Bæjarráð Grindavíkur - 1593. fundur
- 05.10.2021
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 17:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1593
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Sævar Þór Birgissonvaramaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Skjalastefna Grindavíkur
Skjalastefna Grindavíkurbæjar lögð fram til samþykktar í bæjarráði og síðan staðfestingar í bæjarstjórn.
Skjalastefna Grindavíkurbæjar lögð fram.
Bæjarráð samþykkir framlagða skjalastefnu og vísar henni til staðfestingar í bæjarstjórn.2. Tækifærisleyfi - Körfuknattleiksdeild Grindavíkur
Sótt er um tímabundið áfengisleyfi vegna herrakvölds í íþróttamiðstöðinni í Grindavík 16. október 2021.
Málinu er frestað til næsta fundar bæjarráðs.
3. Bláa Lónið - starfsmannamál
Umræður um stöðu mála.
Umræður um stöðu mála.
Bókun frá fulltrúa B-lista
Bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins harmar þá ákvörðun að færa skrifstofustörf úr Bláa lóninu við Svartsengi á höfuðborgarsvæðið.
Hefðbundin skrifstofustörf eru ekki mörg á svæðinu, og hvetjum við Bláa lónið sem og önnur fyrirtæki á Reykjanesi til að halda skrifstofustörfum heima í héraði.4. Fjárhagsáætlun 2022-2025 - Grindavíkurbær og stofnanir
Gögn forstöðumanna vegna fjárhagsáætlunar 2022-2025 hafa verið send í tölvupósti til bæjarfulltrúa.
Lagt fram málaflokkayfirlit og rekstur niður á bókhaldslykla.Tillögur forstöðumanna vegna fjárhagsáætlunar 2022-2025 eru lagðar fram ásamt málaflokkayfirliti 2016-2022.
5. Bílastæði - Ósk um stækkun stæða til móts við Hafnargötu 4-6
Drög að samkomulagi vegna bílastæða við Hafnargötu 2-6 lögð fram til umfjöllunar.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við samkomulagið og felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að vinna málið áfram.