Bæjarráð Grindavíkur - 1582. fundur
- 18.05.2021
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 17:05
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1582
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Helga Dís Jakobsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir að taka á dagskrá mál með afbrigðum sem 7. mál: 2105113 - Landakaup - beiðni um viðauka.
Samþykkt samhljóða.
1. Skólastjóri grunnskóla - Ráðning
Bæjarráð upplýst um framvindu ráðningarinnar.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
9 umsóknir bárust.2. Daggæsla barna í heimahúsi - Staðan haust 2021
Bæjarráði gerð grein fyrir stöðu mála í daggæslu barna í heimahúsi eins og hún lítur út fyrir að verða í haust komandi og til áramóta.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Minnisblað daggæslufulltrúa lagt fram.3. Ræstingar í leikskólanum Laut
Lögð fram beiðni um viðauka frá Leikskólanum Laut vegna fyrirhugaðra breytinga á fyrirkomulagi ræstinga.
Lögð fram beiðni um viðauka frá Leikskólanum Laut vegna fyrirhugaðra breytinga á fyrirkomulagi ræstinga að fjárhæð 2.230.000 kr.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka að fjárhæð 2.230.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun launaliða hjá leikskólanum um kr. 2.905.000 kr.4. Áhrif eldgoss á sýrustig úrkomu
Minnisblað frá Einari Sveinbjörnssyni lagt fram um áhrif eldgoss á úrkomu í Grindavík.
Lagt fram minnisblað frá Einari Sveinbjörnssyni, veðurfræðingi og Sveini Gauta Einarssyni, umhverfisverkfræðingi.
Bæjarráð samþykkir að Grindavíkurbær sjái um söfnun regnvatns skv. minnisblaðinu.5. Bonn-áskorunin um útbreiðslu eða endurheimt skóga
Með verkefninu vilja íslensk stjórnvöld auka landgæði, efla jarðvegsauðlindina og styrkja byggð í landinu. Óskað er eftir þátttöku sveitarfélaga og annarra hagsmunaaðila vítt og breitt um landið.
Erindið lagt fram en um er að ræða alþjóðlegt átak um utbreiðslu og endurheimt skóga.
Með verkefninu vilja íslensk stjórnvöld auka landgæði, efla jarðvegsauðlindina og styrkja byggð í landinu. Óskað er eftir þátttöku sveitarfélaga og annarra hagsmunaaðila vítt og breitt um landið.
Bæjarráð samþykkir þátttöku í verkefninu.6. Óskipt land Þórkötlustaða
Minnisblað vegna málsins lagt fram.
Minnisblað bæjarstjóra er lagt fram.
Bæjarstjóra er falið að vinna málið áfram.7. Landakaup - beiðni um viðauka
Lögð fram beiðni um viðauka við fjárfestingaáætlun 2021 vegna kaupa á landi að fjárhæð 11.750.000 kr.
Lögð fram beiðni um viðauka við fjárfestingaáætlun 2021 að fjárhæð 11.941.000 kr. vegna kaupa á landi.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka að fjárhæð 11.941.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.