Bæjarráð Grindavíkur - 1649. fundur
- 11.07.2023
- Fundargerð
- Kl. 15:00 - 16:05
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1649
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Helga Dís Jakobsdóttirvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir heimild til að taka inn mál á dagskrá með afbrigðum sem 1. mál:
2306071 Fráveita Grindavíkurbæjar - dælustöð við Miðgarð - framkvæmd.
Samþykkt samhljóða.
1. Fráveita Grindavíkurbæjar - dælustöð við Miðgarð - framkvæmd
Tilboð í byggingu á dælustöð á fráveitukerfi Grindavíkurbæjar lögð fram.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Tilboð í byggingu á dælustöð á fráveitukerfi Grindavíkurbæjar lögð fram.
Bæjarráð felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að gera samning við lægstbjóðendur.2. Hópsvegur 1 - breyting á deiliskipulagi
Málinu var frestað á síðasta fundi bæjarráðs.
Grenndarkynningartíma vegna deiliskipulagstillögu við Hópsveg 1 lauk þann 9. maí sl. Tvær athugasemdir bárust. Skipulagsnefnd telur ekki ástæðu til þess að bregðast við þeim athugasemdum sem bárust og felur skipulagsfulltrúa að svara þeim er gerðu athugasemd við skipulagstillöguna. Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagsbreytinguna á fundi 122 þann 19. júní sl. og vísar henni til fullnaðarafgreiðslu.
Bæjarráð samþykkir deiliskipulagstillöguna og felur skipulagsfulltrúa að afgreiða hana í samræmi við skipulagslög og felur skipulags- og umhverfissviði að svara erindi lóðarhafa við Sjónarhól.3. Sérstakur húsnæðisstuðningur - Breyting á reglum
Breytingar á reglum (bótafjárhæðir/tekjutafla) um sérstakan húsnæðisstuðning sveitarfélagsins lagðar fyrir bæjarráð til umræðu og afgreiðslu.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Drög að breyttum reglum (bótafjárhæðir/tekjutafla) um sérstakan húsnæðisstuðning sveitarfélagsins lagðar fyrir bæjarráð.
Bæjarráð felur sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs að kostnaðarmeta þær tillögur sem lagðar voru fram á fundinum og leggja fyrir næsta fund bæjarráðs.4. Samstarf um svæðisbundið samráð gegn ofbeldi og afbrotum
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum í samvinnu við ríkislögreglustjóra vill bæta enn frekar þjónustu vegna ofbeldis og afbrota á svæðinu. Óskað er eftir samstarfi við sveitarfélögin á Suðurnesjum vegna þessa verkefnis.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt fram bréf frá Ríkislögreglustjóra, dags. 21. júní 2023 þar sem óskað er eftir samstarfi við sveitarfélögin Grindavík, Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ og Voga ásamt Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum um áframhaldandi þróun á svæðisbundnu samráði gegn ofbeldi og öðrum afbrotum og að gengið verði frá samstarfsyfirlýsingu þess efnis.
Bæjarráð samþykkir að taka þátt í verkefninu.5. Álagning seinni hluta sorpgjalda 2023 - 50 af kostnaði við meðhöndlun sorps
Engin gögn fylgja málinu en farið verður yfir helstu áhrif álagningar sem fylgir breyttri gjaldskrá.
Lögð fram álagning síðari hluta sorpgjalda ársins 2023.