Bæjarráð Grindavíkur - 1727. fundur
- 10.11.2026
- Fundargerð
- Kl. 14:00 - 15:05
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1727
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Guðbjörg Eyjólfsdóttirformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttirvaraformaður
- Magnús Már Jakobssonaðalmaður
Starfsmenn
- Pétur Georg Markanbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Guðjón Bragasonlögfræðingur
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir heimild til að taka eftirfarandi 2 mál á dagskrá með afbrigðum sem 6. og 7. mál:
2611021 Rekstur slökkviliðs 2027 - samningur við forsætisráðuneytið
2611022 Ráðning sviðsstjóra hjá Grindavíkurbæ
Samþykkt samhljóða
1. Vesturhóp - Niðurrif og sprunguviðgerð
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Eigna- og veitustjóri Grindavíkurbæjar.
Minnisblað eigna- og veitustjóra er lagt fram.2. Ágóðahlutagreiðsla 2026 - EBÍ
Lagt fram bréf frá EBÍ, dags. 28. október 2026, þar sem fram kemur að það verður engin ághóðahlutagreiðsla í ár.
3. Rammasamningur STEFs og SFH við sveitarfélög innan Sambands íslenskra sveitarfélaga
Lagður fram rammasamningur um höfundarréttargjöld vegna tónflutnings sveitarfélaga.
Þann 28. ágúst sl. samþykkti stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga rammasamning við STEF og Samband flytjenda og hljómplötuframleiðenda (SFH) vegna opinbers tónflutnings á vegum sveitarfélaga. Jafnframt var Sambandinu falið að kynna samninginn fyrir sveitarfélögum og hvað hann felur í sér ef þau kjósa að nýta sér hann.
Bæjarráð samþykkir að semja við STEF og SFH á grunni rammasamningsins.4. HES, verkefni sem flytjast til sveitarfélaganna
Lögð fram fundargerð 1. fundar starfshóps vegna breytinga á fyrirkomulagi heilbrigðiseftirlits.
Einnig lögð fram þau gögn sem borist hafa Grindavíkurbæ vegna málsins.5. Rekstraryfirlit janúar - september 2026 - Grindavíkurbær og stofnanir
Lagt fram rekstaryfirlit fyrir janúar - september 2026 í samanburði við áætlun ársins.
6. Rekstur slökkviliðs Grindavíkur 2027 - samningur við forsætisráðuneyti
Lögð fram endanleg drög að þjónustu- og samstarfssamningi um rekstur Slökkviliðs Grindavíkur vegna ársins 2027.
Bæjarráð samþykkir samninginn, sem gildir frá 1. janúar 2027 til 31. desember sama ár. Starfsemi slökkviliðs á sólarhringsvöktum er ein af lykilforsendum varðandi öryggi í Grindavík og er endurnýjun samningsins því til þess fallin að styðja við þá niðurstöðu áhættumatsins að óhætt er að dvelja og starfa í Grindavík. Telur bæjarráð því tilefni til þess að þakka forsætisráðuneytinu og öðrum sem komu að gerð samkomulagsins fyrir gott samstarf um þetta mikilvæga mál.7. Ráðning á sviðsstjóra hjá Grindavíkurbæ
Lögð fram þrjú tilboð í ráðningarferlið.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði frá Hagvangi.