gert ráð fyrir að að þörf væri á slíku.
Bæjarráð samþykkir viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2025 að fjárhæð 250.000 kr. sem fjármagnaður verður með lækkun á handbæru fé.
Sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs og samfélagsnefnd er falið að úthluta þessum styrkjum í samræmi við gildandi verklagsreglur.6. Víkurbraut 58 - Leyfisveitingar
Borist hefur erindi frá sýslumannsembættinu á Suðurnesjum vegna umsagnarbeiðni um leyfi til reksturs gististaðar í flokki IV ? A. Umsækjandi er Brimex ehf., kt. 441124-0230 vegna Geo Hótels að Víkurbraut 58 í Grindavík.
Lagt fram erindi frá sýslumannsembættinu á Suðurnesjum vegna umsagnarbeiðni um leyfi til reksturs gististaðar í flokki IV - A Hótel. Umsækjandi er Brimex ehf., kt. 441124-0230 vegna Geo Hótels að Víkurbraut 58 í Grindavík.
Bæjarráð Grindavíkur gerir ekki athugasemd við að veitt verði rekstrarleyfi fyrir hóteli að Víkurbraut 58, í samræmi við umsókn, enda liggi fyrir jákvæðar umsagnir Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja, Slökkviliðsstjóra og að byggingarfulltrúi staðfesti að lokaúttekt hafi farið fram.7. Skattlagning orkufyrirtækja - mál S-89-2025
Lögð fram umsögn Grindavíkurbæjar um skattlagningu orkumannvirkja, dags. 20.06.2025
Lögð fram umsögn Grindavíkurbæjar um skattlagningu orkumannvirkja, dags. 20.06.2025.
8. Fasteignagjöld 2026
Áætlun fasteignagjalda fyrir árið 2026 er lögð fram.
Áætlun fasteignagjalda fyrir árið 2026 er lögð fram.
9. Fundargerðir 2025 - Stjórn sambands íslenskra sveitarfélaga
Fundargerð 980. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 27.05.2025 er lögð fram til kynningar
Fundargerð 980. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 27.05.2025 er lögð fram til kynningar.
10. Fundargerðir 2025 - Stjórn sambands íslenskra sveitarfélaga
Fundargerð 981. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 13.06.2025 er lögð fram til kynningar
Fundargerð 981. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 13.06.2025 er lögð fram til kynningar.
11. Fundargerðir 2025 - Stjórn sambands íslenskra sveitarfélaga
Fundargerð 982. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 16.06.2025 er lögð fram til kynningar
Fundargerð 982. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 16.06.2025 er lögð fram til kynningar.
12. Fundargerðir 2025 - Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum
Fundargerð 813. fundar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum dags. 04.06.2025 er lögð fram til kynningar.
Fundargerð 813. fundar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum dags. 04.06.2025 er lögð fram til kynningar.
13. Fundargerðir 2025 - Þekkingarsetur Suðurnesja
Fundargerð 56. fundar Þekkingarseturs Suðurnesja frá 28.5.2025 lögð fram og kynnt.
Fundargerð 56. fundar Þekkingarseturs Suðurnesja frá 28.5.2025 er lögð fram til kynningar.
14. Fundargerðir 2025 - Þekkingarsetur Suðurnesja
Fundargerð 13. ársfundar Þekkingarseturs Suðurnesja frá 28.5.2025 lögð fram og kynnt
Fundargerð 13. ársfundar Þekkingarseturs Suðurnesja frá 28.5.2025 er lögð fram til kynningar.
15. Fundargerðir 2025 - Kalka sorpeyðingarstöð
Fundargerð 569. fundar Kölku dags. 13.05.2025 er lögð fram til kynningar.
Fundargerð 569. fundar Kölku dags. 13.05.2025 er lögð fram til kynningar.
16. Fundargerðir - Heilbrigðisnefnd Suðurnesja 2025
Fundargerð 318. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurnesja dags. 05.06.2025 er lögð fram til kynningar.
Fundargerð 318. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurnesja dags. 05.06.2025 er lögð fram til kynningar.