Bæjarráð Grindavíkur - 1579. fundur
- 20.04.2021
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 18:10
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1579
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Helga Dís Jakobsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Nafn á nýju hrauni og gígum við Fagradalsfjall
Drög að erindi til Örnefnanefndar lögð fram.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Á fundinn mættu eftirfarandi: Formaður landeigendafélaga Hrauns, Sigurður G. Gíslason (í gegnum Teams). Formaður landeigendafélags Ísólfsskála, Guðrún Björk Guðsteinsdóttir (í gegnum Teams) Gísli G. Sigurðsson. Valgerður Söring Valmundsdóttir mætti fyrir ábúendur á Hrauni.
Með vísan til laga um örnefni nr. 22/2015 óskar bæjarráð eftir umsögn Örnefnanefndar um eftirfarandi tillögur að heiti á nýtt hraun austan Fagradalsfjalls: Fagradalshraun eða Fagrahraun.2. Sumarstörf 2021
Lagðar fram tillögur forstöðumanna að sumarstörfum fyrir háskólanema.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs falið að sækja um styrk vegna sumarstarfa námsmanna.3. Vinnuskóli Grindavíkurbæjar 2021
Vegna fjölda skráninga í Vinnuskólann sumarið 2021 er óskað eftir viðauka til að fjölga flokkstjórum.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2021 að fjárhæð 8.700.000 kr. vegna vinnuskólans.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann og að hann verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.
Starfsáætlun vinnuskólans skal taka mið að því fé sem ætlað er í vinnuskólann.4. Umsókn um skólavist
Samþykkt hefur verið skólavist fyrir nemanda í Arnarskóla á höfuðborgarsvæðinu. Sækja þarf um viðauka til að mæta þeim kostnaði.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Erindið er bókað í trúnaðarmálabók.5. Öryggisgæsla á viðeigandi stofnun
Bæjarráði kynnt staða málsins og eftir atvikum kallað eftir bókun í veganesti í viðræður við ráðuneytið.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Erindið er bókað í trúnaðarmálabók.6. Viðhald tengivega að bryggjum
Á hafnarsvæði Grindavíkur liggja akvegir að bryggjum. Mörk þeirra og bryggja liggja ekki fyrir í skipulagi. Taka þarf ákvörðun um hvar mörk akvega og bryggja liggja og hvort kostnaður vegna viðhalds tengiveganna færist á hafnarsjóð eða þá bæjarsjóð.
Hafnarstjóri sat fundinn undir þessum dagskrárlið í gegnum Teams.
Hafnarsjóði er falið að sjá um viðhald á aðkomuvegum innan hafnarsvæðis skv. framlagðri teikningu.7. Ársuppgjör 2020 - Grindavíkurbær og stofnanir
Ársreikningur 2020 lagður fram.
Vísa þarf ársreikningi til fyrri umræðu í bæjarstjórn.Ársreikningur Grindavíkurbæjar og stofnana fyrir árið 2020 er lagður fram.
Bæjarráð samþykkir ársreikninginn og vísar honum til endurskoðunar og afgreiðslu bæjarstjórnar í samræmi 18. gr. og 61. gr. laga nr. 138/2011.8. Frístundamál - trúnaðarmál
Lagt fram.