Bæjarráð Grindavíkur - 1665. fundur
- 10.09.2024
- Fundargerð
- Kl. 14:00 - 16:20
- í Tollhúsi við Tryggvagötu
- Fundur nr. 1665
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sævar Þór Birgissonvaramaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
- Guðjón BragasonLögfræðingur
1. Íbúðarhúsnæði í Grindavík - staða mála
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið verða Örn Viðar Skúlason framkvæmdastjóri Fasteignafélagsins Þórkötlu og Hulda Ragnheiður Árnadóttir forstjóri Náttúruhamfaratryggingar Íslands.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sérfræðingur á tæknisviði Grindavíkurbæjar. Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs. Frá fasteignafélaginu Þórkötlu: Örn Viðar Skúlason framkvæmdastjóri og Dagný Lísa Davíðsdóttir. Frá NTÍ: Hulda Ragnheiður Árnadóttir forstjóri og Jón Örvar Bjarnason.
Framkvæmdastjóri Þórkötlu og formaður NTÍ kynntu stöðu mála hjá þeim og svöruðu fyrirspurnum.2. Samþykktir og stjórnsýsla Grindavíkurbæjar - Tillögur vinnuhóps
Lögð fram drög að skipunabréfum fyrir innviðanefnd og samfélagsnefnd.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Lögð fram drög að erindisbréfum fyrir innviðanefnd og samfélagsnefnd.
Bæjarráð samþykkir framlögð gögn með þeirri breytingu að atvinnumál verði ekki hjá innviðanefnd heldur hjá bæjarráði og vísar þeim svo breyttum til bæjarstjórnar.3. Aukinn kostnaður leikskóla í kjölfar náttúruhamfara í Grindavík
Öllum sveitarfélögunum hefur verið sent erindi vegna uppgjörs á kostnaði vegna grindvískra leikskólabarna.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Lagt fram bréf til sveitarfélaga, dags. 6. september 2024 vegna uppgjörs á leikskóladvöl grindvískra leikskólabarna.4. Almannavarnanefndir á Suðurnesjum
Almannavarnanefnd Suðurnesja, utan Grindavíkur leggur til að hafist verði handa við gerð samstarfssamnings sveitarfélaga á Suðurnesjum um starfsemi sameiginlegrar almannavarnanefndar á Suðurnesjum.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Almannavarnanefnd Suðurnesja, utan Grindavíkur leggur til að hafist verði handa við gerð samstarfssamnings sveitarfélaga á Suðurnesjum um starfsemi sameiginlegrar almannavarnanefndar á Suðurnesjum.
Bæjarráð tekur undir þessar hugmyndir og felur bæjarstjóra að vinna málið áfram.5. Mál YFN nr. 3/2024 - Norðurljósavegur 1, Grindavík, fnr. 209-2590
Lagður fram úrskurður yfirfasteignamatsnefndar
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Lagður fram úrskurður yfirfasteignamatsnefndar þar sem erindi kæranda er hafnað.6. Fasteignagjöld 2024 - Flatabrim ehf.
Lagður fram tölvupóstur frá Friðrik Einarssyni vegna fasteignaskatts á NLI árið 2024.
Lagður fram tölvupóstur frá Friðrik Einarssyni vegna fasteignaskatts á NLI árið 2024 og minnisblað Guðjóns Bragasonar um málið.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.7. Aðstaða UMFG til æfinga og keppni
Samningur við Breiðablik lagður fram.
Málinu er frestað til næsta fundar.
8. Víkurbraut 28 - erindi frá Novum lögmönnum
Lagt fram erindi frá Novum
Lögð fram drög að bréfi til að svara erindinu.
Bæjarráð felur sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að svara erindinu í samræmi við framlagt bréf.9. Fundargerðir og gögn fjallskilanefndar 2024
Lagðar fram fundargerðir fjallskilanefndar Grindavíkurbæjar og erindi frá Matvælastofnun.
Lagðar fram fundargerðir fjallskilanefndar dags. 28.08.2024 og 05.09.2024.
Lagt fram álit MAST á fyrirhuguðum fjárrekstri í Þórkötlustaðarrétt í Grindavík.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við tillögu fjallskilanefndar um að rétta í Þórkötlustaðarétt sunnudaginn 22. september nk. kl. 14:00.