Bæjarráð Grindavíkur - 1423. fundur
- 01.11.2016
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1423
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Kristín María Birgisdóttirvaraformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Búsetumál eldri borgara í Grindavík: uppbygging við Víðihlíð
Tillögur og fundargerðir
Ármann Halldórsson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs fylgdu málinu eftir.
Afgreiðslu frestað til næsta fundar.2. Umsókn um byggingarleyfi: Austurvegur 1.
Ármann Halldórsson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs kynnti minnisblað.
Ákveðið að fresta fyrirhuguðum framkvæmdum við glugga á suðurhlið til næsta árs.3. Tálkni ehf. Umsókn um lóð nr. 2 iðnaðarsvæði i5
Ármann Halldórsson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs kynnti málið.
Bæjarráð telur ekki forsendur til þess að ganga frá viljayfirlýsingu við Tálkna ehf. að svo stöddu.4. Tjaldsvæði: útboðsgögn
Drög að skilyrðum í auglýsingu
Bæjarstjóri kynnti drög að auglýsingu lóðar fyrir smáhýs við tjaldsvæðið.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að auglýsa lóðina.5. Húsatóftavöllur: stuðningur við uppbyggingu golfvallar
GG og BL óska eftir viðauka við viljayfirlýsinguna, sem feli í sér að stuðningur við verkefnið verði aukinn um ca 12 milljónir, sem Grindavíkurbær og BL skipti á milli sín.
Golfklúbbur Grindavíkur óskar eftir viðauka við viljayfirlýsingu um stuðning við uppbyggingu Húsatóftavallar dags. 29. apríl 2015 í ljósi þess að kostnaður hefur reynst hærri en áætlað var.
Bæjarráð hafnar því að leggja meira fé í framkvæmdir við Húsatóftavöll, umfram þær 10 milljónir sem bærinn hefur skuldbundið sig til í viljayfirlýsingunni.6. Fjárhagsáætlun 2017: SSS sameiginlega reknar stofnanir
Fjárhagsáætlun sameiginlega rekinna stofnanna fyrir árið 2017 er lögð fram. Áætlað er að framlög Grindavíkurbæjar til sameiginlega rekinna verkefna verði 52,7 milljónir.
Bæjarráð vísar áætluninni til síðari umræðu í bæjarstjórn.7. Grindavíkurhöfn: Fjárhagsáætlun 2017
Bæjarráð vísar áætluninni til síðari umræðu í bæjarstjórn.
8. Grindavíkurhöfn: Gjaldskrá 2017
Bæjarráð vísar tillögunni til í bæjarstjórnar.
9. Hádegismatur eldri borgara: Beiðni um niðurgreiðslur
Stjórn Félags eldri borgara óskar eftir því að Grindavíkurbær niðurgreiði hádegismat fyrir eldri borgara.
Bæjarráð vísar erindinu til félagsmálanefndar til umsagnar.10. Hér og nú: Verkefnisáætlun og umsókn
Í tengslum við vinnu fjárhagsáætlunar 2017 var óskað eftir fjárheimild í verkefnið Hér og nú undir forvarnarlykli. Lögð var fram meðfylgjandi verkefnisáætlun til næstu þriggja ára svo hægt sé að þróa verkefnið áfram. Jafnframt kom fram að sótt yrði um fjárauka fyrir verkefnið fyrir haustið 2016 líkt og fram kemur í verkefnisáætluninni.$line$Verkefnið hefur þegar verið keyrt af stað í haust, stærsti kosnaðurinn felst í verkefnisstjórn, innlögn og vinnu við áætlanir ásamt námskeiði/fræðslu fyrir starfsfólk. Sjá nánar í verkefnisáætlun.$line$Sótt er um fjárheimild upp á 1.100.000 kr. fyrir haustið 2016 sem myndi bókast undir forvarnir.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs óskar eftir viðauka á fjárhagsáætlun ársins 2016 að fjárhæð 1.100.000 kr. vegna verkefnisins Hér og nú.
Bæjarráð hafnar beiðni um viðauka og felur frístunda- og menningarsviði og grunnskólanum að finna fjármögnun fyrir verkefnið innan núverandi fjárheimilda.11. íþróttamannvirki: Áfangi 3, hönnun
Fundargerðir lagðar fram að beiðni S lista
Fundargerðir lagðar fram.
12. Stígamót: Styrkbeiðni
Stígamót óska eftir rekstrarstyrk á árinu 2017.
Bæjarráð samþykkir að veita Stígamótum 50.000 kr. rekstrarstyrk á árinu 2017.13. Útilegukortið: Samningur 2017
Ný samningsdrög lögð fram
Tillaga að samningi um Útilegukortið lagt fram.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirrita samninginn.