Bæjarráð Grindavíkur - 1507. fundur
- 12.02.2019
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:55
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1507
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
Í upphafi fundar óskar formaður eftir heimild til að taka eftirfarandi mál á dagskrá með afbrigðum sem 2. mál.
1802069 Skólahúsnæði: Hönnun og framkvæmdir
Samþykkt samhljóða
1. Gallup - Þjónustukönnun 2018
Matthías Þorvaldsson kemur á fundinn og fer yfir þjónustukönnuna.
Matthías Þorvaldsson mætti á fundinn og fór yfir þjónustukönnuna.
2. Skólahúsnæði: Hönnun og framkvæmdir
Lagðar fram umsagnir vegna vangaveltna um að velta skólastigum á milli skólahúsnæðis. Framvinda að öðru leyti. Ósk um frest vegna skila.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Umsagnir og athugasemdir varðandi flutning á skólastigum milli skólahúsnæðis lagðar fram.
Bæjarráð samþykkir að lengja skilafrest nefndarinnar til 1. maí 2019.3. Fráveita Grindavíkurbæjar - Ástandsskoðun
Greinargerð og minnisblað frá EFLU verkfræðistofu um ástandsskoðun á skolplögnum Fráveitu Grindavíkur sem skiptast í fjóra megin stofna, vesturstofn, austurstofn, iðnaðarsvæði og rotþrær. Þessi greinargerð snýst aðallega um vesturstofninn frá Laut og hreinsun á þeim stofni, en einnig um fráveituna almennt.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, byggingafulltrúi og umsjónarmaður áhaldahúss og fasteigna sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Greinargerð og minnisblað frá EFLU verkfræðistofu um ástandsskoðun á skolplögnum Fráveitu Grindavíkur lögð fram. Lagnirnar skiptast í fjóra megin stofna, vesturstofn, austurstofn, iðnaðarsvæði og rotþrær. Þessi greinargerð snýst aðallega um vesturstofninn frá Laut og hreinsun á þeim stofni, en einnig um fráveituna almennt.
Á árinu 2019 þarf að fara í meira viðhald lagnanna en gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun ársins 2019.
Óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun Fráveitu vegna ársins 2019:
Á lykil 51111-4976 kr. 1.887.000 og á lykil 51111-4947 kr. 1.854.000. Alls kr. 3.741.000.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka á rekstur Fráveitu fyrir árið 2019 að fjárhæð 3.741.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.4. Gerðavellir 17: umsókn um byggingarleyfi
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og forstöðumaður þjónustumiðstöðvar kynna greinargerð og kostnaðaraukningu vegna húsnæðis fyrir dagmæður að Gerðavöllum 17.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, byggingafulltrúi og umsjónarmaður áhaldahúss og fasteigna sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Greinargerð um kostnað vegna breytinga á Gerðavöllum 17 lögð fram.5. Götulýsing - ástand götulýsingar
Skýrsla og minnispunktar kynntir fyrir bæjarráði um götulýsingar og ástand hennar í Grindavíkurbæ. Skýrslan inniheldur einnig hugmyndir varðandi framtíðarsýn og möguleikum í götulýsingum ásamt viðhaldi og stýringum á þeim og er þeim varpað fram í skýrslunni.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, byggingafulltrúi og umsjónarmaður áhaldahúss og fasteigna sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Skýrsla og minnispunktar kynntir fyrir bæjarráði um götulýsingar og ástand hennar í Grindavíkurbæ lögð fram. Skýrslan inniheldur einnig hugmyndir varðandi framtíðarsýn og möguleikum í götulýsingum ásamt viðhaldi og stýringum á þeim og er þeim varpað fram í skýrslunni.
Óskað er eftir viðauka að fjárhæð 10.000.000 kr. á fjárhagsáætlun 2019 til að setja upp skápa fyrir ljósastaurastýringar.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukabeiðnina og að hún verði fjármögnuð með lækkun á handbæru fé.
Jafnframt samþykkir bæjarráð að farið verði í útboð á götulömpum sem tekið verði fyrir í fjárhagsáætlunarvinnu fyrir árið 2020.6. Þjónustumiðstöð - vélakaup
Holder Muvo fjölnota vinnuvél (vélsópur) var keypt síðastliðinn vetur af Aflvélum ehf og kom til okkar í apríl/maí 2018. Vélin hefur verið biluð meira og minna síðan hún var afhent Grindavíkurbæ. Forstöðumaður þjónustumiðstöðvar leggur fram beiðni um kaup á Kubotavél í stað aukahluta á Holder Muvo fjölnota vinnuvélina, viðbótarbúnaður á vélsóp upp á 11 millj. er á fjárhagsáætlun 2019.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, byggingafulltrúi og umsjónarmaður áhaldahúss og fasteigna sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Óskað er eftir heimild til að flytja 11.000.000 kr. milli liða í eignfærðri fjárfestingu.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja þessa breytingu.7. Grágrýti- fyrirspurn
Fyrirspurn frá arkitektum Studio Granda vegna grágrýtis sem er í eigu Grindavíkurbæjar. Verið er að falast eftir óvenjulega blæbrigðaríku grágrýti, sem hugsað er sem hluti klæðningar á nýbyggingu Alþingis á horni Vonarstrætis og Tjarnargötu í Reykjavík.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, byggingafulltrúi og umsjónarmaður áhaldahúss og fasteigna sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Fyrirspurn frá arkitektum Studio Granda vegna grágrýtis sem er í eigu Grindavíkurbæjar. Verið er að falast eftir óvenjulega blæbrigðaríku grágrýti, sem hugsað er sem hluti klæðningar á nýbyggingu Alþingis á horni Vonarstrætis og Tjarnargötu í Reykjavík.
Bæjaráð tekur vel í erindið. Sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs og bæjarstjóra falið að vinna málið áfram.8. Fasteignagjöld 2019
Álagning 2019 er lögð fram.
Yfirlit um álagningu fasteignagjalda 2019 er lagt fram.
9. Undirbúningur að opnun bókhalds Grindavíkurbæjar
Samantekt á möguleikum við opnun bókhalds.
Lagt fram yfirlit yfir mögulegar leiðir við að opna bókhald bæjarins á heimasíðunni.
Sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs falið að vinna málið áfram.10. Málefni félagsþjónustu Grindavíkurbæjar
Hallfríður Hólmgrímsdóttir bæjarfulltrúi leggur málið fyrir fundinn.
Hallfríður Hólmgrímsdóttir bæjarfulltrúi leggur málið fyrir fundinn.
Bæjarráð óskar eftir frekari upplýsingum frá sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs á næsta fund bæjarráðs.11. Samband ísl. sveitarfélaga: Frumvarp - kosningar til sveitarstjórna
Sambandið hvetur sveitarstjórnir til þess að taka til umfjöllunar beiðni frá nefndasviði Alþingis þar sem óskað er eftir umsögnum um frumvarp til laga um breytingar á lögum um kosningar til sveitarstjórna.

12. Alda - félag um sjálfbærni og lýðræði
Fyrir liggur erindi frá félaginu.
Erindið er lagt fram.