Bæjarráð Grindavíkur - 1671. fundur
- 03.12.2024
- Fundargerð
- Kl. 14:00 - 16:10
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1671
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Sævar Þór Birgissonvaraformaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
- Guðjón Bragasonlögfræðingur
1. Varðveisla minja og aðgengi ferðamanna - Rammaskipulag
Lagt fram minnisblað um sýn íbúa á það hvaða ummerki um jarðhræringar ætti að varðveita.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Skipulagsfulltrúi (Teams), Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, sviðsstjóri frístunda-og menningarsviðs og forstöðumaður þjónustumiðstöðvar.
Lagt fram minnisblað um sýn íbúa á það hvaða ummerki um jarðhræringar ætti að varðveita.2. Stjórn Körfuknattleiksdeildar Grindavíkur óskar eftir stuðningi
Stjórn körfuknattleiksdeildar UMFG óskar eftir styrk að upphæð 10.000.000 kr.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóri frístunda-og menningarsviðs.
Stjórn körfuknattleiksdeildar UMFG óskar eftir styrk að upphæð 10.000.000 kr.
Bæjarráð samþykkir erindið.3. Austurvegur 5 - Umsókn um byggingarleyfi (Niðurrif)
Sigurður Rúnar Karlsson sækir um leyfi til niðurrifs á viðbyggingu Austurvegi 5, Víðihlíð.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Skipulagsfulltrúi (Teams), Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, sviðsstjóri frístunda-og menningarsviðs og forstöðumaður þjónustumiðstöðvar.
Sigurður Rúnar Karlsson sækir um leyfi til niðurrifs á viðbyggingu Austurvegi 5, Víðihlíð.
Bæjarráð samþykkir niðurrif hússins.4. Víðihlíð Niðurrif Tilboð
Tilboð í niðurrif á viðbyggingu Austurvegi 5, Víðihlíð
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Skipulagsfulltrúi (Teams), Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, sviðsstjóri frístunda-og menningarsviðs og forstöðumaður þjónustumiðstöðvar.
Lagt fram tilboð frá Jóni og Margeir í niðurrif á viðbyggingu Austurvegi 5, Víðihlíð að fjárhæð 17.120.000 kr.
Bæjarráð samþykkir tilboðið.6. Starfsmannamál
Mál sett á dagskrá með vísan í umræður eftir síðasta bæjarstjórnarfund.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, sviðsstjóri frístunda-og menningarsviðs.
Málinu vísað til fjárhagsáætlunargerðar fyrir árið 2025.7. Reykjanesfólkvangur - Breyting á auglýsingu um friðlýsingu
Umhverfisstofnun hefur kynnt áform um breytingar á friðlýsingu Reykjanesfólkvangs er snýr að skipun stjórnar fólkvangsins.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Skipulagsfulltrúi (Teams), Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóri frístunda-og menningarsviðs.
Lögð fram tillaga frá Umhverfisstofun að breytingu á auglýsingu um friðlýsingu Reykjanesfólkvangs, dags. 21. nóvember 2024.8. Afstaða ríkisins til hlutafjáreignar í Eignarhaldsfélags Suðurnesja
Undirbúningur er hafinn um að losað verði um eignarhlut ríkisins í Eignarhaldsfélagi Suðurnesja.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóri frístunda-og menningarsviðs.
Undirbúningur er hafinn um að losað verði um eignarhlut ríkisins í Eignarhaldsfélagi Suðurnesja.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.9. Framlag til eflingar atvinnulífs í Grindavík
Farið yfir erindi vegna sverunar aðveitulagnar.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóri frístunda-og menningarsviðs.
Lagt fram erindi frá Aurora Abalone vegna sverunar á heitavatnslögn að aðstöðu þeirra við Ægisgötu.
Bæjarráð felur bæjarstjóra og forstöðumanni þjónustumiðstöðvar að vinna málið áfram.