Bæjarráð Grindavíkur - 1553. fundur
- 14.07.2020
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 16:50
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1553
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Sævar Þór Birgissonvaramaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Klappir grænar lausnir - ósk um viðauka
Atli Geir mætir á fundinn og gerir grein fyrir í hverju þetta felst og hverju þetta geti skilað Grindavíkurbæ.
Minnisblað lagt fram.
Lögð fram beiðni um viðauka á árið 2020 að upphæð kr. 360.000 vegna áskriftar umhverfisstjórnunarkerfis hjá Klöppum grænum lausnum þó einungis ef samþykkt er að halda áfram með verkefnið.Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð samþykkir að segja samningnum upp en vísa málinu í áætlunarvinnu fyrir næsta ár og þar verði tekin ákvörðun um áframhald.2. Efrahóp 29 - húsgrunnur á lóð
Íbúar við EfraHóp leggja fram kvörtun vegna húsgrunns á lóð Efrahópi 29. Lóðin er í eigu Grindavíkurbæjar.
Til að verða við beiðninni þarf viðauka.Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Íbúar við EfraHóp leggja fram kvörtun vegna húsgrunns á lóð Efrahópi 29. Lóðin er í eigu Grindavíkurbæjar.
Sigurður Óli víkur af fundi við umræður og afgreiðslu málsins.
Bæjarráð samþykkir að fjarlægja grunninn og felur sviðsstjóra að vinna málið áfram.3. Innri leiga Eignasjóðs - viðauki við fjárhagsáætlun 2020
Lögð fram beiðni um viðauka vegna reiknaðrar leigu Eignasjóðs 2020.
Endurreikningur er vegna fjárfestinga árið 2020 inn í leigugrunn.
Um er að ræða hækkun gjalda aðalsjóðs um 18.226.993 kr. og þjónustumiðstöðvar um 3.409.271 kr. Fjármögnunin er með hækkun tekna eignasjóðs um 21.636.264 kr.Lögð fram beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun 2020 vegna endurreiknings á innri leigu eignasjóðs.
Um er að ræða hækkun gjalda aðalsjóðs um 18.226.993 kr. og þjónustumiðstöðvar um 3.409.271 kr. Fjármögnunin er með hækkun tekna eignasjóðs um 21.636.264 kr.
Bæjarráð samþykkir viðaukann.4. Skatttekjur 2020
Lagt fram yfirlit yfir innheimtu staðgreiðslu og fasteignagjalda árin 2010-2020.
Fram til júní 2020 hefur innheimta fasteignagjalda sem hlutfall af álagningu ársins verið í samræmi við innheimtu fyrri ára.
Innheimta staðgreiðslu til júníloka 2020 sem hlutfall af áætlun er minni heldur en fyrri ár.Lagt fram yfirlit yfir innheimtu staðgreiðslu og fasteignagjalda árin 2010-2020.
5. Innri langtímalán Grindavíkurbæjar
Í samræmi við fjárhagsáætlun 2020 eru gerð ný langtímalán frá aðalsjóði til B-hluta fyrirtækja sem taka yfir uppsafnaða viðskiptaskuld þeirra auk uppgreiðslu láns frá aðalsjóði sem veitt var 2012.
Lagt fram yfirlit yfir lánsfjárþörf B-hluta fyrirtækja Grindavíkurbæjar.
Bæjarráð vísar lánaskjölunum til bæjarstjórnar til samþykktar.6. Fjárhagsáætlun 2021-2024 - Grindavíkurbær og stofnanir
Bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 2. júlí 2020 um forsendur fyrir vinnslu fjárheimilda ársins 2021 og fjárhagsáætlana til þriggja ára lagt fram.
Bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 2. júlí 2020 um forsendur fyrir vinnslu fjárheimilda ársins 2021 og fjárhagsáætlana til þriggja ára lagt fram.
7. Fasteignagjöld 2021
Lögð fram áætlun fasteignagjalda fyrir árið 2021 miðað við óbreyttar álagningarforsendur.
Lögð fram áætlun fasteignagjalda fyrir árið 2021 miðað við óbreyttar álagningarforsendur.
Heildarfasteignamat í Grindavík er að hækka um 7,7% milli ára en hækkun íbúðarhúsnæðis er um 11%.8. Leikskólinn Laut - Umsókn um launalaust leyfi
Starfsmaður leikskólans Lautar óskar eftir launalausu leyfi til eins árs.
Fyrir liggur jákvæð umsögn leikskólastjóra.Starfsmaður leikskólans Lautar óskar eftir launalausu leyfi til eins árs.
Fyrir liggur jákvæð umsögn leikskólastjóra.
Bæjarráð samþykkir leyfið.9. Jafnréttis- og aðgerðaáætlun UMFG
Lagt fram minnisblað um ákvæði er snúa að jafnréttismálum í samstarfssamningi Grindavíkurbæjar og aðalstjórnar UMFG og samskipta sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs við aðalstjórn UMFG vegna jafnréttismála innan félagsins.
Lagt fram minnisblað um ákvæði er snúa að jafnréttismálum í samstarfssamningi Grindavíkurbæjar og aðalstjórnar UMFG og samskipta sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs við aðalstjórn UMFG vegna jafnréttismála innan félagsins.
Bókun
Síðastliðinn vetur gerði Grindavíkurbær tímamótasamning við UMFG, voru styrkir hækkaðir umtalsvert og sameiginlegur framkvæmdarstjóri ráðinn til félagsins. Fulltrúi B lista telur þetta vera jákvæðar breytingar. En í ljósi umræðu innan knattspyrnudeildar nú í sumar, þá vill fulltrúi B lista árétta, að nú er árið 2020 og öll mismunum kynjanna er ekki boðleg. Afreksþjálfun ungra iðkenda er vandmeðfarin, eftirfarandi grein er í samstarfssamningi UMFG og Grindavíkurbæjar: „að tryggt sé að stúlkur og drengir fái jöfn tækifæri til að stunda íþróttir og jafnræðis sé gætt þegar kemur að ráðningu þjálfara fyrir kynin, úthlutun æfingatíma o.s.frv.“ Fulltrúi B lista gerir þá kröfu á stjórn knattspyrnudeildar og barna- og unglingaráðs að standa við ákvæði samningsins og gæta þess að jafnrétti sé ávallt haft í fyrirrúmi. Afreksþjálfarar verða að deila sínum tíma jafnt á milli kynja.
Fulltrúi B-lista.10. Ábending frá Réttindagæslumanni fatlaðs fólks í Hafnafirði og á Suðurnesjum.
Bæjarráð áréttar samþykktir frá 18. febrúar 2020 í bæjarráði "jafnframt skal starfsfólk tryggja eftir mætti lyfjagjafir í öðrum tilvikum ef mælt er fyrir um það í læknisvottorði að lyfjagjöf á skólatíma sé nauðsynleg fyrir heildstæða velferð og líðan barnsins".
Bæjarráð felur sviðsstjóra félagsmála- og fræðslusviðs að svara erindinu og koma málinu í ásættanlegan farveg.11. Forkaupsréttur vegna sölu á skipinu Sturla GK-124
Bæjarráð samþykkir samhljóða að falla frá forkaupsrétti.
12. Öldungaráð Suðurnesja - fundargerð
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
13. Afgreiðslunefnd byggingarmála - 46
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
14. Umhverfis- og ferðamálanefnd - 46
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.