Bæjarráð Grindavíkur - 1663. fundur
- 13.08.2024
- Fundargerð
- Kl. 14:00 - 16:20
- í Tollhúsi við Tryggvagötu
- Fundur nr. 1663
- Ritari: Fannar Jónasson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Helga Dís Jakobsdóttirvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Námsvist utan lögheimilissveitarfélags
Lögð fram greinargerð ásamt tillögu að bókun um meðferð umsókna um námsvist í leik- og grunnskóla skólaárið 2024 - 2025.
Guðjón Bragason ráðgjafi og Jóhanna Lilja Birgisdóttur frá Grindavíkurnefnd sátu fundinn undir þessum dagskrárlið. Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs tengdist fundinum með fjarfundarbúnaði.
Lögð fram greinargerð sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs ásamt tillögu að bókun um meðferð umsókna um námsvist í leik- og grunnskóla skólaárið 2024 - 2025.
Bæjarráð samþykkir neðangreinda tilhögun og vísar henni til staðfestingar í bæjarstjórn:
A. GRUNNSKÓLI:
a. Leitað verði samninga við Reykjanesbæ um að tryggja börnum á grunnskólaaldri með lögheimili og búsetu í Grindavík skólavist á komandi skólaári. Í samningi verði kveðið á um að forsvarsmönnum barna sem búsett eru í Reykjanesbæ verði leiðbeint um kosti þess að flytja lögheimili, svo sem til að tryggja aðgang að frístundaþjónustu o.fl.
b. Forráðamönnum barna sem búsett eru í öðrum sveitarfélögum en Grindavíkurbæ og Reykjanesbæ verði bent á þennan valkost en gengið verði út frá því sem meginreglu að fjölskyldur skrái lögheimili þar sem þær hafa aðsetur. Enginn skólaakstur verði í boði fyrir grunnskólabörn á milli aðseturssveitarfélags og grunnskóla.
c. Öllum umsóknum vegna barna á grunnskólaaldri með lögheimili í Grindavík um skólavist í öðru sveitarfélagi en samningssveitarfélagi verði synjað. Í þeim tilvikum verði foreldrum boðin aðstoð, eftir atvikum með fulltingi þjónustuteymis framkvæmdanefndar, við úrlausn sinna mála.
d. Skólaakstur til og frá Grindavík verður ekki í boði á meðan búseta er talin ótrygg í Grindavíkurbæ.
B. LEIKSKÓLI:
Öllum umsóknum vegna barna á leikskólaaldri með lögheimili í Grindavík um leikskólavist í öðru sveitarfélagi verði synjað. Í þeim tilvikum verði foreldrum boðin aðstoð, eftir atvikum með fulltingi þjónustuteymis framkvæmdanefndar, við úrlausn sinna mála.2. Aðstaða UMFG til æfinga og keppni
Farið yfir stöðu mála.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og Guðjón Bragason ráðgjafi sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Drög að styrktarsamningi við mennta- og barnamálaráðuneytið lögð fram.
Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra að undirrita hann. Jafnframt felur bæjarráð sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að hefja viðræður við Kópavogsbæ og Breiðablik um afnot af íþróttamannvirkjum veturinn 2024-2025 fyrir körfuknattleiksdeild UMFG.3. Kvikan - Opnunartími veturinn 2024-2025
Rætt um mögulega opnun og viðburði í Kvikunni veturinn 2024-2025.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og Guðjón Bragason ráðgjafi sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Rætt um mögulega opnun og viðburði í Kvikunni veturinn 2024-2025.4. Beiðni um búnaðarkaup
Fyrir liggur beiðni frá slökkviliðsstjóra Grindavíkur um kaup á búnaði. Málinu var frestað á síðasta fundi bæjarstjórnar.
Slökkviliðsstjóri Grindavíkur og Guðjón Bragason ráðgjafi sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Fyrir liggur beiðni frá slökkviliðsstjóra um kaup á bíl til að flytja vakthafandi slökkviliðsmenn milli staða og kaup á buggy-bíl með palli til slökkvistarfa. Heildarkostnaður er áætlaður 15.700.000 kr. Meginhluti kostnaðar við rekstur Slökkviliðs Grindavíkur er greiddur af Almannavörnum samkvæmt samningi þar um og verða inntekjur frá Almannavörnum nýttar til framangreindra kaupa.
Bæjarráð samþykkir framangreinda beiðni.5. Fjárhagsáætlun 2024 - Viðauki vegna breyttra forsendna í rekstri Grindavíkurbæjar
Lögð fram beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2024 vegna breyttra forsendna í rekstri Grindavíkurbæjar.
Guðjón Bragason ráðgjafi sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2024 vegna lækkunar tekna að fjárhæð 1.171.235 kr. Fjármögnun er með lækkun gjalda að fjárhæð 1.204.689 kr.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukabeiðnina.6. Fundargerðir - Reykjanesfólkvangur 2024
Fundargerð dags. 26. júní 2024 lög fram. Staðfesting liggur fyrir á útgöngu Reykjavíkurborgar, Reykjanesbæjar, Sveitarfélagsins
Voga, Seltjarnarnesbæjar og Kópavogsbæjar úr Reykjanesfólkvangi.Guðjón Bragason ráðgjafi sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Fundargerð dags. 26. júní 2024 lögð fram. Staðfesting liggur fyrir á útgöngu Reykjavíkurborgar, Reykjanesbæjar, Sveitarfélagsins Voga, Seltjarnarnesbæjar og Kópavogsbæjar úr Reykjanesfólkvangi. Upplýst var að Umhverfisstofnun muni á næstunni boða til fundar með þeim sveitarfélögum sem eftir verða í Reykjanesfólkvangi.