Bæjarráð Grindavíkur - 1694. fundur
- 11.11.2025
- Fundargerð
- Kl. 14:00 - 16:30
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1694
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Inga Fanney Rúnarsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Guðjón Bragasonlögfræðingur
Inga Fanney sat fundinn í Teams.
1. Rammasamningur - Niðurrif altjónshúsa í Grindavík
Útboðs gögn eru svo til tilbúinn og minniháttar breytignar verða á gögnum. Minnisblað er lagt fram. Óskað er eftir viðbrögðum bæjarráð.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Forstöðumaður þjónustumiðstöðvar, hafnarstjóri og skipulagsfulltrúi (Teams)
Lagt fram minnisblað "Undirbúningar niðurrifs altjónseigna í Grindavík" dags. 11. nóv. 2025 ásamt drögum að útboðslýsingu.
Bæjarráð samþykkir að auglýsa útboð á rammasamningi vegna niðurrifs altjónshúsa skv. útboðsskilmálum.2. Skil á lóð - Staðarsund 3
Sem fulltrúi allra eigenda og hluteigandi í einu af bilum hússins að Staðarsundi 3 óskar Marteinn Jónsson eftir því að aflýsa lóðarleigusamningi fyrir Staðarsund 3 og skila lóðinni.
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Skipulagsfulltrúi (Teams).
Bæjarráð samþykkir framkomna beiðni um aflýsingu á lóðarleigusamningi og þar með skil á lóð og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.3. Skil á lóð - Melhólabraut 4, Orf Líftækni
Berglind Rán Ólafsdóttir óskar eftir því að aflýsa lóðarleigusamningi fyrir Orf Líftækni að Melhólabraut 4 sem fyrirtækið gerði við bæinn og skila lóðinni skv. meðfylgjandi uppsagnarbréfi dags. 04.nóvember.
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Skipulagsfulltrúi (Teams).
Bæjarráð samþykkir framkomna beiðni um aflýsingu á lóðarleigusamningi og þar með skil á lóð og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.4. Rekstur slökkviliðs í Grindavík og öryggisgæsla í bænum
Undirritaður hefur verið þjónustu- og samstarfssamningur um rekstur Slökkviliðs Grindavíkur.
Lagður fram samstarfssamningur um rekstur slökkviliðs Grindavíkur ásamt viðaukum.
5. Íþróttafólk Grindavíkur 2025
Samfélagsnefnd leggur til að horfið verður til þess fyrirkomulags sem var við lýði fyrir rýmingu við val á íþróttafólki Grindavíkur. Lagt er til að átta aðilar sjái um valið í stað tíu áður.
Samfélagsnefnd leggur til að horfið verður til þess fyrirkomulags sem var við lýði fyrir rýmingu við val á íþróttafólki Grindavíkur. Lagt er til að átta aðilar sjái um valið í stað tíu áður.
Bæjarráð samþykkir tillögu samfélagsnefndar.6. Sóknarsjóður til stuðnings lítilla og meðalstórra fyrirtækja í Grindavík
Stjórn Byggðastofnunar hefur samþykkt styrki úr Sóknarsjóði fyrir smærri fyrirtæki í Grindavík. Sjá nánar frétt um úthlutun á heimasíðu Byggðastofnunar.
https://www.byggdastofnun.is/is/frettir/category/1/uthlutun-soknarsjods-til-studnings-smaerri-fyrirtaekja-i-grindavikLögð fram bókun Stjórnar Byggðastofnunar en þar kemur fram að samþykktir hafa veriö styrkir úr Sóknarsjóði fyrir smærri fyrirtæki í Grindavík, alls 130,4 millj. kr.
7. Samkomulag um stuðning við stjórnsýslu og fjárhag sveitarfélagsins
Fyrir liggur bókun frá ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna samkomulags innviðaráðherra og Grindavíkurbæjar.
Lögð fram bókun ráðgjafanefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna samkomulags innviðaráðherra og Grindavíkurbæjar þar sem mælt er með 600 millj. kr. framlagi til Grindavíkurbæjar.
8. Fjárhagsáætlun 2026-2029 - Grindavíkurbær og stofnanir
Hallfríður vék af fundi kl. 15:50
Sviðsstjórar mæta á fundinn og svara fyrirspurnum um mögulega starfsemi 2026.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs (Teams), sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, hafnarstjóri, launafulltrúi og Gunnar Már.
Farið yfir mögulegar forsendur vegna rekstrar Grindavíkurbæjar og stofnana fyrir árið 2026.