Bæjarráð Grindavíkur - 1592. fundur
- 21.09.2021
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 17:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1592
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Gatnagerð - Malbikun í Þórkötlustaðahverfi
Áskorun íbúa og húsráðenda við Heimaland, Efraland, Búðir og Garðbæ í Þórkötlustaðahverfi um malbikun á veginum sem liggur að þeirra heimakeyrslum lögð fram.
Lögð fram áskorun íbúa og húsráðenda við Heimaland, Efraland, Búðir og Garðbæ í Þórkötlustaðahverfi um malbikun á veginum sem liggur að þeirra heimakeyrslum.
Bæjarráð vísar erindinu í vinnu við fjárhagsáætlun næsta árs.2. Malbikun Norðuhóps
HH Smíði óskar eftir því að Norðurhóp verði malbikað heim að lóðarmörkum Norðurhóps 62-64. Erindi þess eðlis lagt fram.
HH Smíði óskar eftir því að Norðurhóp verði malbikað heim að lóðarmörkum Norðurhóps 62-64. Erindi þess eðlis lagt fram.
Bæjarráð felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að vinna málið áfram.3. Daggæsla barna í heimahúsi - Staðan haust 2021
Dagforeldrar óska eftir lækkun á leigu vegna þess að ekki tekst að fylla í daggæslupláss.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Dagforeldrar óska eftir lækkun á leigu vegna Gerðarvalla 17 vegna þess að ekki tekst að fylla í daggæslupláss.
Bæjarráð samþykkir að gefa eftir leigu um allt að 160.000 kr. fram að áramótum.4. Málaflokkur 02 - Beiðni um viðauka
Lögð er fram beiðni um viðauka í málaflokki 02 - Félagsþjónusta sundurliðað eftir rekstrareiningum.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð er fram beiðni um viðauka í málaflokki 02 - Félagsþjónusta að fjárhæð 8.915.000 skv. framlagri sundurliðun.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann og að fjármögnun verði með lækkun annarra rekstrareininga innan málaflokksins og það sem upp á vantar verði fjármagnað með lækkun á handbæru fé.5. Málaflokkur 04 - Beiðni um viðauka
Óskað eftir viðauka á rekstrareiningar undir málaflokki 04 - Fræðslumál.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð er fram beiðni um viðauka í málaflokki 04 - Fræðsluþjónusta að fjárhæð 27.000.000 skv. framlagri sundurliðun. Lagt er til að viðaukinn verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.
Bæjarráð frestar afgreiðslu og óskar frekari gagna.