Bæjarráð Grindavíkur - 1680. fundur
- 08.04.2025
- Fundargerð
- Kl. 14:00 - 15:15
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1680
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Birgitta H. Ramsay Káradóttirvaramaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Sævar Þór Birgissonvaraformaður
Starfsmenn
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Guðjón Bragasonlögfræðingur
Birgitta Hrund sat fundinn í gegnum Teams.
1. Niðurrif altjónseigna
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Skipulagsfulltrúi Grindavíkurbæjar.
Skipulagsfulltrúi fór yfir mögulegar útfærslur við niðurrif húsa.
Bæjarstjóra falið að vinna málið áfram.2. Umsögn um breytingar á lögum nr. 16-2024 um kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavik, 213. mál
Lögð fram drög að umsögn um málið
Lögð fram til umræðu umsögn vegna 213. máls.
Bæjarráð samþykkir umsögnina og felur bæjarstjóra að senda hana til Alþingis.3. Tilnefningu fulltrúa í stýrihóp vegna undirbúnings fyrir almyrkva 2026
Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum óskar eftir tilnefningu fulltrúa í stýrihóp vegna undirbúnings fyrir almyrkva 2026.
Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum óskar eftir tilnefningu fulltrúa í stýrihóp vegna undirbúnings fyrir almyrkva 2026.
Bæjarráð tilnefnir Eggert Sólberg Jónsson.4. Akstursstyrkir til starfsmanna vegna náttúruvár.
Áfangastaður er ekki lengur höfuðborgarsvæðið heldur Grindavík. Ákveða þarf ný viðmið í fjarlægð. Lagt er til að skurðpunktur frá akstri 1 í akstur 2 verði um 80 km. Enginn akstur verður greiddur ef styttra er en 20 km.
Á bæjarráðsfundi nr 1661 var eftirfarandi samþykkt:
Lögð fram tillaga frá sviðsstjórafundi varðandi akstursstyrk til starfsmanna sem þurfa að sækja vinnu um lengri veg. Bæjarráð samþykktir að greiða aksturstyrk til starfsmanna sem koma til vinnu utan höfuðborgarsvæðis. Gert ráð fyrir að það verði 2 gjaldflokkar eftir fjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu. Stuðullinn 1,5 ef fjarlægð er meira en Árborg og Borgarnes. Grunnfjárhæð verður 3.289 pr. dag miðað við gjaldflokk 1.Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Launafulltrúi Grindavíkurbæjar.
Bæjarráð samþykkir að akstursgreiðslur verði eftirfarandi daggjald:
Akstur 1: Suðurnes utan Grindavíkur, gjald 2.100
Akstur 2: Önnur svæði, gjald 3.300
Gildistaka er frá og með 16. apríl.5. Fasteignagjöld 2025
Lagt fram yfirlit yfir áætlun um möguleg fasteignagjöld ársins 2025.
Lagt fram yfirlit yfir möguleg fasteignagjöld ársins 2025.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til ákvörðunar.