Bæjarráð Grindavíkur - 1652. fundur
- 05.09.2023
- Fundargerð
- Kl. 15:30 - 16:40
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1652
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Helga Dís Jakobsdóttirvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Sverrir Auðunssonvaramaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir að taka mál á dagskrá með afbrigðum sem 3. mál: 2309021 - Malbikun gatna - beiðni um viðauka.
Samþykkt samhljóða.
1. Endurbætur á klefum meistaraflokka í körfubolta 2023
Körfuknattleiksdeild Grindavíkur óskar eftir styrk frá Grindavíkurbæ að upphæð 1.400.000 kr.- til að mæta kostnaði við endurbætur á klefum meistaraflokka félagsins í körfuknattleik.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Körfuknattleiksdeild Grindavíkur óskar eftir styrk frá Grindavíkurbæ að upphæð 1.400.000 kr. til að mæta kostnaði við endurbætur á klefum meistaraflokka félagsins í körfuknattleik.
Bæjarráð samþykkið erindið og felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að leggja viðaukabeiðni fyrir næsta fund bæjarráðs, svo fremi að fyrir liggi reikningar vegna útlagðs kostnaðar.2. Notkun íþróttamannvirkja til skemmtanahalds
Lionsklúbbur Grindavíkur óskar eftir því að heimild verði gefin til að breyta opnunartíma sundlaugar þegar Kútmagakvöld klúbbsins verður haldið þann 8. mars 2024.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lionsklúbbur Grindavíkur óskar eftir því að heimild verði gefin til að breyta opnunartíma sundlaugar þegar Kútmagakvöld klúbbsins verður haldið þann 8. mars 2024.
Bæjarráð veitir forstöðumanni heimild til að loka sundlauginni á meðan á kútmagakvöldi stendur.3. Styrktarsamningur við Björgunarsveitina Þorbjörn
Borist hefur erindi frá sveitinni þar sem óskað er eftir viðræðum um endurnýjun á styrktarsamningi.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagður fram tölvupóstur frá sveitinni, dags. 21. ágúst sl. þar sem óskað er eftir viðræðum um endurnýjun á styrktarsamningi. Núverandi samningur, frá 31.12.2018, rennur út 31.12.2023.
Bæjarráð felur bæjarstjóra og sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að vinna málið áfram.4. Malbikun gatna - beiðni um viðauka
Lögð er fram viðaukabeiðni vegna malbikunar á árinu 2023. Tölvupóstur frá sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs lagður fram.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð er fram viðaukabeiðni vegna malbikunar á árinu 2023. Tölvupóstur frá sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs lagður fram.
Óskað er eftir viðauka að fjárhæð 20.000.000 kr. vegna malbikunar gatna á árinu. Lagt er til að viðaukinn verði fjármagnaður með lækkun á verkefnunum, Hópsskóli, aðkoma að Hópsskóla um 10.000.000 kr. og lækkun á verkefninu 32-115110 Gatnakerfi, nýjar götur um 10.000.000 kr.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann.5. Rekstraryfirlit janúar - júní 2023
Lagt fram rekstraryfirlit janúar - júní 2023.
Lagt fram rekstraryfirlit janúar - júní 2023. Niðurstaða rekstrar Grindavíkurbæjar í heild er innan fjárheimilda. Þó eru nokkrar rekstraeiningar sem stefna í framúrkeyrslu.
Bæjarráð felur sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að fara yfir málið með sviðsstjórum.6. Fjárhagsáætlun 2024-2027 - Grindavíkurbær og stofnanir
Lagt fram minnisblað frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 28. ágúst sl. varðandi forsendur fjárhagsáætlana sveitarfélaga 2024-2027.
Lagt fram minnisblað frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 28. ágúst sl. varðandi forsendur fjárhagsáætlana sveitarfélaga 2024-2027.
7. Byggðastofnun - Samanburður fasteignagjalda viðmiðunareignar árið 2023
Lögð fram samanburðarskýrsla Byggðastofnunar vegna fasteignagjalda viðmiðunareignar árið 2023.
Sjá hér frétt á heimasíðu Byggðastofnunar: https://www.byggdastofnun.is/is/frettir/samanburdur-fasteignagjalda-heimila-arid-2023Lögð fram samanburðarskýrsla Byggðastofnunar vegna fasteignagjalda viðmiðunareignar árið 2023.
8. Fundargerðir og gögn fjallskilanefndar 2023
Fundargerð fjallskilanefndar dags. 21. ágúst 2023 er lögð fram, sem og tilkynning dags. 24. ágúst um breytta dagsetningu á smala- og réttardegi. Réttað verður í Þórkötlustaðarétt sunnudaginn 17. september kl. 14:00.
Fundargerð fjallskilanefndar dags. 21. ágúst 2023 er lögð fram, sem og tilkynning dags. 24. ágúst um breytta dagsetningu á smala- og réttardegi.
Réttað verður í Þórkötlustaðarétt sunnudaginn 17. september kl. 14:00.